Erna Hrönn: „Ímyndaði mér að ég væri með þeim í Hljóðrita 1980“
Kalli Olgeirs fagnaði afmælisdeginum sínum í vikunni með útgáfu á glænýju lagi sem nefnist „Tvisvar verður sá feginn“. Innblásturinn að laginu er „Sönn ást“ sem samið er af Magga Eiríks, pródúserað af Gunna Þórðar og sungið af Björgvini Halldórs en allir kvöddu þeir fyrr á árinu. Ekki nóg með að Kalli semji og syngi lagið heldur spilar hann líka á öll hljóðfærin fyrir utan sóló-gítarinn sem Stebbi Magg, sonur Magga Eiríks, spilaði.