Juventus - Galatasaray 3-2
Galatasaray vann einvígið gegn Juventus, samtals 7-5, um sæti í 16-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu. Juventus var 3-0 yfir eftir venjulegan leiktíma í gær, eftir 5-2 tap í fyrri leiknum, og því var framlengt en gestirnir skoruðu svo tvö mörk í framlengingunni.