Innlent

Barði barn en málið fyrndist

Árni Sæberg skrifar
Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í málinu.
Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í málinu. Vísir/Vilhelm

Karlmaður hefur verið sýknaður af ákæru fyrir líkamsárás og barnaverndarlagabrot, með því að hafa barið dreng í höfuðið eftir að hann sparkaði upp hurð að heimili mannsins. Ekki var talið að maðurinn hefði vitað að um barn væri að ræða og því var ekki hægt að dæma hann fyrir barnaverndarlagabrot. Þar sem um minni háttar líkamsárás var að ræða var brotið fyrnt eftir að rannsókn þess lá niðri hjá lögreglu í þrjú ár. 

Í dómi Héraðsdóms Reykjavíkur, sem kveðinn var upp í dag, segir að maðurinn hafi verið ákærður fyrir líkamsárás og barnaverndarlagabrot, með því að hafa, föstudaginn 17. júní 2022, innandyra í Kópavogi veist með ofbeldi að drengnum og slegið hann með krepptum hnefa í höfuðið, með þeim afleiðingum að hann hlaut heilahristing og yfirborðsáverka á höfði.

Í niðurstöðukafla dómsins segir að málsatvik séu að mestu óumdeild og maðurinn hafi frá upphafi gengist við því að hafa slegið drenginn hnefahöggi í höfuðið. Samræmist það gögnum málsins. Háttsemi hans sé rétt heimfærð undir ákvæði almennra hegningarlaga um minni háttar líkamsárás. 

Hafi ekki vitað að um barn væri að ræða

Af hálfu mannsins sé hins vegar byggt á því að hann hafi hvorki vitað né mátt vita um aldur drengsins og því skorti saknæmisskilyrði varðandi ætluð brot á barnaverndarlögum og beri því að sýkna hann af þeirri háttsemi. Sýkna af broti á barnaverndarlögum leiði til þess að brot gegn líkamsárásarákvæði almennra hegningarlaga teljist fyrnt, þar sem tveggja ára fyrningartími hafi verið löngu liðinn er ákært var í málinu. 

Enn fremur hafi maðurinn vísað til neyðarvarnar vegna aðdraganda háttseminnar en hann hafi verið skelfingu lostinn þegar hurðinni að heimili hans hafi skyndilega verið sparkað upp. Í dóminum er haft eftir drengnum að hann hafi ætlað að gera dyraat hjá manninum.

Tveir drengjanna hærri en maðurinn

Þá segir að atburðarásin umrætt kvöld hafi verið hröð eftir að drengurinn sparkaði upp hurðinni að íbúð mannsins. 

„Liggur fyrir að brotaþoli og félagar hans voru hettuklæddir og að minnsta kosti tveir þeirra voru hávaxnari en ákærði. Þá hefur ekki annað sannast en að ákærði hafi staðið aftan við brotaþola er hann sló hann hnefahöggi í höfuðið nokkrum sekúndum eftir að hurðinni var sparkað upp. Ákærði hefur staðfastlega hafnað því að hafa áttað sig á að um væri að ræða pilta á unglingsaldri, en kveðst hafa róast um leið og hann áttaði sig á að svo væri. Fær sá framburður stoð í framburði vitna. Að mati dómsins er ósannað að ákærði hafi mátt vita um aldur brotaþola eins og atvikum var háttað. Er því óhjákvæmilegt að sýkna ákærða af broti gegn barnaverndarlögum.“

Ekkert að frétta af rannsókn í tæp þrjú ár

Þá segir að brot mannsins sé réttilega aðeins heimfært sem minni háttar líkamsárás, sem varði fangelsi allt að einu ári. Samkvæmt almennum hegningarlögum fyrnist brot sem ekki varðar lengri fangelsisvist en einu ári á tveimur árum.

Ekki verði litið öðruvísi á en að rannsókn málsins hafi stöðvast um óákveðinn tíma eftir að skýrsla var tekin af drengnum í Barnahúsi í desember árið 2022, nokkrum mánuðum eftir atvik málsins. Því hafi tveggja ára fyrningartími brotsins verið liðinn þegar skýrslur voru teknar af vitnum í nóvember 2025 og brotið því fyrnt þegar ákæra var gefin út 1. júní 2026. 

Af þeim sökum verði maðurinn sýknaður af öllum kröfum ákæruvaldsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×