Elvar bjó til sjö mörk en liðið missti af sigri í lokin Elvar Ásgeirsson átti góðan leik í kvöld þegar lið hans Ribe-Esbjerg gerði 27-27 jafntefli við Mors-Thy Håndbold í dönsku úrvalsdeildinni í handbolta. Handbolti 6. mars 2025 19:09
Neymar valinn í fyrsta sinn í sautján mánuði Brasilíski knattspyrnumaðurinn Neymar er kominn aftur í brasilíska landsliðið en hann er í hópnum fyrir komandi leiki í undankeppni HM. Fótbolti 6. mars 2025 18:00
Níu mörk þegar KR vann ÍBV Ekki vantaði mörkin þegar KR sigraði ÍBV í riðli 4 í Lengjubikar karla í fótbolta í dag. Lokatölur 6-3, KR-ingum í vil. Íslenski boltinn 6. mars 2025 16:00
FIFA gæti fjölgað liðum í 64 á HM Möguleikar Íslands á að komast aftur á HM í fótbolta gætu aukist ef hugmyndir um enn frekari stækkun mótsins ganga eftir. Til greina kemur að fjölga þátttökuþjóðum í 64 fyrir HM 2030. Fótbolti 6. mars 2025 15:01
Unnið ensku, frönsku, þýsku og spænsku meistarana án þess að fá á sig mark Liverpool sigraði Paris Saint-Germain, 0-1, á útivelli í Meistaradeild Evrópu í gær. Rauði herinn hefur nú unnið ríkjandi meistara í fjórum af sterkustu deildum Evrópu á tímabilinu. Enski boltinn 6. mars 2025 13:47
QPR vildi Þorra en Fram sagði nei Enska knattspyrnufélagið Queens Park Rangers, sem leikur í næstefstu deild, gerði tilboð í miðvörðinn unga Þorra Stefán Þorbjörnsson í vetur en Fram hafnaði tilboðinu. Íslenski boltinn 6. mars 2025 13:02
Spilaði leik sama dag og hann viðurkenndi að hafa orðið manni að bana Lucas Akins spilaði fyrir enska C-deildarliðið Mansfield Town sama dag og hann viðurkenndi að hafa orðið manni að bana. Enski boltinn 6. mars 2025 12:31
Sjáðu vörslurnar hjá Alisson: „Fáir sem stugga við honum“ Alisson átti frábæran leik í marki Liverpool þegar liðið sigraði Paris Saint-Germain, 0-1, í fyrri leik liðanna í sextán liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu í gær. Fótbolti 6. mars 2025 12:00
Utan vallar: Fegurðin í því að stúta og stela Eins og það er erfitt að verða fórnarlamb ráns eða stuldar hefur fyrirbærið sífellt orðið glamúriseraðra í alþjóðlegri poppmenningu undanfarin ár. Fótbolti 6. mars 2025 11:34
Stelpurnar okkar aftur í hæstu hæðum Íslenska kvennalandsliðið í fótbolta er það 13. besta í öllum heiminum samkvæmt nýjasta styrkleikalista FIFA og hefur aldrei verið ofar. Fótbolti 6. mars 2025 11:01
Sjáðu sigurmark Liverpool og pínleg mistök í München Liverpool, Bayern, Barcelona og Inter eru í góðum málum eftir leiki gærkvöldsins í 16-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu í fótbolta. Mörkin úr leikjum þeirra má nú sjá á Vísi. Fótbolti 6. mars 2025 09:33
Einstakt mál í Frakklandi: Níu mánaða bann fyrir að ógna dómara Paulo Fonseca, hinn portúgalski stjóri Lyon, var í gær úrskurðaður í níu mánaða bann frá frönskum fótbolta. Fyrstu sjö mánuðina má hann ekki einu sinni koma inn í búningsklefa liðsins. Fótbolti 6. mars 2025 09:01
„Við vorum mikið betri en Liverpool“ Luis Enrique, stjóri PSG, sagði ekki flókið að greina leik liðsins gegn Liverpool í Meistaradeildinni í gærkvöld. Lið sitt hefði verið mikið betra, þó að leikurinn hefði endað 1-0 fyrir Liverpool. Fótbolti 6. mars 2025 08:02
Dómararnir á Spáni fá miklu betur borgað Það eru ekki aðeins leikmennirnir í bestu fótboltadeildum Evrópu sem fá vel borgað fyrir vinnu sína. Dómararnir í þessum bestu deildum Evrópu fá líka góð laun en bara misgóð laun. Fótbolti 6. mars 2025 06:31
Snilldarmark Ovalle þykir eiga skilið Puskas verðlaunin Knattspyrnukonan Jacqueline Ovalle skoraði stórglæsilegt en um leið afar óvenjulegt mark á dögunum. Mark hennar var svo flott mark að fólk fór strax að ræða um það sem mögulega flottasta fótboltamark ársins. Fótbolti 5. mars 2025 23:30
Alisson: „Líklega besti leikur lífs míns“ Alisson Becker átti algjöran stórleik í kvöld þegar Liverpool sótti 1-0 sigur til Parísar í sextán liða úrslitum Meistaradeildarinnar. Brasilíski markvörðurinn bjargaði Liverpool hvað eftir annað og liðið skoraði síðan sigurmarkið eftir langa sendingu fram völlinn frá Alisson. Fótbolti 5. mars 2025 22:20
Tíu Börsungar náðu að landa sigri í Lissabon Barcelona vann 1-0 sigur á Benfica í kvöld í fyrri leik liðanna í sextán liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu í fótbolta. Fótbolti 5. mars 2025 22:00
Kane á skotskónum í sigri Bæjara í einvígi þýsku liðanna Bayern München er í fínum málum eftir 3-0 sigur á Bayer Leverkusen í fyrri leik liðanna í sextán liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu í fótbolta. Fótbolti 5. mars 2025 21:54
Liverpool lifði af stórskotahríð í París og Elliott tryggði svo sigurinn Liverpool getur þakkað fyrir að fara til baka frá París með 1-0 sigur á Paris Saint Germain en það lá á liðinu í fyrri leik liðanna í sextán liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu í fótbolta í kvöld. Fótbolti 5. mars 2025 21:53
Fylkismenn komust áfram á kostnað Íslandsmeistara Blika Fylkir tryggði sér í kvöld sæti í undanúrslitum Lengjubikars karla í fótbolta eftir sigur á Njarðvík á heimavelli sínum. Íslenski boltinn 5. mars 2025 21:12
Inter bætti ofan á hörmungar hollensku liðanna Internazionale er í fínum málum í sextán liða úrslitum Meistaradeildarinnar eftir útisigur á Feyenoord í Rotterdam í kvöld. Fótbolti 5. mars 2025 19:38
Sigvaldi með sex mörk og báðir bræðurnir skoruðu á móti Barcelona Íslendingaliðin Kolstad og Pick Szeged töpuðu bæði í kvöld leikjum sínum í lokaumferð deildarkeppni Meistaradeildarinnar í handbolta. Handbolti 5. mars 2025 19:21
Ein besta knattspyrnukona heims er ófrísk Sophia Wilson (áður Smith) verður ekki inn á fótboltavellinum næsta árið. Hún tilkynnti í dag að hún eigi von á sínu fyrsta barni. Fótbolti 5. mars 2025 18:23
Liverpool gæti mætt vængbrotnu liði í úrslitaleiknum á Wembley Liverpool og Newcastle spila til úrslita í enska deildabikarnum 16. mars næstkomandi. Liverpool verður nú sigurstranglegra og sigurstranglegra með hverri slæmu fréttinni sem kemur frá herbúðum Newcastle. Enski boltinn 5. mars 2025 17:30
Oliver kældur eftir Mateta-atvikið Dómarinn Michael Oliver mun ekkert dæma í ensku úrvalsdeildinni um helgina. Hann gerði sig sekan um mistök í bikarleik Crystal Palace og Millwall um helgina. Enski boltinn 5. mars 2025 16:46
Amorim: Man. Utd að hugsa um „stærri hluti“ en titil í vor Manchester United þarf að slá út Orra Óskarsson og félaga í Real Sociedad til að eiga enn möguleika á titli á þessari leiktíð. Rúben Amorim, stjóri United, segir félagið hins vegar hafa um „stærri hluti“ að hugsa en að vinna titil í vor. Fótbolti 5. mars 2025 16:00
Hálfleikssýning í anda Super Bowl í úrslitaleik HM Í fyrsta sinn verður hálfleikssýning í úrslitaleik heimsmeistaramótsins í fótbolta á næsta ári. Um er að ræða svipaða sýningu og er í úrslitaleik NFL-deildarinnar í Bandaríkjunum, Super Bowl. Fótbolti 5. mars 2025 15:18
Jusu Hákon lofi: „Hann hefur bara allt sem þjálfarar leita að“ Þeir Albert Ingason og Ólafur Kristjánsson hrósuðu Hákoni Arnari Haraldssyni, leikmanni Lille, í hástert fyrir frammistöðu hans í leiknum gegn Borussia Dortmund í Meistaradeild Evrópu í gær. Þeir sögðu að Skagamaðurinn væri draumur þjálfarans. Fótbolti 5. mars 2025 14:32
Rikki G ærðist þegar Hákon skoraði Hákon Arnar Haraldsson skoraði jöfnunarmark Lille gegn Borussia Dortmund í fyrri leik liðanna í sextán liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu í gær. Fótbolti 5. mars 2025 13:03
FIFA dæmir þjálfara í lífstíðarbann fyrir kynferðisofbeldi gegn börnum Gabonski fótboltaþjálfarinn Patrick Assoumou Eyi, sem er jafnan kallaður Capello, hefur verið dæmdur í lífstíðarbann af Alþjóða knattspyrnusambandinu, FIFA, fyrir að beita leikmenn sína kynferðisofbeldi. Fótbolti 5. mars 2025 12:32