Formúla 1

Átti erfitt fyrsta tíma­bil en getur nú skrifað söguna

Andri Broddason skrifar
Kimi Antonelli átti erfitt fyrsta tímabil en með breyttu hugarfari hefur gengi hans batnað gríðarlega.
Kimi Antonelli átti erfitt fyrsta tímabil en með breyttu hugarfari hefur gengi hans batnað gríðarlega. Vísir/Getty

Kimi Antonelli er svo gott sem búinn að tryggja sér heimsmeistaratitilinn í Formúlu 1 þar sem hann þarf aðeins tvö stig í næstu keppni til þess að tryggja sér titilinn formlega. Geri hann það verður hann yngsti heimsmeistari í Formúlu 1 í sögunni og sýnir gríðarlegan viðsnúning frá síðasta tímabili.

Þetta er aðeins annað tímabilið hans Kimi Antonelli í Formúlu 1 en hugarfar hans hefur breyst gríðarlega síðan þá. Á síðasta tímabili var lítið að ganga upp hjá honum og virtist það hafa mikil áhrif á unga Ítalann en hann hefur náð að snúa blaðinu við.

Toto Wolff, liðsstjóri Mercedes, rifjaði upp í viðtali við Sky Sports að eftir röð óheppilegra úrslita þá grét Antonelli eftir tímatökur fyrir belgíska kappaksturinn. Antonelli náði ekki að skora stig í níu keppnum í röð á bíl sem átti að berjast um verðlaunasæti. Það voru því ýmsar gagnrýnisraddir sem sögðu að Antonelli ætti ekki heima í Formúlu 1.

Eftir erfitt fyrsta tímabil ákvað Antonelli að breyta hugarfarinu sínu og einbeita sér meira að því að njóta í Formúlu 1. Það eru ekki margir sem fá tækifæri til þess að keppa í Formúlu 1 svo það er mikilvægt að njóta á meðan það er hægt.

Það hugarfar hefur virkilega hjálpað honum þar sem Mercedes er búið að vera með frábæran bíl á þessu tímabili. Antonelli hefur sannarlega nýtt sér það og virðist að öllum líkindum ná að verða heimsmeistari um helgina þegar mexíkóski kappaksturinn fer fram.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×