Hafi ráðist á sambýliskonu sína á Tenerife Árni Sæberg skrifar 2. nóvember 2026 16:19 Frá Tenerife. Myndin tengist fréttinni ekki með beinum hætti. Getty/Walter Bibikow Karlmaður hefur verið ákærður fyrir brot í nánu sambandi með því að hafa á endurtekinn hátt ógnað lífi, heilsu og velferð barnsmóður sinnar og þáverandi og síðar fyrrverandi sambýliskonu árið 2024. Honum er meðal annars gefið að sök að hafa ráðist á konuna á hótelherbergi á Tenerife, sent henni ærumeiðandi skilaboð um ætlað framhjáhald hennar og að hafa stolið öllum dekkjum undan bíl hennar.
Í ákærunni, sem þingfest var í Héraðsdómi Reykjaness í dag, segir að maðurinn hafi í janúar 2024 á hótelherbergi á Tenerife veist með ofbeldi að konunni með því að beita líkamsþunga sínum gegn henni og setjast klofvega yfir hana, setja hné sín yfir hendur hennar og halda henni þannig fastri í gólfinu, kýlt hana margsinnis í andlitið ásamt því að hafa tekið hana kyrkingartaki þannig að hún náði ekki andanum. Allt hafi þetta verið með þeim afleiðingum að konan hlaut áverka víðs vegar um líkamann, mar og bólgu í andliti við vinstra auga, mar víðs vegar á báðum handleggjum, áverka á hálsi og mar víðs vegar á fótunum. Sendi skilaboð á móður konunnar Maðurinn er einnig ákærður fyrir að hafa viðhaft ærumeiðandi ummæli um konuna með innleggi á ótilgreinda Facebooksíðu, skilaboðum til móður konunnar og skilaboðum til konunnar sjálfrar. Skilaboðin snúast aðallega um ásakanir mannsins í garð konunnar um að hún hafi haldið fram hjá honum. Meðal ummælanna eru eftirfarandi: „Er litla hóran hjá þér Til hamingju að hafa eignast svo ógeðslegt eintak sem ríður endalaust framhjá maka sínum“ „Innilega til hamingju með daginn elska og takk fyrir að koma hreint fram við mig áðan með að þú sért búin að vera að ríða […] undanfarið en njótið Ég veit hvað ég hef misst og ég veit hvað hann fékk [hlægjandi lyndistákn]“ „Ég ætla að láta þig vita Þú ert ógeðslegasta manneskja sem ég hef kynnst Annan eins viðbjóð hef ég ekki kynnst og þekki ég marga ræflana Þú rændir öllu af heimilinu þu stalst peningum af mér Þú varst alltaf að halda framhjá mér...“ Skemmdi farandbikar og stal dekkjum Maðurinn er einnig ákærður fyrir eignaspjöll á munum í eigu konunnar, meðal annars fötum, höttum, málverkum og farandbikar, sem hún hafði til umráða. Loks er hann ákærður fyrir þjófnað í þremur liðum en hann er sagður hafa stolið fjórum hjólbörðum ásamt felgum undan bíl konunnar, einni rúðuþurrku af bíl hennar og loks einum hjólbarða og einni felgu undan bílnum.
Spánn Dómsmál Heimilisofbeldi Mest lesið Neitar að hafa mætt með fóstur í krukku Innlent Grunur um fjárkúgun í manndrápsmáli Innlent Feðgarnir handteknir í heimahúsi með alvarlega áverka Innlent Gekk á milli bíla og braut rúður Innlent „Það er svolítið seint í rassinn gripið“ Innlent Tjónið á Seltjarnarnesi hlaupi líklega á milljónum Innlent Hafi ráðist á sambýliskonu sína á Tenerife Innlent Sé ekki spurning um að finna Lúðvík heldur sækja hann Innlent „Skítapakk, spurning að maka þessu á bílinn næst“ Innlent Aðalmeðferð í máli Írisar Helgu að hefjast Innlent Fleiri fréttir Breytt vinnubrögð sköpuðu núning milli forstjóra og stjórnar Rafmagnið tekið af hjólhýsabyggðinni: „Þú gerir þetta ekki korteri fyrir jól“ Dánartilkynningin: „Ég myndi aldrei eyða fjörutíu þúsund krónum í þetta“ Ábendingar borist um skemmdarverkin Hafi ráðist á sambýliskonu sína á Tenerife „Takk fyrir vinskapinn, elsku Lárus“ Sé ekki spurning um að finna Lúðvík heldur sækja hann Tíst Ólafs Ragnars hafi verið mun alvarlegra „Skítapakk, spurning að maka þessu á bílinn næst“ „Það er svolítið seint í rassinn gripið“ Vilja leyfa eldri borgurum að ráða sér au pair Tjónið á Seltjarnarnesi hlaupi líklega á milljónum Flestir neita sök og umfangsmikil réttarhöld í vændum Feðgarnir handteknir í heimahúsi með alvarlega áverka Manndrápsmál, eltihrellir og söguleg kaup Neitar að hafa mætt með fóstur í krukku Gekk á milli bíla og braut rúður Fjölmenni í héraðsdómi Þriðjungur til Þórs og KA en rúmt prósent í menninguna Hreyfingar mælast og aukin vöktun Aðalmeðferð í máli Írisar Helgu að hefjast Skattlagning á erlenda tæknirisa enn til skoðunar Grunur um fjárkúgun í manndrápsmáli Skikkaður í varðhald í tengslum við manndráp í Breiðholti Mega ekki teygja starfsemi tjaldsvæðisins yfir götuna Leiddur fyrir dómara vegna mannsláts Göngustígar greiða leið um falda perlu við Stykkishólm Hafna nær öllum sem vilja troða upp á Airwaves Þekkt fyrirtæki nýtt í skipulagðri glæpastarfsemi Kryddsíldin fagnar fjörutíu ára afmæli Sjá meira