Hjaltalín á Iceland Airwaves: Lágt flug Hljómsveitin Hjaltalín sló í gegn með fyrstu breiðskífu sinni, Sleepdrunk Seasons, sem kom út árið 2007 og þótti þá á meðal efnilegustu sveita landsins. Sveitin steig á svið í Hafnarhúsinu í gær og lék þá eitthvað af nýju efni í bland við nokkur gömul og góð. Gagnrýni 15. október 2011 00:01
Dikta á Iceland Airwaves: Stemningsleysi Þrátt fyrir að Dikta sé þekkt sem ein besta tónleikasveit landsins átti hún í mestu vandræðum með að ná upp stemningu í Norðurljósasalnum. Kannski var sveitin þreytt eftir tónleikaferð sína um Þýskaland. Ekki hjálpaði samt til að helmingur tónleikagestanna sat á miðju gólfinu nánast allan tímann á meðan hinn helmingurinn stóð allt í kring. Aðeins nokkrar hræður stóðu uppi við sviðið og langmesta lífið var í þeim. Gagnrýni 14. október 2011 15:00
Sóley á Iceland Airwaves: Krúttlegt og kósí Sóley steig á svið ásamt trommuleikara sínum og saman slógu þau tvö vart feilnótu. Tónlistin var hugljúf og krúttleg, líkt og Sóley sjálf sem heillaði tónleikagesti með skemmtilegu spjalli milli laga. Gagnrýni 14. október 2011 15:00
Náttfari á Iceland Airwaves: Spikfeitt síðrokk Síðrokksveitin Náttfari lét nokkuð til sín taka fyrir um áratug en lagðist svo í dvala. Sveitin var endurvakin fyrir nokkrum misserum og hefur nú lokið við gerð fyrstu breiðskífu sinnar sem fáanleg er á Bandcamp og kemur á geisladiski á næstu dögum. Gagnrýni 14. október 2011 14:00
Amaba Dama á Iceland Airwaves: Gleðin skein úr hverju andliti Amaba Dama er reggísveit sem rapparinn Gnúsi Yones leiðir, en hún hefur vakið athygli undanfarið fyrir reggíútgáfu af Bjartmars-smellinum Týnda kynslóðin. Þetta er fjölmenn sveit sem er að hluta til skipuð sömu meðlimum og Ojba Rasta, a.m.k. á þessum tónleikum á Airwaves. Gagnrýni 14. október 2011 14:00
Blaz Roca á Iceland Airwaves: Blaz í góðu formi Blaz Roca mætti upp á svið grimmur á svip, til í slaginn, og byrjaði á Gaslaginu ásamt Bent og Lúlla úr XXX Rottweiler. Sviðið á Gauknum minnti á köflum á fjölfarna ferðamannamistöð þegar hver rapparinn á fætur öðrum hoppaði upp á svið og niður aftur, eða Friðrik Dór, Henrik Biering, Dabbi T og Sesar A, auk Rottweiler-tvíeykisins. Blaz Roca var vitaskuld miðpunkturinn og reyndi ítrekað að fá salinn með sér, með því að spyrja hvort þessi eða hinn væri í húsinu. Gagnrýni 14. október 2011 14:00
Ourlives á Iceland Airwaves: Flottur söngvari Það verður seint sagt að Ourlives hafi náð upp brjálaðri stemningu í Silfurbergssalnum. Maður ímyndar sér einhvern veginn að bæði hljómsveitin og aðdáendur hennar sé vanari sveittari stemningu á öldurhúsum bæjarins. Gagnrýni 14. október 2011 13:00
Markús and the Diverse Sessions á Iceland Airwaves: Hreinræktað popp Markús and the Diversion Sessions spila það það sem tónsmiðurinn og söngvarinn sjálfur kallaði „pjúra popp“. Tónlistin er svolítið í anda Pavement, grípandi og skemmtileg. Gagnrýni 14. október 2011 11:00
Ojba Rasta á Iceland Airwaves: Sveit sem er að springa út Velgengni Hjálma virðast hafa hrundið af stað íslenskri reggíbylgju. Á miðvikudagskvöldið sveif reggíandinn yfir vötnum á aðalsviði Faktorý. Ojba Rasta er búin að vera starfandi í tvö ár og er núna orðin mjög þétt og flott. Sveitin spilar reggí með áhrifum frá evrópskri þjóðlagatónlist. Gagnrýni 14. október 2011 11:00
Lifandi vísindi Bjarkar Niðurstaða: Tónleika-, margmiðlunar- og vísindasýning Bjarkar í Hörpu á miðvikudagskvöldið var einstök upplifun. Gagnrýni 14. október 2011 06:00
Allt gengur upp hjá Lay Low Lay Low toppar sig á frábærri plötu. Lögin eru góð, útsetningarnar ferskar og hugmyndaríkar og hljómurinn er hlýr og gamaldags, en platan er tekin upp á segulband. Gagnrýni 13. október 2011 13:00
Framvarðasveitin Snillingarnir í ADHD leika lausum hala á landamærum rokks og djass. Á heildina litið er þetta fyrirtaks plata sem ætti að höfða jafnt til djass- og rokkáhugafólks. Gagnrýni 13. október 2011 10:00
Hell-víti öflugt Fínt rokk með elektróník í bland sem ætti að njóta sín til fullnustu á tónleikum. Hellvar er orðið fimm manna band og fyrir vikið hafa áherslunar breyst og rokkið orðið meira áberandi þó svo að rafpælingarnar séu aldrei langt undan. Gagnrýni 12. október 2011 14:00
Efnilegir Ísfirðingar Stjörnuryk er rapphljómsveit frá Ísafirði sem sendi nýlega frá sér sína fyrstu plötu, Þetta reddast. Platan inniheldur hvorki meira né minna en 17 lög og á meðal gestarappara eru hinn ungi Ísfirðingur MC Ísaksen og bræðurnir Sesar A og Blazroca. Gagnrýni 10. október 2011 21:00
Skemmtilegur draumur Einfalt verk, skapað utan um færni dansaranna sjálfra, vel unnið og skemmtilegt. Ef mann langar að hlæja á danssýningu þá er Fullkominn dagur til drauma svarið. Gagnrýni 10. október 2011 20:30
Enn eitt stórvirki Bjarkar Björk gefur ekkert eftir á metnaðarfullri plötu. Biophilia er enn eitt stórvirkið á ferli hennar en kannski ekki hennar besta plata. Magnað verk engu að síður og plata sem sýnir að Björk er ekki hætt leitinni að nýjum og spennandi hlutum. Gagnrýni 8. október 2011 16:30
Nú eigum við okkur myndlistarsögu Íslenska listasagan er happafengur. Ekki gallalaust rit en gefur frábæra innsýn í myndlist tuttugustu aldar og fram á okkar daga. Sannkölluð gleði að fletta og skoða, fjársjóður í bókahillunni sem ég vona að sem flestir fá að njóta. Gagnrýni 7. október 2011 11:00
Magnaður Mugison Magnaðir tónleikar með Mugison. Allt til fyrirmyndar, lögin, hljómsveitin og tónleikagestir. Hápunkturinn þegar Mugison söng um Ljósvíkinginn með Fjallabræðrum. Gagnrýni 4. október 2011 12:30
Sagan endalausa Vel skrifaðar og næmar lýsingar á hernámi Þjóðverja í Frakklandi í seinni heimsstyrjöld. Verkið er þó aðeins hálfkarað og tæplega það og skilur lesandann eftir í lausu lofti. Gagnrýni 2. október 2011 15:00
Opinberun Hannesar Niðurstaða: Falleg og íburðarmikil mynd en erfið, enda um erfiðan mann. Gagnrýni 1. október 2011 06:00
Gölluð vara úr góðu efni Lara Roxx er fyrrverandi vandræðaunglingur sem fluttist frá Kanada til Kaliforníu og lék í klámmyndum til að framfleyta sér. Eftir að hafa leikið í fáeinum myndum smitaðist hún af HIV-veirunni, en hún var ein þriggja kvenna sem smituðust af sama karlinum. Öll léku þau í klámmyndum. Gagnrýni 30. september 2011 21:00
Flott og fyndin sýning Alvöru menn er ljómandi skemmtileg sýning þó að verkið sjálft sé ansi hreint klisjukennt. Leikurinn er upp á fimm stjörnur. Gagnrýni 30. september 2011 13:00
Óvenjuleg kvöldstund Niðurstaða: Eftirminnileg kvöldstund með lifandi tónlist og kvikmyndaefni. Gagnrýni 30. september 2011 06:00
Mýkri og mildari Mugison Niðurstaða: Það eru minni læti á Hagléli en oft áður hjá Mugison, en frábær flutningur og fullt af góðum lagasmíðum. Gagnrýni 29. september 2011 11:00
Húmor og gleði Austur-evrópsk þjóðlagatónlist krydduð með íslenskum húmor. Á heildina litið er Russian Bride ágætis plata en næst ættu meðlimir að leggja meiri áherslu á frumsamið efni. Gagnrýni 28. september 2011 21:00
Hið myrka framhjáhald Vandaðir tónleikar í Kammermúsíkklúbbnum þar sem fór saman vandað samspil og falleg túlkun. Gagnrýni 28. september 2011 11:00
Fischer gegn Fischer Vönduð og skemmtileg heimildarmynd, hvort sem þú kannt mannganginn eða ekki. Einvíginu í Reykjavík eru gerð góð skil og gaman er fyrir Íslendinga að skyggnast aftur til ársins 1972, en þá leit Reykjavík töluvert öðruvísi út. Gagnrýni 28. september 2011 06:00
Myndræn og melódísk Gilsbakki er flott plata og enn ein sönnun þess að íslensk raftónlist er við góða heilsu. Tónlistaráhugamenn, sem hafa ekki enn gefið þessari tónlistartegund gaum, ættu að tékka á Gilsbakka. Gagnrýni 27. september 2011 20:00
Pikkfastir í fortíðinni Tvöfaldur stuðpakki frá bestu starfandi sixtís hljómsveit landsins. Frumsömdu lögin þeirra eru mörg ágæt og ábreiðurnar eru fínn kaupauki. Vax er samt hljómsveit sem er pikkföst í fortíðinni. Gagnrýni 26. september 2011 21:00
Sorgir og sigrar gröns-goðsagna Heimildarmyndin Twenty var blandar saman myndefni frá tuttugu ára ferli Pearl Jam, þar á meðal tónleikaupptökum og viðtölum við hljómsveitarmeðlimi. Gagnrýni 23. september 2011 15:00