Hvernig verður páskaveðrið?
Veðurviðvaranir hafa enn og aftur verið gefnar út vegna hríðar, snjókomu og skafrennings fyrir annað kvöld. Gular viðvaranir verða í gildi á Vesturlandi og Suðausturlandi í kvöld og taka við á Austfjörðum á miðnætti. Þá verður nokkurra klukkustunda hlé áður en viðvaranir taka aftur gildi annað kvöld á höfuðborgarsvæðinu, Suðurlandi og Vestfjörðum.