Fundu byssur í bílum og handtóku fimm Sérsveit og lögregla handtóku fimm manns á Akureyri síðdegis í dag. Skotvopn fundust í tveimur bílum. Innlent 2. ágúst 2026 15:47
Siggi stormur sár en dregur ekki í land Siggi stormur segir að veðurspár fyrir verslunarmannahelgina hafi í megindráttum gengið eftir og Akureyringar geti vel við unað. Skipuleggjendur á Norðurlandi eru ósáttir og vilja meina að ótímabærar yfirlýsingar hafi fælt gesti frá. Lögreglan telur að fleiri séu á Akureyri nú en í fyrra. Innlent 2. ágúst 2026 12:32
Handtóku níu og nutu liðsinnis sérsveitar vegna staks eggvopns Níu voru handteknir og einn vistaður í fangageymslu vegna vopnalagabrots á tónleikasvæði á Akureyrarvelli í gærkvöld. Fjórir voru handteknir í bænum vegna minniháttar fíkniefnalagabrots og einn þeirra vistaður í fangageymslu. Einnig var tilkynnt um stórfellda líkamsárás þar sem einstaklingur endaði með beinbrot í andliti. Innlent 2. ágúst 2026 09:01
Tap vegna ótímabærra veðurspáa hlaupi á milljónum Skipuleggjendur útihátiða á Norðurlandi eru búnir að fá sig fullsadda af glæfralegum yfirlýsingum veðurspámanna að sunnan. Sérstaklega þykir þeim veðurspá Sigurðar Ragnarssonar, Sigga Storms, súr í brotið. Tap vegna veðurspárinnar hlaupi á milljónum fyrir sveitarfélögin þrátt fyrir blankalogn og heiðan himinn. Innlent 1. ágúst 2026 20:09
Sex fíkniefnamál komu upp í Eyjum Sex fíkniefnamál komu upp á Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum í gær og hafði lögregla afskipti af einum vegna ölvunaraksturs. Einnig var nokkrum veitt aðstoð vegna ölvunar. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglu en fíkniefnamálin eru sögð minniháttar. Rólegra virðist hafa verið hjá lögreglunni fyrir norðan. Innlent 1. ágúst 2026 11:16
Niceair horfir til Evrópu eftir brösuga byrjun Í fréttatilkynningu frá flugfélaginu Niceair kemur fram að starfsemi á Íslandi hefjist í fyrsta lagi vorið 2027. Sagt er að flug þess á meginlandinu hefjist nú í nóvember en ekki er upplýst milli hvaða staða verður flogið. Viðskipti innlent 31. júlí 2026 13:50
Lygilegri baráttu gegn easyJet lauk með óvæntum sigri Akureyringur gafst ekki upp eftir að hafa talið flugfélagið easyJet hafa svínað á sér og rukkað vegna handfarangurstaskna sem virkuðu of stórar. Hann taldi brögð í tafli og eftir heilmikla þrautargöngu hafði hann að lokum óvæntan sigur. Neytendur 28. júlí 2026 16:55
Senda norðlenskt rusl úr landi Íslenska gámafélagið opnaði fyrr á árinu stóra endurvinnslustöð á Akureyri þaðan sem sorp, sem áður var urðað, er sent til húsaupphitunar í Danmörku. Þá er gler notað í malbik. Innlent 27. júlí 2026 22:01
Þúsund sjúkraflug á árinu: „Fyrsta skipti sem við brjótum þann múr“ Sjúkraflugferðum hefur fjölgað umtalsvert á milli ára en slökkviliðsstjóri á Akureyri segir ástæðurnar vera margar. Það hafi hátt í níutíu flugferðir verið skráðar það sem af er liðnum júlímánuði, sem sé met, en gott veður víða um land, ferðamannastraumur og minni heilbrigðisþjónusta í boði á landsbyggðinni sé meðal þess sem valdi miklum fjölda ferða. Það sé nauðsynlegt að auka fjármagn til að tryggja góða þjónustu. Innlent 25. júlí 2026 18:07
Kominn til Akureyrar eftir alvarlegt slys á skemmtiferðaskipi Þyrluáhöfn Landhelgisgæslunnar var kölluð út að skemmtiferðaskipi vegna farþega sem lenti í alvarlegu slysi. Hann var hífður upp í þyrlu skömmu fyrir klukkan ellefu í kvöld og fluttur á Sjúkrahúsið á Akureyri. Líðan hans er sögð stöðug. Skipið var skammt frá Húsavík. Innlent 23. júlí 2026 21:34
Stúlkan fannst heil á húfi Stúlka, sem björgunarsveitir og lögreglan á Norðurlandi eystra leitaði að á miðvikudagskvöld við Akureyri er komin í leitirnar. Innlent 23. júlí 2026 01:09
Lögreglan á Norðurlandi eystra lýsir eftir fjórtán ára stúlku Lögreglan á Norðurlandi eystra lýsir eftir 14 ára stúlku. Talið er að hún sé klædd í gráa peysu og gallabuxur. Innlent 22. júlí 2026 22:19
Lögregla og björgunarsveitir leita að manneskju á Akureyri Lögreglan á Norðurlandi eystra leitar manneskju á Akureyri. Allar björgunarsveitir á Eyjafjarðarsvæðinu hafa verið kallaðar út til aðstoðar við leitina. Innlent 22. júlí 2026 21:21
Undirbúa sig fyrir töluvert fleiri gesti á Einni með öllu Lögreglan á Akureyri býst við að töluverður fjöldi fólks muni leggja leið sína norður um verslunarmannahelgina. Undirbúningur, sem meðal annars felst í auknu myndavélaeftirliti, er þegar hafinn. Innlent 22. júlí 2026 12:15
Telur bikblæðingu hafa valdið brunanum Bifhjólakappinn Ómar Geirsson telur að bikblæðing hafi orðið til þess að eldur kviknaði í bifhjóli hans, sem hafði skömmu áður staðist ástandsskoðun með glæsibrag. Innlent 17. júlí 2026 12:49
Verðum við að sætta okkur við meira af bílhræjum og verri umgengni? Nú liggja fyrir lög um einföldun regluverks og aukna skilvirkni eftirlits með hollustuháttum og mengunarvörnum. Markmið einföldunar eru oft góð og gild. Hins vegar vakna spurningar um hvort verið sé að veikja úrræði sveitarfélaga og eftirlitsaðila á sama tíma og vandamál vegna slæmrar umgengni fara vaxandi. Skoðun 17. júlí 2026 11:02
Maðurinn sem sóttur var í Glerárdal er látinn Slasaður hjólreiðamaður sem sóttur var í Glerárdal við Akureyri í gærkvöldi er látinn. Innlent 17. júlí 2026 10:41
Yfir fimm hundruð ára gamalt kort af Íslandi Elsta þekkta prentaða kortið af Íslandi er nú til sýnis á Minjasafninu á Akureyri. Safnstjórinn segir ótrúlegt hve vel varðveitt kortið hefur verið. Innlent 16. júlí 2026 21:11
Þyrla og björgunarsveitir kallaðar út í Eyjafirði Slasaður maður var fluttur undir læknishendur með sjúkraflugi á níunda tímanum í dag en þyrla Landhelgisgæslunnar og allar björgunarsveitir í Eyjafirði voru kallaðar út. Innlent 16. júlí 2026 21:08
Fór af hjólinu skömmu áður en það brann til kaldra kola á þjóðveginum Mótorhjólakappinn Ómar Geirsson varð var við bilun í fornhjólinu sínu á leið heim frá Akureyri en stuttu seinna fór að rjúka undan hjólinu að aftan. Mótorhjólið brann til kaldra kola fyrir augunum á honum en hann hafði keypt það skömmu áður og var nýkominn með það úr ástandsskoðun. Innlent 15. júlí 2026 22:24
Ljóðrænt hótel á Akureyri Íslensk ljóðlist er í hávegum höfð á nýju hóteli í miðbæ Akureyrar. Handskrifuð ljóð og bréf frá Davíði Stefánssyni prýða veggi hótelsins. Lífið 14. júlí 2026 20:00
„Þetta mun breyta öllu fyrir okkur“ KA mun vígja nýja stúku síðar í mánuðinum og eftir ár verður ásýnd svæðisins orðin allt önnur. Sport 14. júlí 2026 09:31
Krummafótur um helgina Sviðslistahátíðin Krummafótur fer fram í fyrsta sinn á Akureyri um helgina. Um er að ræða grasrótarhátíð og fer opnunarhátíðin fram heima hjá stofnanda hátíðarinnar. Lífið 10. júlí 2026 16:27
Viðbragðsáætlun virkjuð vegna fjarskiptaleysis á Sjúkrahúsinu á Akureyri Viðbragðsáætlun var virkjuð á Sjúkrahúsinu á Akureyri í dag vegna fjarskiptavanda. Innlent 6. júlí 2026 09:57
„Við erum sáttir“: Gönguhóparnir stóðu fyrir sínu Yfirlögregluþjónn á Vesturlandi er sáttur eftir tónlistarhátíðina Lopapeysuna sem fór fram á Akranesi um helgina. Gönguhópar skiluðu sínu. Innlent 5. júlí 2026 13:54
„Fyllerísrugl“ endaði með handtöku og beinbroti Fjórir karlmenn á þrítugs- og fertugsaldri voru handteknir á Akureyri vegna stórfelldrar líkamsárásar í gærkvöldi. Tveir voru fluttir á bráðamóttökuna með beinbrot. Innlent 4. júlí 2026 17:10
„Klukkan er fimm einhvers staðar“ Pollamótið hófst með pompi og prakt á Akureyri í dag. Elstu keppendurnir eru á sextugs- og sjötugsaldri en sumir voru ekki með hugann endilega við boltann. Lífið 3. júlí 2026 20:44
Bylgjulestin fer norður á morgun Bylgjulestin brunar nú til Akureyrar og verður í beinni útsendingu á morgun milli klukkan 12 og 16 á Pollamótinu og N1 mótinu. Lífið samstarf 3. júlí 2026 10:59
Skilur eftir minningar alveg eins og leikurinn Tvö þúsund strákar í fimmta flokki í fótbolta munu keppa á N1-mótinu á Akureyri um helgina. Mótið hófst í dag og bærinn er fullur af fólki. Framkvæmdastjóri íþróttafélagsins KA segir mótið fara mjög vel af stað og minningarnar verði ekki síður til utan vallar. Fótbolti 1. júlí 2026 20:32
Mikilvægt framfaraskref fyrir allt landið Skóflustunga vegna byggingar á nýrri álmu við Sjúkrahúsið á Akureyri, SAk er mikið fagnaðarefni. Með því hefst framkvæmdin formlega og eru það tímamót sem lengi hefur verið stefnt að og marka upphafið að einu mikilvægasta heilbrigðisverkefni á landsbyggðinni. Skoðun 28. júní 2026 13:32