Fylgi Samfylkingar dregst saman í nýrri könnun Maskínu

Fylgi Samfylkingarinnar dregst saman í nýrri könnun Maskínu og mælist tuttugu og fimm prósent. Fylgið hefur ekki verið lægra í eitt ár og hefur lækkað um sex prósentustig frá því að það var hæst í september í fyrra. Flokkurinn er þó enn langstærstur en á eftir er Miðflokkur með um átján prósent. Fylgi Miðflokksins helst svipað á milli kannana en flokkurinn hefur þó tapað fjórum prósentustigum síðan í janúar þegar hann mældist mest með 22 prósent. Fylgi annarra flokka helst svipað á milli kannana, Flokkur fólksins nær þó smá viðspyrnu og fer upp í tæp sex prósent eftir að hafa mælst undir fimm prósentum í síðustu könnunum. Sjálfstæðisflokkurinn mælist áfram með sextán prósent og Viðreisn með fjórtán. Könnunin var gerð eftir að Lilja Dögg Alfreðsdóttir tók við sem formaður Framsóknar en fylgi flokksins haggast þó ekki og stendur áfram í sjö prósentum, líkt og í síðustu könnunum. Þá mælast Píratar með fimm prósent, Vinstri Græn með ríflega fjögur og Sósíalistar með 3,5 prósent.

0
01:11

Vinsælt í flokknum Fréttir