Taka í gegn fjölskylduhús í Eyjum með einstöku útsýni
Í síðasta þætti af Gulla Byggi byrjaði Gulli að fylgjast með framkvæmdum í Vestmannaeyjum. Um er að ræða einbýlishús hátt upp á heimakletti með útsýni sem varla er hægt að keppa við. Húsið ber nafnið Suðurgarður en hjónin Guðrún Möller og Ólafur Árnason standa í framkvæmdunum.