Fótbolti

Júlíus með ný skila­boð til lands­liðs­þjálfarans

Sindri Sverrisson skrifar
Júlíus Magnússon heldur áfram að gera það gott með Elfsborg.
Júlíus Magnússon heldur áfram að gera það gott með Elfsborg. Mynd/Elfsborg

Júlíus Magnússon heldur áfram að gera góða hluti með liði Elfsborg í sænsku úrvalsdeildinni en hann skoraði annan leikinn í röð fyrir félagið í dag, í 2-1 sigri gegn Örgryte.

Júlíus var ekki í landsliðshópi síns gamla þjálfara Arnars Gunnlaugssonar fyrir leikina fjóra í haust en hefur eflaust aukið möguleika sína á að komast í hópinn sem mætir Búlgaríu og Lúxemborg nú um miðjan nóvember.

Hann skoraði gegn AIK í síðustu umferð og jafnaði svo metin gegn Örgryte í dag með föstu skoti af vítateigslínunni, á 65. mínútu, eftir að Tobias Sana hafði komið gestunum yfir.

Staðan var svo jöfn fram á þriðju mínútu uppbótartíma þegar Leo Östman skoraði sigurmark Elfsborgar.

Júlíus lék allan leikinn og Ari Sigurpálsson var einnig í byrjunarliði Elfsborgar en var skipt af velli eftir að Júlíus jafnaði metin.

Elfsborg er nú með 46 stig í 5. sæti, þegar þrjár umferðir eru eftir, en Örgryte er næstneðst. 

Leikur hjá Hirti og Kolbeini lengi stopp vegna óláta

Miklar óeirðir voru á leik IFK Gautaborgar og Häcken og var leikurinn stopp í langa stund og leikmenn sendir inn til búningsklefa, eftir að kveikt hafði verið á blysum og lögreglan látið til skarar skríða. Stuðningsmenn Gautaborgar sáust henda hlutum að lögreglunni og kalla hana „fótboltamorðingja“.

Leikurinn gat þó á endanum haldið áfram. Hjörtur Hermannsson lék allan leikinn í vörn IFK Gautaborgar sem tapaði 1-0 í þessum útileik eftir sjálfsmark Jonas Bager, félaga Hjartar í vörninni, á 16. mínútu. 

Kolbeinn Þórðarson kom inná sem varamaður á 34. mínútu en varð að gera sér að góðu að vera svo skipt af velli á 69. mínútu.

Gautaborg er með 38 stig í 9. sæti en Häcken er nú þremur stigum fyrir ofan Elfsborg, í 4. sæti.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×