Á þriðja tug sagt upp hjá Hafnarfjarðarbæ Atli Ísleifsson skrifar 29. október 2026 12:35 Þórður Þórarinsson bæjarstjóri segir þungbært að þurfa að taka ákvarðanir sem hafa áhrif á störf og afkomu fólks. Vísir/Vilhelm Alls hafa 23 störf verið lögð niður hjá Hafnarfjarðarbæ sem samsvarar 21,6 stöðugildum. Þremur starfsmönnum verður boðin önnur störf hjá bænum, og er því um að ræða nettófækkun upp á 18,6 stöðugildi.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Hafnarfjarðarbæ. Þar segir að bæjarráð hafi samþykkt á fundi sínum í dag tillögu bæjarstjóra um hagræðingaraðgerðir í miðlægri stjórnsýslu bæjarins. „Alls verða 23 störf lögð niður sem samsvarar 21,6 stöðugildum en þremur starfsmönnum boðin önnur störf hjá bænum. Því er nettófækkun 18,6 stöðugildi. Aðgerðirnar ná til allra sex sviða bæjarins, þ.e. fjölskyldu- og barnamálasviðs, mennta- og lýðheilsusviðs, þjónustu- og þróunarsviðs, fjármálasviðs, stjórnsýslusviðs og umhverfis- og skipulagssviðs. Áætlað er að hagræðingin skili 330 milljónum króna í varanlegum árlegum sparnaði frá og með árinu 2028. Jafnframt verða innleiddar takmarkanir á ráðningum og sérstök miðlæg ráðningarnefnd sett á laggirnar. Launakjör yfirstjórnar verða fryst til tveggja ára. Hagræðingaraðgerðirnar eru liður í að bregðast við þröngri fjárhagsstöðu Hafnarfjarðarbæjar og treysta rekstur hans til framtíðar. Áhersla er lögð á að lækka kostnað við stjórnsýslu, einfalda skipulag og standa vörð um grunnþjónustu við bæjarbúa. Umfangsmikil greiningarvinna og vægari leiðir skoðaðar Undanfarna mánuði hefur farið fram umfangsmikil greining á rekstri, skipulagi og mönnun með stjórnendum bæjarins. Leitað hefur verið leiða til að draga úr kostnaði með sem minnstum áhrifum á starfsfólk og þjónustu. Meðal annars með starfsmannaveltu, tilfærslu verkefna og sameiningu starfa. Ítarleg greiningarvinna og hálfsársuppgjör sveitarfélagsins liggja að baki þeim aðgerðum sem gripið hefur verið til. Fækkunin beinist fyrst og fremst að stjórnunar- og sérfræðistörfum sem og störfum í innri þjónustu en ekki störfum sem sinna daglegri grunn- og framlínuþjónustu. Stjórnendastöðugildum fækkar um fjögur, þar af eru þrjár deildarstjórastöður. Ekki eru fyrirhugaðar frekari uppsagnir í hagræðingarskyni. Hertar ráðningarreglur og aðhald í yfirstjórn Störf sem losna verða ekki sjálfkrafa endurmönnuð og ráðningar utan grunnþjónustu verða háðar samþykki ráðningarnefndar. Áfram verður heimilt að ráða vegna eðlilegrar starfsmannaveltu í leikskólum, grunnskólum og á heimilum fyrir fatlað fólk, að uppfylltum tilteknum skilyrðum. Fjárhagsstaðan kallar á aðgerðir Hálfsársuppgjör Hafnarfjarðarbæjar sýnir að rekstrarhalli A-hluta nam 2,36 milljörðum króna, en áætlun gerði ráð fyrir 435 milljóna króna afgangi. Frávikið nemur tæplega 2,8 milljörðum króna og skýrist meðal annars af minni tekjum af sölu byggingarréttar, auknum rekstrarkostnaði og hækkun fjármagnsgjalda. Áætlað er að bæta þurfi árlega rekstrarafkomu bæjarins um minnst 3 milljarða króna til að tryggja traustan grunnrekstur. Aðgerðirnar eru því liður í víðtækari hagræðingu og auknu aðhaldi sem mið verður tekið af við gerð fjárhagsáætlunar 2027,“ segir í tilkynningunni. Ekki komist hjá uppsögnum Haft er eftir Þórði Þórarinssyni bæjarstjóra að það sé þungbært að þurfa að taka ákvarðanir sem hafi áhrif á störf og afkomu fólks. „Hér er um að ræða hæft og gott starfsfólk sem hefur lagt mikið af mörkum til bæjarins og ég vil þakka því fyrir þeirra störf. Við höfum lagt mikla vinnu í að finna vægari leiðir til hagræðingar en því miður verður ekki komist hjá uppsögnum. Við leggjum áherslu á að vel verði staðið að breytingunum og að starfsfólk fái viðeigandi stuðning. Fjárhagsstaða Hafnarfjarðarbæjar er erfið og við verðum að bregðast við henni af festu og ábyrgð. Við gerum auknar kröfur um aðhald í ráðningum og rekstri. Þetta er fyrsta skrefið í stærra verkefni sem snýst um að ná tökum á rekstrinum, endurskoða forgangsröðun og standa vörð um grunnþjónustuna. Markmiðið er að tryggja að Hafnarfjörður hafi áfram burði til að veita bæjarbúum góða þjónustu,“ segir Þórður.
Hafnarfjörður Rekstur hins opinbera Vinnumarkaður Mest lesið Blöskraði biðin í björgun við Stuðlagil og barðist fyrir námskeiði Innlent Á þriðja tug sagt upp hjá Hafnarfjarðarbæ Innlent Segir fólk geta verið nýrnaveikt árum saman án þess að vita Innlent Blóðbað á lestarpalli Erlent Nýja Ölfusárbrúin hægt en örugglega dregin yfir ána Innlent Fjarlægðu myndskeið af golfhermi úr Kveiksþætti Innlent Notkun ólöglegra peptíða „rússnesk rúlletta“ Innlent Hirti sagt upp störfum hjá Hagstofunni Innlent Rukka erlenda nemendur um milljónir Innlent Sögðu öllum upp á Hjálpartækjamiðstöð SÍ Innlent Fleiri fréttir „Svolítið sárt í hjartanu að hafa enga söngvakeppni“ Hirti sagt upp störfum hjá Hagstofunni Sonur þingmannsins ákærður Á þriðja tug sagt upp hjá Hafnarfjarðarbæ „Akkilesarhæll á vinnu gagnvart þessum hópum“ Feginn að verðbólga stendur í stað og meirihluti mótfallinn þátttöku í Eurovision Til Ilulissat á Airbus með nýjum flugvelli Biðin á Landspítalanum styttist til muna Segir fólk geta verið nýrnaveikt árum saman án þess að vita Rukka erlenda nemendur um milljónir Nýja Ölfusárbrúin hægt en örugglega dregin yfir ána Notkun ólöglegra peptíða „rússnesk rúlletta“ Frumvarp kynnt um afnám æviráðningar Bein útsending: Kynnir aðgerðaáætlun gegn fátækt barna Sögðu öllum upp á Hjálpartækjamiðstöð SÍ Blöskraði biðin í björgun við Stuðlagil og barðist fyrir námskeiði Hópamyndun og hótanir unglinga við félagsmiðstöð í Kópavogi Fjarlægðu myndskeið af golfhermi úr Kveiksþætti Þurft að dvelja í einangrunarklefum vegna plássleysis „Mér finnst það alvarlegt“ Hafi ekki verið í formlegri heimsókn í moskunni Kveiksþætti kippt út tímabundið Söfnuðust saman við sendiráðið og mótmæltu refsiaðgerðum „Séum tilbúin þegar og ef þessi veruleiki birtist okkur“ Hljóta dóm fyrir að kveikja í Teslu lögreglumanns eftir allt saman Sveik hundruð þúsunda af vistmanni á Grenilundi Engar vísbendingar og lítið af upplýsingum Íslendingar losa meira en Evrópubúar í langflestu Sýna sögulega þingfestingu í öðrum sal Braut kynferðislega á fatlaðri stjúpdóttur sinni Sjá meira