Erlent

Flókið stjórnarmyndunarferli fram undan í Ísrael

Lovísa Arnardóttir og Telma Tómasson skrifa
Ekki liggur fyrir hver getur leitt nýja ríkisstjórn í Ísrael að loknum kosningum.
Ekki liggur fyrir hver getur leitt nýja ríkisstjórn í Ísrael að loknum kosningum. Vísir/EPA

Talningu atkvæða eftir þingkosningarnar í Ísrael er lokið. Niðurstöður sýna að Benjamín Netanyahu, forsætisráðherra Ísraels og bandalagsflokkar hans hlutu 53 sæti og Gadi Eisenkot, helsti keppinautur hans, hlaut, ásamt stuðningsflokkum, 48 þingsæti. 

Þá hlutu arabaflokkarnir svonefndu 19 þingsæti og stórjuku fylgi sitt. Þannig er ljóst að hvorki bandalag Netanyahu né Eisenkot-liðar hefðu unnið meirihluta á þinginu, sem telur 120 sæti. 

Vilji Benjamín Netanjahú halda áfram sem forsætisráðherra myndi hann annaðhvort þurfa stuðning stjórnarandstöðuflokks eða flokka eða starfa með flokkum ísraelskra araba, sem er hæpið.

Stjórnarandstaðan er í sömu stöðu, þar sem hvorug fylking fékk nægilega mörg þingsæti til að mynda meirihluta. Fyrir kjörtímabilið sem er nú að ljúka þurftu Ísraelar að halda fimm kosningar á fjórum árum vegna langavarandi þráteflis. Til að mynda ríkisstjórn þarf að minnsta kosti 61 þingmann af þeim 120 sem eru á ísraelska þinginu, Knesset.

Í gær fullyrti Netanyahu að arabaflokkarnir hefðu haft rangt við og kosningasvindl með aðkomu stjórnvalda í Katar og Tyrklandi hefði leitt til þess mikla fylgis sem þeir fengu.  Talsmenn beggja arabísku flokkanna hafa vísað þeim ásökunum á bug. 

Fjallað var um það á Vísi í gær að formaður yfirkjörstjórnar Ísrael hafnaði ásökunum um að umfangsmikið kosningasvindl hafi átt sér stað í kosningunum á þriðjudaginn. Hann segir ásakanirnar grunnlausar og að ekkert bendi til svindls eða þess að kerfisbundin frávik hafi átt sér stað.


Tengdar fréttir

Hætt við að hita upp fyrir Azealiu Banks

Plötusnúðurinn Mellí Þorkelsdóttir, eða Mellí 777, hefur hætt við að hita upp fyrir bandarísku tónlistarkonuna Azealiu Banks í Austurbæjarbíói þann 3. desember. Í kjölfar úrslita forsetakosninganna í Brasilíu síðustu helgi ákvað Mellí að taka afstöðu gegn síónískum skoðunum Banks og með Palestínu og hætta við að hita upp fyrir hana.

Telja síðustu atkvæðin í Ísrael

Kjörstjórn Ísraels hóf talningu utankjörfundaratkvæða í nótt. Gert er ráð fyrir að talningin standi fram á fimmtudagskvöld, en telja þarf um 500.000 atkvæði frá hermönnum og stjórnarerindrekum. Í frétt Guardian segir að ekki sé búist við því að niðurstöður talningar breyti niðurstöðunum.

Kakkalakkarnir í Ísrael tóku vel á móti Dorrit

Dorrit Moussaieff, athafnakona og fyrrverandi forsetafrú, er stödd á Acadia-strönd í Ísrael og birti þaðan mynd af kakkalökkum. Hún veltir fyrir sér á samfélagsmiðlum hvort kakkalakkarnir valdi fólki skaða því þeir hafi tekið á móti henni með vængina útbreidda.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×