Viðskipti innlent

Greiða hundruð milljóna króna sekt

Áróra L Davíðsdóttir skrifar
Arion banki gerði sátt við Fjármálaeftirlit Seðlabankans.
Arion banki gerði sátt við Fjármálaeftirlit Seðlabankans. Vísir/Vilhelm

Arion banki hefur fallist á að greiða 280 milljóna króna sekt vegna brota á reglum um verðbréfaviðskipti og fjárfestavernd. Bankinn gerði sátt við Fjármálaeftirlit Seðlabankans eftir að í ljós kom að hann hafði ekki tilkynnt um grunsamleg hlutabréfaviðskipti tveggja viðskiptavina á árunum 2022 og 2023, þrátt fyrir skýrar vísbendingar um mögulega markaðsmisnotkun.

Í tilkynningu þess efnis segir að mat Fjármálaeftirlitsins sé að bankinn hafi ekki uppfyllt tilteknar kröfur laga um markaði fyrir fjármálagerninga um vörustjórnun, mat á tilhlýðileika og þekkingu og hæfni starfsfólks. 

Eins og fyrr sagði tekur sáttin til þess að bankinn hafi ekki sinnt tilkynningaskyldu sinni gagnvart eftirliti Seðlabankans vegna hlutabréfaviðskipta tveggja viðskiptavina. Athugun eftirlitsins hafi leitt í ljós önnur viðskiptin og hin hafi bankinn sjálfur tilkynnt eftirlitinu eftir úttekt að eigin frumkvæði. 

„Þá var verklag og kerfi bankans til að greina og tilkynna grunsamleg fyrirmæli og viðskipti, þar á meðal þjálfun starfsfólks og stillingar sjálfvirks eftirlitskerfis, ekki talið fullnægjandi á þeim tíma þegar umrædd viðskipti áttu sér stað,“ segir í tilkynningunni. 

Bankanum þyki miður að ekki hafi verið staðið rétt að málum og hafi gripið til umfangsmikilla úrbóta frá því að málið kom upp. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×