„Maður vinnur sér inn heppni“ Åge Hareide var hæstánægður eftir 4-1 sigur Íslands á Ísrael í kvöld en sigurinn tryggir Íslandi sæti í úrslitaleik gegn Úkraínu á þriðjudag. Sigurliðið fer á Evrópumótið í Þýskalandi næsta sumar. Fótbolti 21. mars 2024 22:42
„Smá heppni með okkur og góður karakter“ Guðlaugur Victor Pálsson, leikmaður íslenska karlalandsliðsins í fótbolta, var eðlilega stoltur af liðinu eftir magnaðan 4-1 sigur gegn Ísrael í kvöld. Með sigrinum er Ísland nú aðeins einum sigri frá sæti á EM í sumar. Fótbolti 21. mars 2024 22:37
„Auðvelt að hlaupa vitandi af honum“ Guðmundur Þórarinsson átti góðan leik í vinstri bakverðinum hjá íslenska liðinu í sigrinum á Ísrael í dag. Hann sagðist hafa hugsað að Eran Zahavi myndi klúðra áður en hann tók seinni vítaspyrnu Ísraela í leiknum. Fótbolti 21. mars 2024 22:27
Samfélagsmiðlar yfir leiknum: Ísland fer á EM Íslenska karlalandsliðið í fótbolta mætti því ísraelska í undanúrslitum umspilsins um laust sæti á EM sem fram fer í Þýskalandi nú í sumar. Eins og svo oft áður voru Íslendingar virkir á samfélagsmiðlinum X, áður Twitter, á meðan leik stóð. Fótbolti 21. mars 2024 22:22
Einkunnir Íslands: Albert bar af í endurkomunni Íslenska karlalandsliðið í knattspyrnu vann magnaðan 4-1 sigur er liðið mætti Ísrael í undanúrslitum í umspili um laust sæti á EM sem fram fer í Þýskalandi í sumar. Fótbolti 21. mars 2024 22:12
Sverrir Ingi: Heppnin með okkur og við ætlum á Evrópumótið Ísland vann 4-1 í umspilsleik gegn Ísrael um sæti á Evrópumótinu í sumar. Sverrir Ingi, fyrirliði liðsins, sagði heppnina hafa verið með liðinu en var afar ánægður með karakterinn sem liðið sýndi og kvaðst fullur sjálfstrausts fyrir úrslitaleikinn gegn Úkraínu. Fótbolti 21. mars 2024 22:07
Úkraína mætir Íslandi í úrslitaleiknum Það er orðið ljóst að Úkraína mun mæta Íslandi í úrslitaumspilsleik fyrir Evrópumótið í sumar. Leikurinn hefði farið fram í Úkraínu en þar sem þeir geta ekki leikið heima fyrir mun leikurinn fara fram í borginni Wroclaw í Póllandi. Fótbolti 21. mars 2024 21:46
Pólland vann gegn tíu Eistum og mætir Wales Ísland er ekki eina liðið sem keppir í umspili Evrópumótsins. Wales mun mæta Póllandi og Georgía mætir Grikklandi í úrslitaleikjum um sæti á EM í sumar. Fótbolti 21. mars 2024 21:43
Umfjöllun: Ísrael - Ísland 1-4 | Albert skaut Íslandi í úrslitaleik Ísland er á leið í úrslitaleik um sæti á Evrópumótinu í Þýskalandi í sumar eftir 4-1 sigur á Ísrael í kvöld. Ísland átti frábæra endurkomu í leiknum eftir að hafa lent undir í fyrri hálfleik. Fótbolti 21. mars 2024 21:42
Sjáðu mörkin: Albert hlóð í þrennu í endurkomunni Íslenska karlalandsliðið í knattspyrnu vann magnaðan 4-1 sigur er liðið mætti Ísrael í undanúrslitum umspilsins fyrir EM sem fram fer í Þýskalandi í sumar. Fótbolti 21. mars 2024 20:42
Albert, Hákon og Orri byrja allir í kvöld Åge Hareide, þjálfari íslenska karlalandsliðsins í fótbolta, byrjar með mjög sókndjarft lið í leiknum á móti Ísraelsmönnum í Búdapest í kvöld. Fótbolti 21. mars 2024 18:33
Bjarki Már leitar að Tólfunni í Búdapest Bjarki Már Elísson, landsliðsmaður í handbolta, gerði sér ferð frá heimabæ sínum Veszprém í Ungverjalandi til höfuðborgarinnar Búdapest til að líta umspilsleik Íslands augum. Fótbolti 21. mars 2024 17:18
„Ekkert að stressa sig of mikið á því hvað er að gerast í kringum þá“ „Það er búið að bíða eftir þessu í mjög langan tíma og núna er bara komið að þessu og það er bara geggjað og mikill spenningur,“ segir Arnór Ingvi Traustason landsliðsmaður í knattspyrnu. Fótbolti 21. mars 2024 12:30
Sá föður sinn skrifa söguna: Reiðubúinn í að rita næsta kafla Andri Lucas Guðjohnsen, atvinnu- og landsliðsmaður í fótbolta segir að draumur sinn myndi rætast ef íslenska landsliðinu tækist að tryggja sér sæti á komandi Evrópumóti í fótbolta. Ísland mætir Ísrael í undanúrslitum umspils um EM sæti í kvöld. Fótbolti 21. mars 2024 11:01
Vill hafa sérstakar gætur á Blikabana í kvöld Það er ekki mikið um heimsþekkt nöfn í landsliði Ísraela, ekki frekar en því íslenska, en landsliðsþjálfarinn Åge Hareide vill að sínir menn hafi sérstakar gætur á 36 ára gömlum framherja mótherjanna í Búdapest í kvöld. Fótbolti 21. mars 2024 11:01
Er stress í liði Íslands? „Öðruvísi spennustig en maður er vanur“ Arnór Sigurðsson, landsliðsmaður Íslands í fótbolta, getur ekki beðið eftir því að halda út á völl og leika gegn Ísrael í mikilvægum undanúrslitaleik í umspili um laust sæti á EM. Möguleiki er á því að leikurinn fari alla leið í vítaspyrnukeppni, Arnór hefur reynslu af þeim en vill helst sleppa við að halda í svoleiðis keppni í þessum leik. Klára frekar bara verkefnið áður en til þess myndi koma. Fótbolti 21. mars 2024 10:01
Leikdagur í Búdapest: Kjartan Henry rekinn á hótelinu Ísland mætir Ísrael í undanúrslitum umspils um sæti á Evrópumóti karla í fótbolta í kvöld. Okkar menn í Búdapest hituðu upp fyrir leikinn. Fótbolti 21. mars 2024 09:30
Utan vallar: Ömurlegt kerfi bitnar enn á Íslandi (eða Ísrael) Glópalán ræður alveg óþolandi miklu varðandi það hvaða Evrópuþjóðir komast í lokakeppnir stórmóta í fótbolta, í gegnum þær umspilsleiðir sem nú er notast við. Þetta hefur bitnað á Íslandi með ömurlegum hætti. Fótbolti 21. mars 2024 09:05
Áfall fyrir Ísland: Jóhann fyrirliði ekki með í kvöld Jóhann Berg Guðmundsson verður ekki með fyrirliðabandið í leiknum mikilvæga við Ísrael í Búdapest í kvöld, í undanúrslitum EM-umspilsins í fótbolta. Fótbolti 21. mars 2024 08:59
Ofsóttur í bílakjallara og á flugvelli en dæmir leik Íslands í sömu borg í kvöld Enski dómarinn Anthony Taylor verður með flautuna í leiknum mikilvæga í kvöld þegar Ísland mætir Ísrael í undanúrslitum EM-umspils karla í fótbolta. Fótbolti 21. mars 2024 07:34
Búnir að æfa vítaspyrnur og Åge búinn að velja þá sem taka vítin Ísland mætir Ísrael í undanúrslitaleik umspils um laust sæti á EM annað kvöld og þar verður spilað til þrautar um það hvort liðið kemst í úrslitaleik um laust sæti á EM. Fótbolti 20. mars 2024 13:00
Hareide fann enga pressu frá KSÍ: „Stúlkan var í fullum rétti“ Norðmaðurinn Åge Hareide, landsliðsþjálfari Íslands í fótbolta, segir að sér hafi þótt nauðsynlegt að senda út yfirlýsingu í gær til að skýra mál sitt vegna ummæla í tengslum við kæru gegn Alberti Guðmundssyni. Fótbolti 20. mars 2024 12:37
Jóhann Berg fékk högg á lærið Jóhann Berg Guðmundsson, fyrirliði íslenska landsliðsins, sagði frá því í viðtali við blaðamann Vísis að hann sé að glíma við meiðsli. Fótbolti 20. mars 2024 12:18
Aðeins átta hundruð manns sjá Ísland mæta Ísrael Segja má að hvorugt liðanna verði á heimavelli á morgun, þegar Ísland mætir Ísrael í undanúrslitum umspilsins mikilvæga um sæti á EM karla í fótbolta. Fótbolti 20. mars 2024 11:18
Svona var fundur KSÍ fyrir EM-umspilið Åge Hareide landsliðsþjálfari og fyrirliðinn Jóhann Berg Guðmundsson sátu fyrir svörum á blaðamannafundi í Búdapest, daginn fyrir leik Íslands við Ísrael í umspilinu um sæti á EM í fótbolta. Fundurinn var í beinni útsendingu á Vísi. Fótbolti 20. mars 2024 10:46
Einn dagur í EM-umspil: Aðeins fimm voru með liðinu á síðasta EM Íslenska karlalandsliðið í fótbolta er aðeins tveimur sigurleikjum frá því að tryggja sér sæti á Evrópumótinu í Þýskalandi í sumar. Þetta er þó mikið breytt lið frá því sem skrifaði nýjan kafla í íslensku fótboltasöguna fyrir tæpum átta síðan. Fótbolti 20. mars 2024 10:30
Ísraelar segja Ísland vera að drukkna í krísu Á ísraelska vefmiðlinum One má finna ítarlegan greinarstúf sem ber nafnið Ísland í sídýpkandi krísu. Þar eru málavendingar íslenska karlalandsliðsins í knattspyrnu undanfarin ár rekin en á morgun munu Ísrael og Ísland mætast í undanúrslitum umspils um sæti á EM 2024. Fótbolti 20. mars 2024 10:09
Telja minnstar líkur á að Ísland fari á EM Íslenska karlalandsliðið í fótbolta á erfitt verk fyrir höndum við að tryggja sér einn af síðustu farseðlunum á EM í Þýskalandi. Fótbolti 20. mars 2024 08:00
Niðurfelling kærð en KSÍ leyfir Alberti að spila Stjórn KSÍ hefur ákveðið að heimila þátttöku Alberts Guðmundssonar í leiknum við Ísrael á fimmtudag, í umspili um sæti á EM, þrátt fyrir að niðurfelling á kynferðisbrotamáli gegn honum hafi verið kærð. Fótbolti 19. mars 2024 11:04
„Held að einhver hafi fengið sér Svarta dauða fyrir þann leik“ Landsliðsþjálfarinn Åge Hareide er á því að Ísland hafi oft sýnt góðar frammistöður, á löngum köflum, í leikjunum í undankeppni EM í fótbolta í fyrra. Liðið hafi hins vegar gert of mörg kjánaleg mistök, og nýtt færin illa, og því endað með of fá stig. Fótbolti 19. mars 2024 09:34