Orri og félagar í 16-liða úrslit Meistaradeildarinnar Orri Steinn Óskarsson og félagar í FC Kaupmannahöfn eru komnir í 16-liða úrslit Meistaradeildar Evrópu eftir 1-0 sigur gegn Galatasaray í kvöld. Fótbolti 12. desember 2023 22:00
Arnór skoraði og Blackburn nálgast umspilssæti Arnór Sigurðsson skoraði fyrra mark Blackburn Rovers er liðið vann 2-1 sigur gegn Bristol City í ensku B-deildinni í knattspyrnu í kvöld. Fótbolti 12. desember 2023 21:43
Benzema og Kanté skoruðu er Al Ittihad fór áfram Karim Benzema og N'Golo Kanté voru báðir á skotskónum er Al Ittihad tryggði sér sæti í átta liða úrslitum heimsmeistaramóts félagsliða með 3-0 sigri gegn nýsjálenska liðinu Auckland City í kvöld. Fótbolti 12. desember 2023 20:24
Toppliðin skildu jöfn PSV og Arsenal gerðu 1-1 jafntefli er liðin mættust í uppgjöri efstu tveggja liða B-riðils Meistaradeildar Evrópu í knattspyrnu í kvöld. Fótbolti 12. desember 2023 19:42
Forsetinn handtekinn eftir dómaraárásina Faruk Koca, forseti tyrkneska knattspyrnufélagsins MKE Ankaragucu, hefur verið handtekinn eftir að hann kýldi dómara undir lok viðureignar félagsins gegn Caykur Rizespor í tyrknesku úrvalsdeildinni í gær. Fótbolti 12. desember 2023 17:31
Vilja að leikur verði endurtekinn vegna VAR-mistaka Club Brugge hefur óskað eftir því að leikur liðsins gegn Mechelen í belgísku úrvalsdeildinni verði endurtekinn vegna dómaramistaka. Fótbolti 12. desember 2023 15:31
Stuðningsmenn útiliðsins bannaðir til ársins 2025 Belgar ætla að taka hart á ólátum áhorfenda í stærsta leik belgíska boltans en það eru leikir á milli erkifjendanna Standard Liege og Anderlecht. Fótbolti 12. desember 2023 14:31
Átta prósent líkur United í kvöld en Orri mun líklegri Manchester United-menn halda í veika von um að komast upp úr sínum riðli í Meistaradeild Evrópu í fótbolta í kvöld. Þeir þurfa meðal annars hjálp frá Orra Steini Óskarssyni og félögum í FC Kaupmannahöfn. Fótbolti 12. desember 2023 14:00
Líkir undrabarni Arsenal við Wilshere Sextán ára ungstirni gæti spilað fyrir Arsenal þegar liðið mætir PSV Eindhoven í Meistaradeild Evrópu í kvöld. Fótbolti 12. desember 2023 13:31
Þrefaldir meistarar klófesta Emilíu sem færist nær bróður sínum Danska knattspyrnufélagið HB Köge, sem orðið hefur meistari þrjú síðustu ár í röð, hefur fengið til sín hina 17 ára gömlu Emelíu Óskarsdóttur. Fótbolti 12. desember 2023 13:02
Capello skilur ekkert í ráðningu Zlatans: Hvað á hann að gera? Zlatan Ibrahimovic er kominn aftur í vinnu hjá AC Milan en ekki sem leikmaður heldur sem sérstakur ráðgjafi eiganda félagsins. Fótbolti 12. desember 2023 11:00
Fyrirskipa handtöku forsetans fyrir hnefahöggið Tyrkneskur dómstóll hefur fyrirskipað handtöku forseta tyrkneska fótboltafélagsins Ankaragucu. Fótbolti 12. desember 2023 10:17
Orri einn sá verðmætasti meðal ungra leikmanna á Norðurlöndum Íslenski landsliðsframherjinn Orri Steinn Óskarsson hefur verið að stimpla sig inn hjá bæði FC Kaupmannahöfn og íslenska landsliðinu á þessu ári. Fótbolti 12. desember 2023 10:00
„Síðasti dans“ Messi og Ronaldo aftur á dagskrá Inter Miami hefur nú staðfest það að liðið muni eftir allt saman taka þátt í Riyadh bikarnum í Sádí Arabíu í febrúar næstkomandi. Fótbolti 12. desember 2023 09:30
Íslandsvinirnir í Puma slíta samstarfi sínu við mótherja Íslands Þýski íþróttavöruframleiðandinn Puma hefur ákveðið að hætta samstarfi sínu við ísraelska knattspyrnusambandið. Núgildandi samningur er fram á næsta ár. Fótbolti 12. desember 2023 09:01
Erdogan búinn að tjá sig um hnefahöggið á fótboltavellinum Recep Tayyip Erdogan, forseti Tyrklands, er meðal þeirra sem hafa komið fram opinberlega og fordæmt árás forseta fótboltaliðs á dómara eftir leik í tyrknesku úrvalsdeildinni. Fótbolti 12. desember 2023 07:45
Forsetinn sló dómarann í andlitið og öllum fótboltaleikjum frestað Tyrkneska knattspyrnusambandið hefur stöðvað allar deildi í landinu eftir skammarlegt kvöld fyrir tyrkneska fótboltann. Fótbolti 12. desember 2023 07:01
Glódís Perla á toppinn eftir sigur í Íslendingaslag Bayern München er komið á topp þýsku úrvalsdeildar kvenna í knattspyrnu eftir sannfærandi sigur á Bayer Leverkusen í kvöld. Ein íslensk landsliðskona var í sitthvoru byrjunarliðinu. Fótbolti 11. desember 2023 20:41
Pochettino vill að eigendur Chelsea opni veskið í janúar Það hefur lítið sem ekkert gengið hjá Chelsea á yfirstandandi tímabili í ensku úrvalsdeildinni. Þrátt fyrir eða fúlgum fjár í alls 14 leikmenn síðasta sumar þá virðist leikmannahópur liðsins einkar illa samansettur og vill Mauricio Pochettino, þjálfari liðsins, að eigendur félagsins opni veskið í janúar. Enski boltinn 11. desember 2023 20:01
Fyrirliði Lyngby: Held þetta sé verst dæmdi leikur sem ég hef spilað Marcel Rømer, fyrirliði Íslendingaliðs Lyngby í knattspyrnu, var vægast sagt ósáttur eftir að liðið féll úr leik í 8-liða úrslitum dönsku bikarkeppninnar. Hann segir síðari leik liðsins gegn Fredericia þann verst dæmda á hans ferli en Lyngby missti mann af velli eftir 27 sekúndur. Fótbolti 11. desember 2023 18:01
Mourinho lét boltastrákinn færa markverði Roma miða José Mourinho er engum líkur og sýndi það enn og aftur í leik Roma og Fiorentina í ítölsku úrvalsdeildinni í gær. Fótbolti 11. desember 2023 16:01
Fótbrotnaði í bikarúrslitaleiknum Molde tryggði sér norska bikarmeistaratitilinn í fótbolta um helgina en einn leikmaður liðsins gat þó ekki fagnað með liðsfélögum sínum. Fótbolti 11. desember 2023 14:31
Hafrún Rakel í Bröndby: „Passa mjög vel inn í leikstíl liðsins“ Hafrún Rakel Halldórsdóttir, landsliðskona í fótbolta, hefur skrifað undir samning til tveggja ára við danska félagið Bröndby. Fótbolti 11. desember 2023 13:19
Mikael baunar á stuðningsmenn Brøndby Landsliðsmaðurinn í fótbolta, Mikael Neville Anderson, skaut létt á stuðningsmenn Brøndby eftir tilraun þeirra til að trufla undirbúning AGF fyrir mikilvægan leik. Fótbolti 11. desember 2023 12:31
Ísland mætir Serbíu í umspilinu en óvíst hvar Í dag kom í ljós hvaða lið verður andstæðingur stelpnanna okkar í íslenska kvennalandsliðinu í fótbolta í lok febrúar, í umspilinu í Þjóðadeild UEFA. Fótbolti 11. desember 2023 12:00
Stálheppinn Brynjólfur brosti breitt að lokum Brynjólfur Willumsson átti sinn þátt í að fullkomna magnað ævintýri norska knattspyrnuliðsins Kristiansund í gær en var á sama tíma hársbreidd frá því að reynast skúrkur dagsins. Fótbolti 11. desember 2023 11:31
Íslensku stelpurnar vita það í hádeginu hvaða þjóð þær mæta í umspilinu Í dag verður dregið um mótherja Íslands í umspili Þjóðadeildar kvenna í fótbolta. Íslensku stelpurnar spila þá um áframhaldandi sæti í A-deild keppninnar. Fótbolti 11. desember 2023 10:31
Konur eru ekki litlir karlar Sólveig Þórarinsdóttir, sjúkraþjálfari og doktorsnemi, er ein þeirra sem stendur að baki rannsókn sem vakið hefur athygli og stuðlað að góðum breytingum í norska kvennaboltanum. Rannsóknin snýr að heilsufari leikmanna í deildinni en þekking okkar á kvennaknattspyrnunni er afar takmörkuð. Hún hefur staðið í skugganum á karlaknattspyrnunni og aðeins 7% gagna í knattspyrnuheiminum byggja á reynslu okkar og þekkingu af kvennaknattspyrnu. Fótbolti 11. desember 2023 08:47
Zlatan óvænt orðaður við sitt fyrsta þjálfarastarf AC Milan er í vandræðum í ítalska fótboltanum og tapaði enn einum leiknum um helgina. Ítalskir fjölmiðlar eru farnir að velta því fyrir sér hvort breytingar séu í farvatninu í Mílanó. Fótbolti 11. desember 2023 08:01
Leik hætt eftir að stuðningsmaður lést í stúkunni Leik Granada og Athletic Bilbao í La Liga, spænsku úrvalsdeild karla í knattspyrnu, var hætt eftir að stuðningsmaður annars liðsins lést í stúku Nuevo Los Carmenes-leikvangsins á sunnudag. Fótbolti 11. desember 2023 07:01