Sagður hafa lofað hryðjuverkamenn
Nítján ára gamall karlmaður sem er í haldi lögreglunnar í Kaliforníu í Bandaríkjunum eftir skotárás í bænahúsi gyðinga í gærkvöldi, er sagður hafa lofað hryðjuverkamenn sem drápu múslima í moskum á Nýja-Sjálandi og gyðinga í sýnagógu í Pittsburg. Einn er látinn eftir árásina og þrír særðir eftir árásina í gær. Árásarmaðurinn notaði hríðskotariffil til að skjóta á gesti bænahúss í bænum Poway, skammt frá borginni San Diego. Árásin átti sér stað á síðasta degi páskahátíðar gyðinga. Vísbendingar eru sagðar um að riffill árásarmannsins hafi staðið á sér í árásinni og að það hafi mögulega komið í veg fyrir enn meira blóðbað. Árásarmaðurinn flúði af vettvangi en gaf sig síðar fram við lögreglu. Hann hefur ekki komist í kast við lögin áður. Washington Post segir að svo virðist sem að árásarmaðurinn hafi birt einhvers konar stefnuyfirlýsingu á netinu. Þar hafi hann sagst vera innblásinn af hryðjuverkunum í Christchurch á Nýja-Sjálandi í síðasta mánuði og fjöldamorði vopnaðs manns sem skaut ellefu manns til bana og særði sex aðra í bænahúsi gyðinga í Pittsburgh í fyrra. Það var mannskæðasta árás í gyðinga í sögu Bandaríkjanna.