Bein útsending: Framúrskarandi fyrirtækjum fagnað Starri Freyr Jónsson skrifar 28. október 2026 16:02 Listi Creditinfo yfir Framúrskarandi fyrirtæki ársins 2026 verður gerður opinber í dag við hátíðlega athöfn í Hörpu og í beinni útsendingu á Vísi. Hrefna Sigfinnsdóttir, framkvæmdastjóri Creditinfo á Íslandi, mun setja viðburðinn sem hefst kl. 17. ANTON BRINK Listi Creditinfo yfir Framúrskarandi fyrirtæki ársins 2026 verður gerður opinber við hátíðlega athöfn í Hörpu í dag, miðvikudaginn 28. október. Bein útsending hefst á Vísi kl. 17.
Á síðasta ári komust 1.155 fyrirtæki inn á listann en í ár hefur þeim fjölgað um nokkra tugi. Á Vísi má finna sérvef tileinkaðan Framúrskarandi fyrirtækjum en listinn verður birtur í heild sinni kl. 16 í dag. Þar má auk þess finna ýmsar greinar og fróðleg viðtöl við forsvarsmenn Framúrskarandi fyrirtækja. Húsið opnar kl. 16:30 og þá verða þeim Framúrskarandi fyrirtækjum sem hafa keypt vottun afhent viðurkenningarskjöl. Einnig verður boðið upp á léttar veitingar og tónlist. Formleg dagskrá hefst kl. 17 þegar Hrefna Sigfinnsdóttir, framkvæmdastjóri Creditinfo á Íslandi, setur viðburðinn. Í kjölfarið heldur heiðursgestur dagsins, Bjarni Benediktsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, erindi. Að lokum mun Erla Ósk Ásgeirsdóttir, formaður stjórnar Festu – miðstöðvar um sjálfbærni, afhenda sérstök hvatningarverðlaun fyrir framúrskarandi framtak á sviði sjálfbærni. Það var glatt á hjalla í fyrra þegar listi Creditinfo yfir Framúrskarandi fyrirtæki var kynntur í Laugardalshöll. Þetta er í sautjánda skiptið sem Creditinfo veitir Framúrskarandi fyrirtækjum í íslensku atvinnulífi vottun fyrir góðan og traustan rekstur. Vottunin er verðmæt viðurkenning sem getur styrkt stöðu fyrirtækja á markaði og aukið traust viðskiptavina og samstarfsaðila. Það er því mikils virði fyrir fyrirtæki að skara fram úr og hljóta slíka viðurkenningu. Á síðasta ári hlaut sjávarútvegsfyrirtækið Brim hvatningarverðlaun Creditinfo og Festu - miðstöðvar um sjálfbærni, fyrir framúrskarandi framlag til sjálfbærrar þróunar. Creditinfo stendur að vali á Framúrskarandi fyrirtækjum í samstarfi við Festu – miðstöð um sjálfbærni og SÝN. Þessi grein er hluti af samstarfi Sýnar og Creditinfo um Framúrskarandi fyrirtæki.
Framúrskarandi fyrirtæki 2026 Mest lesið Kólnun framundan: Það hættulega við að vera á góðum launum Atvinnulíf Spænskt félag kaupir Samskip Viðskipti innlent Sorpa lætur sautján róa Viðskipti innlent Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Viðskipti innlent Guðný Helga tekur við af Haraldi Viðskipti innlent Framúrskarandi fyrirtækjum fagnað Framúrskarandi fyrirtæki Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Viðskipti innlent Bjóða fjórðungi starfsfólks Microsoft starfslokasamninga Viðskipti erlent Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Viðskipti innlent TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Viðskipti innlent Fleiri fréttir Framúrskarandi fyrirtækjum fagnað 330 þúsund ársreikningum síðar er starfið enn jafn skemmtilegt Frá fjósinu í Hörpu – fjölskyldubú hlýtur viðurkenningu Samfélagslegt mál að jafnrétti sé virt Þungur róður hjá fyrirtækjum en undirstöðurnar sterkar Vestfirðir sækja í sig veðrið – átta ný fyrirtæki á lista þeirra Framúrskarandi „Listamaðurinn“ leitar að þeim bestu í íslensku atvinnulífi Fór úr sjúkraþjálfun og stofnaði fyrirtæki í kringum ástríðuna Jafnrétti í stjórnum skilyrði fyrir Framúrskarandi fyrirtæki Payday fagnar stórum áfanga og horfir til gervigreindar Frá löngum gátlista yfir í flennigír og fögnuð Aðeins 28 ára og stýrir Framúrskarandi fyrirtæki „Það þarf að fagna því að vera Framúrskarandi fyrirtæki“ Eina vottunin sem sýnir hvaða fyrirtæki skara raunverulega fram úr Sjá meira