Ísland í dag - Ella sjónvarpsstjarna Skjás Eins slær í gegn í útlöndum.

Athafnakonan Elín María Björnsdóttir er þekktust hér á landi sem gríðarlega vinsæl sjónvarpsstjarna á sjónvarpsstöðinni Skjá Einum. En í dag er hún þekkt sem alþjóðlegur leiðtogamarkþjálfi og búin að vinna úti um allan heim með stjórnendateymum og fyrirtækjum og alþjóðlegum leiðtogum við mjög góðan orðstýr. Nú er Ella eins og hún er oftast kölluð búin að stofna ráðgjafarfyrirtækið Valhalla sem er alveg einstakt og með skrifstofur í einu af elstu og fallegustu húsum landsins Gimli á Bernhöftstorfunni. Vala Matt fór fyrir Ísland í dag og skoðaði hvað Ella er að gera þessa dagana um allan heim og hvernig hún er búin að innrétta húsið á alveg einstaklega fallegan og klassískan hátt. Ekki missa af Íslandi í dag í kvöld klukkan 18.55 strax á eftir fréttum og sporti.

148
13:42

Vinsælt í flokknum Ísland í dag