Stór olíufláki lagði undir sig Siglufjarðarhöfn Mikill olíufláki lagði undir sig Siglufjarðarhöfn fyrri part dags í gær. Á myndum má sjá að flekinn var stór að umfangi og hafi hann borist úr innsiglingunni og til hafnar. Innlent 19. ágúst 2021 11:11
Blöskraði hegðun ökumanna við Múlagöng Slökkviliðsstjórinn í Dalvíkurbyggð biðlar til ökumanna að virða það þegar lokunarslá lokar fyrir umferð um Múlagöngin á milli Eyjafjarðar og Ólafsfjarðar. Innlent 27. júlí 2021 15:01
Líf og fjör um allt land Líf og fjör er í öllum landshlutum um helgina. Ögurhátíðin í Ísafjarðardjúpi nær hámarki með Ögurballi í kvöld, þar sem boðið verður upp á rabbarbaragraut með rjóma í danspásum. Innlent 17. júlí 2021 21:47
Gunnar Birgisson er látinn Gunnar Birgisson, fyrrverandi alþingismaður og bæjar- og sveitarstjóri, er látinn. Samkvæmt andlátstilkynningu í Morgunblaðinu lést Gunnar á heimili sínu í gær. Hann var 73 ára. Innlent 15. júní 2021 06:22
Að lesa landið Ég byrjaði ung að lesa ljóð því mér fannst ég lesa of lítið. Þegar ég var spurð hvað ég læsi margar bækur á ári svaraði ég iðulega í ljóðabókum – ég var svo fljót að fletta í gegnum þær. Skoðun 18. maí 2021 08:01
Prestur efndi til herferðar þegar yfirvöld beygðu sig fyrir herskáum kattaeigendum „Þegar kettirnir eru komnir í búrin sem ég er að ná fuglunum í til að merkja og sleppa þá er eiginlega komið nóg. Þá er mælirinn fullur.“ Innlent 12. maí 2021 23:14
Flóni og Villi Vill hamast í Siglfirsku Ölpunum Rapparinn Flóni, Friðrik Róbertsson, og stjörnulögfræðingurinn Vilhjálmur H. Vilhjálmsson hafa notið lífsins í Siglfirsku Ölpunum um helgina, þar sem þeim er skutlað upp á fjall með þyrlu til þess eins að skíða aftur niður. Lífið 24. apríl 2021 20:57
Óttast banaslys vegna kæruleysis þeirra sem stýri Slökkviliðsstjóri Fjallabyggðar segir Ólafsfjarðargöng ekkert annað en dauðagildru. Göngin séu barn síns tíma og hann vilji ekki þurfa að taka þátt í því að bjarga tugum látinna úr göngunum vegna kæruleysis í samgöngumálum. Innlent 27. mars 2021 16:23
Íbúar í Fjallabyggð ekki hræddir vegna sprengju en komu af fjöllum í gær Bæjarstjóri Fjallabyggðar merkir ekki hræðslu meðal íbúa sveitarfélagsins eftir að sprengja var sprengd í Ólafsfjarðargöngum á dögunum. Fjórir voru handteknir vegna málsins sem lögregla lítur alvarlegum augum. Rannsóknin er vel á veg komin. Innlent 27. mars 2021 12:29
Fjórir handteknir og milljónatjón eftir sprengingu í Ólafsfjarðargöngum Milljónatjón varð í Ólafsfjarðargöngum, eða Múlagöngum, eftir að heimagerð sprengja var þar sprengd í vikunni. Mikill viðbúnaður var hjá lögreglunni á Norðurlandi eystra vegna málsins og voru fjórir handteknir í tengslum við málið að því er segir í tilkynningu. Innlent 26. mars 2021 11:45
„Þetta er bara rothögg“ Egill Rögnvaldsson sem rekur skíðasvæði Siglfirðinga í Skarðsdal segir að hertar sóttvarnaaðgerðir séu rothögg fyrir reksturinn. Skíðasvæðinu hefur verið lokað en framundan voru páskarnir þar sem von var á fjölda gesta norður á skíði. Innlent 26. mars 2021 10:22
Lokuðu tveimur veitingahúsum á Akureyri Lögreglan á Norðurlandi eystra lokaði tveimur veitingahúsum í umdæminu í gærkvöldi. Öðru þeirra var lokað vegna útrunnins rekstrarleyfis en hinu vegna brots á sóttvarnalögum. Innlent 28. febrúar 2021 08:16
Fór úr mjaðmarlið og beið í níutíu mínútur í kuldanum Þórður Mar Árnason má ekkert stíga í fótinn næstu sex vikurnar eftir að hafa farið úr mjaðmarlið í vélsleðaslysi á Tröllaskaga þann 15. janúar síðastliðinn. Hann þakkar fyrir að hafa ekki fengið vélsleðann ofan á sig þar sem hann rúllaði niður bratta fjallshlíð. Eða að æð hafi ekki farið í sundur í fæti hans. Þá hefði fátt komið í veg fyrir að honum hefði blætt út. Innlent 31. janúar 2021 19:56
Rýmingu vegna snjóflóðahættu aflétt á Siglufirði Rýmingu vegna snjóflóðahættu hefur verið aflétt á Siglufirði. Vegfarendur eru engu að síður beðnir um að hafa varan á, einkum á svæðum þar sem snjóflóð geta fallið. Þetta kemur fram í tilkynningu frá almannavarnadeild ríkislögreglustjóra þar sem segir að ákveðið hafi verið að aflétta rýmingu húsa á sunnanverðum Siglufirði. Óvissustig vegna snjóflóðahættu á Norðurlandi er þó enn í gildi. Innlent 24. janúar 2021 17:28
Týr flutti sjúkling frá Siglufirði Áhöfnin á varðskipinu Tý var kölluð til í gær vegna sjúkraflutnings frá Siglufirði. Hvorki var hægt að flytja sjúkling landleiðina né í sjúkraflugi vegna slæms veðurs og ófærðar. Innlent 24. janúar 2021 09:31
Áfram hættustig á Siglufirði Óvissustig verður áfram á öllu Norðurlandi og hættustig á Siglufirði vegna snjóflóðahættu. Afleitt verður hefur verið fyrir norðan í dag, hvöss norðanátt með snjókomu eða éljum. Innlent 22. janúar 2021 18:58
„Það er ekki hægt að ætla neinu nútímasamfélagi að lifa við þetta“ Bæjarstjóri Fjallabyggðar segir Siglfirðinga orðna langþreytta á lokunum með tilheyrandi raski á atvinnustarfsemi. Það sé allt of algengt að íbúar verði innlyksa dögum saman vegna ófærðar. Eina lausnin séu jarðgöng. Innlent 22. janúar 2021 12:11
Handtekinn vegna gruns um íkveikju í húsi á Ólafsfirði Lögreglustjórinn á Norðurlandi eystra hefur nú til rannsóknar eldsvoða á Kirkjuvegi 7 á Ólafsfirði sem kom upp aðfararnótt mánudagsins 18. janúar. Innlent 22. janúar 2021 11:50
„Hélt við værum örugg undir snjóflóðavarnargarðinum“ Íbúi sem þurfti ásamt fjölskyldu sinni að yfirgefa heimili sitt á Siglufirði í gær vegna snjóflóðahættu segist undrandi því snjóflóðagarður sé við húsið. Greinilegt sé að verið sé að endurmeta snjóflóðavarnir á svæðinu. Talið er að altjón hafi orðið á skíðasvæði Siglfirðinga í snjóflóði í gær en lyftan virðist hafa sloppið. Innlent 21. janúar 2021 19:00
Rýming áfram í gildi og samgöngur takmarkaðar vegna snjóflóðahættu Rýming verður áfram í gildi á Siglufirði í dag og verður hún endurmetin síðdegis á morgun. Þetta staðfestir Víðir Reynisson, yfirlögregluþjónn hjá almannavörnum, í samtali við fréttastofu. Innlent 21. janúar 2021 17:46
Líklega altjón á skíðasvæðinu á Siglufirði Elías Pétursson, bæjarstjóri Fjallabyggðar, fundaði með forsvarsmönnum skíðasvæðisins á Siglufirði í morgun. Snjóflóð skall á skíðaskálann í gærmorgun og hreif skálann af grunni sínum. Elías segir í samtali við fréttastofu að líklega sé um altjón á skíðasvæðinu að ræða. Skíðalyftan hafi þó sloppið fyrir horn. Innlent 21. janúar 2021 14:14
Níu fjölskyldur á Siglufirði mega ekki snúa aftur heim strax Ástandið er óbreytt á Norðurlandi hvað snjóflóðahættu varðar og því mun rýming níu húsa á Siglufirði vara áfram, í það minnsta um stundarsakir. Innlent 21. janúar 2021 12:35
Enn engar tilkynningar um ný flóð á Tröllaskaga Veðurstofunni hafa enn ekki borist nýjar tilkynningar um að ný snjóflóð hafi fallið í Siglufirði eða annars staðar á Tröllaskaga. Beðið er eftir að birti til að hægt sé að taka betur stöðuna, en margir vegir á svæðinu eru sem stendur lokaðir og því ekki útilokað að flóð hafi fallið. Innlent 21. janúar 2021 07:29
Hækka viðbúnaðarstig og rýma svæði á Siglufirði Veðurstofa Íslands hefur hækkað viðbúnaðarstig í hættustig vegna snjóflóðahættu á Norðurlandi. Ákveðið hefur verið að rýma svæði sem er syðst á Siglufirði og mun lögregla hafa samband við fólkið sem þarf að yfirgefa heimili sín. Innlent 20. janúar 2021 15:23
Skíðaskáli Siglfirðinga færðist úr stað í snjóflóði Snjóflóð féll á skíðasvæðinu á Siglufirði, sennilega í morgun. Egill Rögnvaldsson svæðisstjóri skíðasvæðisins segir í samtali við fréttastofu að erfitt sé að átta sig á umfangi flóðsins en mikill skafrenningur er á svæðinu og þurftu menn frá að hverfa. Innlent 20. janúar 2021 11:54
Óvissustig vegna hugsanlegrar snjóflóðahættu á Norðurlandi Veðurstofa Íslands hefur lýst yfir óvissustigi vegna hugsanlegrar snjóflóðahættu á Norðurlandi. Nokkur snjóflóð hafa fallið í dag utan þéttbýlis og hefur Ólafsfjarðarmúla og Siglufjarðarvegi verið lokað. Innlent 19. janúar 2021 21:56
Veginum um Ólafsfjarðarmúla lokað vegna snjóflóðs Veginum um Ólafsfjarðarmúla á milli Ólafsfjarðar og Dalvíkur hefur verið lokað vegna snjóflóðs sem féll yfir veginn. Starfsmenn Vegagerðarinnar komu að snjóflóðinu um kvöldmatarleytið. Innlent 18. janúar 2021 20:20
Slasaður vélsleðamaður hífður upp í þyrlu Landhelgisgæslunnar Laust fyrir klukkan hálf tvö fékk Lögreglan á Norðurlandi eystra tilkynningu um vélsleðaslys í Tröllaskaga nálægt Lágheiði. Viðbragðsaðilar á svæðinu voru ræstir út sem og þyrla Landhelgisgæslunnar og þá var aðgerðarstjórn virkjuð á Akureyri. Innlent 15. janúar 2021 15:35
Jarðskjálfti við Gjögurtá fannst í Fjallabygð Jarðskjálfti að stærð 2,8 varð um fjórtán kílómetra vestur af Gjögurtá. Tilkynningar hafa borist frá Ólafsfirði og Siglufirði um að skjálftinn hafi fundist, að því er segir í tilkynningu frá Veðurstofu Íslands. Innlent 5. janúar 2021 11:20
Aflýsa óvissustigi vegna jarðskjálfta á Norðurlandi Ríkislögreglustjóri hefur í samráði við lögreglustjórann á Norðurlandi eystra aflýst óvissustigi vegna jarðskjálfta úti fyrir Norðurlandi. Óvissustigi var lýst yfir 20. júní síðastliðinn vegna jarðskjálftahrinu sem hófst um 20 kílómetrum norðaustan við Siglufjörð. Innlent 29. desember 2020 12:42