Erlent

Barist um sam­band Búlgaríu við Rúss­land

Eiður Þór Árnason skrifar
Iliana Yotova er starfandi forseti og vann nauman sigur í fyrri umferð kosninganna.
Iliana Yotova er starfandi forseti og vann nauman sigur í fyrri umferð kosninganna. Ap/Valentina Petrova

Búlgarar ganga að kjörborðinu í dag í seinni umferð forsetakosninga sem hefur einkennst af umræðu um öryggisógnir og áhyggjur af efnahagsmálum.

Iliana Jotova, starfandi forseti, yrði fyrsta konan til að vera kjörin í forsetaembætti landsins ef hún sigrar. Hún etur kappi við Andrey Gyurov, frambjóðanda stjórnarandstöðunnar, og Andrey Gyurov, fyrrverandi starfandi forsætisráðherra.

Jotova sigraði Gyurov naumlega í fyrri umferð kosninganna og munaði 2,8 prósentustigum á þeim tveimur. Kjörsókn þá var sú minnsta sem mælst hefur í landinu en aðeins 23 prósent kosningabærra manna greiddu þá atkvæði, samkvæmt upplýsingum frá kjörstjórn. AP-fréttaveitan greinir frá.

Nýtur stuðnings flokks sem hliðhollur er Rússlandi

Búlgarar kjósa í skugga vaxandi efnahagsþrenginga og drónaárása á skipaumferð á Svartahafi sem hafa færst í aukana með þeim afleiðingum að nokkrir skipverjar hafa ýmist farist eða er saknað.

Jotova býður sig fram sem óháður frambjóðandi. Þar sem hún var áður varaforseti varð hún sjálfkrafa starfandi forseti fyrr á árinu þegar Rumen Radev steig úr forsetastólnum til að leiða flokk sinn til sigurs í þingkosningunum.

Kosningarnar eru fyrsta stóra prófraunin fyrir Framsækna Búlgaríu, flokk Radevs forsætisráðherra sem er hliðhollur Rússlandi, en hann hefur lýst yfir stuðningi við Jotovu.

Gert er ráð fyrir að Jotova myndi framfylgja þeirri stefnu Radevs að standa nálægt Evrópuríkjum en styðja einnig bætt samskipti við Rússland og afnám refsiaðgerða.

Ekki viljað benda á Rússland

Bæði Jotova og Radev hafa kallað eftir diplómatískri lausn til að binda enda á stríðið í Úkraínu en hafa veitt óljós svör um hugsanlega aðild Rússa að drónaárásum á Svartahafi.

Kjörstaðir voru opnaðir klukkan sjö í morgun að staðartíma. Fyrstu niðurstöður útgönguspáa eru væntanlegar eftir að kjörstöðum verður lokað klukkan átta í kvöld og opinber úrslit verða kynnt á mánudag.

Stjórnmálaskýrendur segja að sigur Jotovu myndi halda forsetaembættinu í höndum ríkjandi stjórnarmeirihluta og leiða til valdasamþjöppunar.

Helsti keppinautur Jotovu er hagfræðingurinn Gyurov, fyrrverandi aðstoðarseðlabankastjóri og starfandi forsætisráðherra sem var leiðtogi landsins snemma á þessu ári. Hann nýtur stuðnings stjórnarandstöðunnar sem að sögn AP-fréttaveitunnar hallast að aukinni vestrænni samvinnu.

Gyurov hefur reglulega lýst yfir eindregnum stuðningi við Úkraínu og undirritaði samning um öryggissamstarf við stjórnvöld í Kænugarði í forsætisráðherratíð sinni. Þá segist Gyurov vilja að Búlgaría yrði áreiðanlegur bandamaður innan Atlantshafsbandalagsins (NATO).

Gyurov hefur gagnrýnt ríkisstjórnina fyrir að nefna ekki Rússland sem árásaraðilann í stríði Rússlands og Úkraínu. Hann kallar einnig eftir því að Búlgaría taki þátt í ákvörðunum Evrópusambandsins.

„Þegar maður hefur enga afstöðu og situr ekki við borðið er maður í rauninni á matseðlinum,“ sagði hann.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×