Nú þarf að láta verkin tala Í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar er sérstaklega kveðið á um að taka verði á kynbundnum launamun. Ljóst er að langur vegur er frá því að þetta verkefni ríkisstjórnarinnar sé á einhverjum rekspöl. Þvert á móti kemur í ljós í nýrri launakönnun SFR - stéttarfélags í almannaþjónustu - að launamunur hefur aukist milli ára. Fastir pennar 16. september 2008 07:00
Fjötur eða frelsi Ég man ekki hvort ég var tólf eða þrettán ára þegar ég kom einhverju sinni hlaupandi upp stigann heima á Langholtsvegi, reif upp hurðina, skellti henni á eftir mér og tjáði mig í miklum ham um ómerkilegheit einnar vinkonu minnar. Mér hefði þótt hún skemmtileg og fín stelpa,en nú hefði mér borist til eyrna hvernig hún talaði um mig. Ég hefði greinilega ekki haft á réttu að standa. Fastir pennar 16. september 2008 06:00
Litlir kassar á lækjarbakka Fyrir nokkrum árum var ég í gleraugnabúð mikilli í Barcelona. Þá var pesetinn enn við lýði, gengi hagstætt og vöruúrval virtist hið mesta enda voru gleraugu uppi um alla veggi í þessari stóru og nýtískulegu verslun. Ég þóttist því hafa himin höndum tekið. Bakþankar 16. september 2008 05:00
Athyglisvert (vara)forsetaefni Frú Sarah Palin, varaforsetaefni ellibelgsins McCains, hefur ekki gert víðreist um veröldina. Bakþankar 15. september 2008 07:00
Afmörkuð listaverk? Kristinn E. Hrafnsson, myndlistarmaður og stjórnarmaður í LHÍ, skrifaði grein í Moggann 8. september þar sem hann átelur þau sem lýst hafa efasemdum um nýbyggingu Listaháskólans á Laugavegi. Hann krefst þess að byggingin sé "glæsilegt mannvirki" og sakar fólk um áhugaleysi, þekkingarskort og leti, segir að þau láti "hjá líða að rýna í formfræði, fagurfræði og hugmyndagrunn byggingarinnar". Fastir pennar 15. september 2008 06:45
Mörgum ofbýður Ákvörðun Árna M. Mathiesen fjármálaráðherra um að stefna ljósmæðrafélaginu fyrir félagsdóm vegna fjöldauppsagna er ber vott um mikla hörku í garð hóps sem augljóslega hefur setið eftir meðan aðrir hafa notið góðæris og uppsveiflu síðustu ára. Fastir pennar 13. september 2008 00:01
Nei Mesti trúverðugleikavandi ríkisstjórnarinnar á rætur í ólíkum viðhorfum stjórnarflokkanna til þess hvernig skipa eigi peningamálastjórninni til frambúðar. Sjálfstæðisflokkurinn hefur ekki alfarið horfið frá því mati að krónan geti dugað. Samfylkingin vill þar á móti taka upp evru. Fastir pennar 12. september 2008 08:00
Pilsaþytur Eflaust eru íslenskir karlmenn enn þá að jafna sig á því þegar Einar Ágúst steig á sviðið í Eurovision um árið íklæddur pilsi. Stolt þjóðarinnar, sem hefur í aldaraðir sannfært sjálfa sig um að hér búi mestu karlmenni veraldar, særðist þetta kvöld og fáir hafa látið sjá sig í slíku fati síðan. Bakþankar 12. september 2008 07:00
Við hvað eru menn hræddir? Það er út af fyrir sig gleðiefni að nú glittir í að reglur um skráningu eigna þingmanna líti dagsins ljós. Svo virðist þó sem reglur þessar verði í nokkru skötulíki þegar upp verður staðið. Fastir pennar 11. september 2008 10:04
Stríð er friður - kreppa er góðæri OMXI15 var 3.980,37 klukkan 13.30 þegar ég settist niður til að borða samlokuna mína eftir erfiðan morgun. Skynsemin segir að sjálfsögðu að tilbúin, bragðlaus og rándýr samloka úr kæliborði klukkubúðar sé það síðasta sem maður ætti að festa kaup á þegar úrvalsvísitölur falla allt í kringum mann og kreppan gægist yfir flísklæddu öxlina á afgreiðslustelpunni. En ég ræð bara ekki við mig. Bakþankar 11. september 2008 07:30
Hvaðan koma peningarnir? Fáar spurningar hafa verið lagðar jafnoft fyrir mig að undanförnu hvar sem ég kem. Danir spyrja: hvaðan komu peningarnir, sem gerðu Íslendingum kleift að kaupa hvert fyrirtækið á fætur öðru í Danmörku? - Magasin du Nord, Illum, Hotel d'Angleterre. Fastir pennar 11. september 2008 00:01
Krókurinn sem beygist Í Frakklandi hélt agúrkutíðin innreið sína í sumarbyrjun, þegar haldinn var síðasti ríkisstjórnarfundurinn. Við það tækifæri færði Carla Bruni öllum ráðherrunum, þrjátíu og átta að tölu, nýjasta geisladisk sinn „Eins og ekkert hafi gerst", og skýrðu fjölmiðlar frá þessari höfðinglegu gjöf. Fastir pennar 10. september 2008 06:00
Hreyfanlega vinnuaflið Íslenskt samfélag er þessar vikur og mánuði að ganga í gegnum merkilega tilraun sem aldrei hefur verið reynd áður hér á landi. Það má kalla hana: Hvernig hegðar hreyfanlegt vinnuafl sér í hnattvæddum heimi? Fastir pennar 10. september 2008 06:00
Húsráð gegn grámósku tilverunnar Gulltrygg aðferð til að gefa sjálfum sér jákvæðar strokur er að kaupa fallega skó. Sumum kann að virðast þetta heldur þunnildisleg sálfræði en reynslan hefur margsannað að glæsilegt skótau getur þurrkað upp vægan lífsleiða í einu vetfangi. Bakþankar 10. september 2008 05:00
Beðið eftir bununni Frammistöðukvíði getur víða komið fram og átt sér margvíslegar birtingarmyndir. Á útlenskunni nefnist þetta "performance anxiety“ og er gjarnan tengt óvissu manna um eigin getu í bólinu. Fastir pennar 10. september 2008 00:01
Vindingar Upplýst hefur verið að gera eigi breytingar á lögum um Ríkisútvarpið ohf. Markmiðið mun vera að takmarka hversu langt sú stofnun má ganga í að niðurgreiða auglýsingar með ríkisstyrkjum. Lengi hefur verið ljóst að Ríkisútvarpið fylgdi ekki réttum leikreglum samkeppnisréttarins. Þegar stofnuninni var breytt í hlutafélag varð þessi skekkja enn meiri en fyrr. Fastir pennar 9. september 2008 06:00
Flókin mál og einföld Þegar ég ligg ekki undir feldi kvalinn af áhyggjum af efnahagsmálum, menntamálum, stjórnmálum og framtíð þjóðarinnar er ég stundum að velta því fyrir mér af hverju eitthvað sé eins og það er. Dæmi: Af hverju eru svona margar og mismunandi mælieiningar í gangi? Bakþankar 8. september 2008 07:30
Eðli starfa Gunnar Björnsson, formaður samninganefndar ríkisins, gæti gert nánast hvern sem er að femínista. Haft var eftir honum í Morgunblaðinu á laugardaginn var að ekki ætti að fara eingöngu eftir menntun þegar komi að röðun stétta í launaflokka, heldur eigi "miklu frekar að taka mið af eðli starfa“. Fastir pennar 8. september 2008 07:00
Siðareglur á Alþingi Reykjavíkurborg ákvað nýlega að setja á fót nefnd til að undirbúa siðareglur borgarfulltrúa, og er það vel. Hugmyndin um sérstaklar siðareglur fyrir stjórnmálamenn er hvorki ný á nálinni, né séríslensk. Fastir pennar 8. september 2008 06:00
Bjallavirkjun er blöff Undir lok vikunnar kom fram, flestum að óvörum, að Landsvirkjun hefði áhuga á að stífla Tungnaá og mynda þrjátíu ferkílómetra uppistöðulón norðan friðlandsins að Fjallabaki. Lónið yrði með stærstu stöðuvötnum landsins en áætlað er að Bjallavirkjun, sem það á að þjóna, muni framleiða 46 megavött af orku. Fastir pennar 7. september 2008 07:00
Yes, she can Um leið og ég heyrði af Söru Palin varaforsetaefni repúblikana í Bandaríkjunum hugsaði ég með mér, almáttugur, hvernig ætlar konan að fara að þessu. Bakþankar 7. september 2008 07:00
Maður fólksins í landinu Orð geta stækkað menn og smækkað eftir atvikum. Orðið stækkaði Sigurbjörn Einarsson biskup. Hann var andans maður tuttugustu aldarinnar. Um það efast fáir. Síst er ofmælt að nafn hans sé við hlið þeirra sem fram til þessa hefur verið skipað á fremsta bekk kirkjusögunnar. Fastir pennar 6. september 2008 06:00
Rembast Það hvarflar óneitanlega að manni að ef ljósmæður hefðu haft einhver tök á því að keppa í grein sinni, helst á stóru ljósmæðramóti í útlöndum – þar sem þær hefðu unnið til verðlauna eftir æsispennandi keppni við t.d. franskar stallsystur sínar eða spænskar – að þá myndu kannski málefni ljósmæðra í yfirstandandi kjarabaráttu njóta meiri vinsælda hjá hinu opinbera. Bakþankar 6. september 2008 05:00
Hvað á að gera? Sennilega hefur ádeilan um aðgerðaleysi bitið meir í ríkisstjórnina en flest annað síðustu mánuði. Með því að ríkisstjórnin hefur sannarlega aðhafst sitthvað til þess að bregðast við aðsteðjandi efnahagsvanda er vel skiljanlegt að aðgerðaleysishugtakið hljómi eins og hvellandi bjalla í eyrum forystumanna stjórnarflokkanna. Fastir pennar 5. september 2008 06:15
Ljósmæður í myrkrinu Þegar þetta er skrifað hefur enn ekki samist í deilu ljósmæðra og ríkisins, og fátt bendir til að það eigi eftir að breytast á næstu dögum. Ljósmæður byrja á tveimur tveggja daga verkfallslotum áður gripið verður til allsherjarverkfalls í lok mánaðarins. Bakþankar 5. september 2008 06:00
Hver er stefnan? Skýrsla forsætisráðherra um efnahagsmál og umræður um hana á Alþingi á þriðjudag var í senn fróðleg og gagnleg við þær erfiðu aðstæður sem nú eru uppi í íslenskum þjóðarbúskap. Fastir pennar 4. september 2008 06:15
Svipmynd af ritstjórn Dagbækur Matthíasar Johannessen fyrrum ritstjóra Morgunblaðsins á vefnum þurfa ekki að koma neinum á óvart, þótt þar sé greint frá einkasamtölum milli manna. Fastir pennar 4. september 2008 06:00
02.10.2044 Þann annan október árið 2044 verða fimm dagar í að ég verði 79 ára. Komandi afmæli verður mér þó ekki efst í huga heldur sú staðreynd að þennan dag mun ég borga síðustu afborgunina af húsnæðisláninu mínu, 480. greiðslu af 480. Bakþankar 4. september 2008 05:45
Gott skrið Það er nýr háttur á Alþingi að koma saman í septemberbyrjun til að ljúka afgreiðslu óútræddra mála frá liðnu vori. Áður þurfti að byrja slíkar umræður að nýju við upphaf næsta þings. Nú er unnt að taka til við þær þar sem frá var horfið. Þetta losar lítið eitt um þá tímaspennitreyju sem þingumræður festast í á hverju vori. Fastir pennar 3. september 2008 06:15
Geðdeild Akureyrar aðeins með 10 pláss á legudeild fyrir sjúklinga með alvarlegan geðrænan vanda Gísli Hvanndal Jakobsson Skoðun