Enski boltinn

Ekki unnið á Anfield í 14 ár

Valur Páll Eiríksson skrifar
Arteta hefur ekki enn stýrt Arsenal til sigurs á Anfield.
Arteta hefur ekki enn stýrt Arsenal til sigurs á Anfield. Getty

Arsenal sækir Liverpool heim í stórleik dagsins í enska fótboltanum. Skytturnar hafa ekki átt sjö dagana sæla á Anfield.

Liverpool vann 1-0 sigur í leik liðanna á síðustu leiktíð á Anfield, í ágúst í fyrra. Arsenal hefur ekki gengið vel á Anfield og hefur spilað 13 leiki í röð á vellinum án þess að fagna sigri.

Síðast vann Arsenal sigur á vellinum í september árið 2012.

Úrslit Liverpool og Arsenal á Anfield frá 2012

  • Liverpool 0-2 Arsenal (september 2012)
  • Liverpool 5-1 Arsenal (febrúar 2014)
  • Liverpool 2-2 Arsenal (desember 2014)
  • Liverpool 3-3 Arsenal (janúar 2016)
  • Liverpool 3-1 Arsenal (mars 2017)
  • Liverpool 4-0 Arsenal (ágúst 2017)
  • Liverpool 5-1 Arsenal (desember 2018)
  • Liverpool 3-1 Arsenal (ágúst 2019)
  • Liverpool 3-1 Arsenal (september 2020)
  • Liverpool 4-0 Arsenal (nóvember 2021)
  • Liverpool 2-2 Arsenal (apríl 2023)
  • Liverpool 1-1 Arsenal (desember 2023)
  • Liverpool 2-2 Arsenal (maí 2025)
  • Liverpool 1-0 Arsenal (ágúst 2025)

Liðin höfðu gert þrjú jafntefli á Anfield í röð áður en Liverpool vann leik liðanna í ágúst í fyrra. Fyrir það hafði Liverpool unnið sex deildarsigra í röð gegn Skyttunum á Anfield milli 2017 og 2021.

Mikel Arteta, þjálfari Arsenal, hefur stýrt liðinu níu sinnum á Anfield í öllum keppnum. Hann hefur gert fjögur jafntefli og tapað fimm sinnum.

Arsenal vann Liverpool að vísu á Anfield undir hans stjórn í enska deildabikarnum í október 2020 eftir vítaspyrnukeppni. Þeim leik lauk 0-0 og Arsenal vann 5-4 í vítaspyrnukeppni.

Liverpool og Arsenal mætast klukkan 16:30 í dag og leikurinn er sýndur beint á Sýn Sport. Bein útsending hefst klukkan 16:00.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×