Dyngjan rétt fyrir útsendingu
Meðfylgjandi myndskeið var tekið í gærkvöldi á settinu hjá Dyngju-dömum Skjás eins, Nadiu Banine og Björk Eiðsdóttur, rétt áður en útsending þáttarins Dyngjan hófst klukkan 21:05. Gestir kvöldsins, Guðrún Hjörleifsdóttir miðill og Sigríður Klingenberg spákona, voru nýbúnir að koma sér fyrir ásamt þáttastjórnendum.