Hræddir um að Reykjavíkurborg gangi á bak orða sinna
Íbúar í Skerjafirði eru hræddir um að Reykjavíkurborg gangi á bak orða sinna og hefji landfyllingu á svæðinu án tilskilinna leyfa. Þrátt fyrir mikla andstöðu íbúa stefnir allt í að síðasta náttúrulega fjara suðurhluta Reykjavíkur verði að landfyllingu.