Tvö hundruð Sunnlendingar veikir eftir þorrablót Hátt í tvö hundruð manns hafa tilkynnt um veikindi eftir að hafa sótt þorrablót á Suðurlandi um helgina. Sama veisluþjónusta kom að báðum þorrablótum, en sýni úr matvælum eru enn til rannsóknar. Innlent 3. febrúar 2025 11:54
Grunur um matarborna sýkingu á þorrablóti Nokkur fjöldi fólks sem sótti þorrablót ungmennafélagsins Hvatar í Grímsnes- og Grafningshreppi á föstudag er orðinn veikur og hefur grunur vaknað um matarborna sýkingu. Birgir Leó Olgeirsson formaður þorrablótsnefndarinnar segir að upplýsingar um fjölda veikra liggi ekki fyrir. Innlent 2. febrúar 2025 18:10
Héraðsdómur vísar Kiðjabergsmáli frá dómi Héraðsdómur Suðurlands hefur vísað frá ákæru gegn manni um sérstaklega hættulega líkamsárás í sumarhúsi við Kiðjaberg í Grímsnesi í apríl á síðasta ári. Fram kemur í frétt RÚV um málið að héraðsdómur hafi vísað málinu frá vegna þess að ákæran væri svo ónákvæm og að héraðssaksóknari hefur kært úrskurðinn til Landsréttar. Innlent 30. janúar 2025 21:33
Fyrrverandi bæjarstjóri Árborgar tekur við í Grímsnes- og Grafningshreppi Fjóla St. Kristinsdóttir, fyrrverandi bæjarstjóri Árborgar, hefur verið ráðin sveitarstjóri Grímsnes- og Grafningshrepps. Ráðningin stendur út kjörtímabilið til ársins 2026. Innlent 22. janúar 2025 13:03
Mjög fínt að vera hætt sem sveitarstjóri Iða Marsibil Jónsdóttir hefur látið af störfum sem sveitarstjóri í Grímsnes- og Grafningshreppi eftir tveggja og hálfs árs starf. Innlent 20. janúar 2025 15:14
Telur Sigurð Inga hafa misnotað umboð sitt Landvernd segir Sigurð Inga Jóhannsson fjármála- og innviðaráðherra hafa misnotað umboð sitt með því að staðfesta svæðisskipulag fyrir Suðurhálendið næstu tuttugu árin. Um sé að ræða stefnumarkandi mál sem óeðlilegt sé að starfsstjórn keyri áfram í tómarúmi. Innlent 16. desember 2024 11:14
Ekki ákærður fyrir manndráp í Kiðjabergi Karlmaður á fertugsaldri hefur verið ákærður fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás í tengslum við andlát manns í sumarhúsi við Kiðjaberg í Grímsnesi í apríl á þessu ári. Athygli vekur að maðurinn er ekki ákærður fyrir manndráp. Innlent 11. desember 2024 23:14
Viðurkenndi árás á hinn látna en segist ekki bera ábyrgð á áverkum Héraðssaksóknari mun taka ákvörðun um útgáfu ákæru í Kiðjabergsmálinu svokallaða á næstu dögum, að sögn Karls Inga Vilbergssonar saksóknara. Málið varðar andlát manns sem lést í sumarbústað í Kiðjabergi á Suðurlandi í apríl á þessu ári. Innlent 20. nóvember 2024 08:01
Frost en þurrt þegar bílarnir skullu saman Bílar sem lentu í árekstri í gærkvöldi á Biskupstungnabraut skammt frá Þrastalundi skullu saman úr gagnstæðri átt. Innlent 18. nóvember 2024 11:04
Alvarlegt bílslys við Þrastalund og þrír fluttir með þyrlunni Þrír voru fluttir á sjúkrahús með þyrlu Landhelgisgæslunnar eftir að tveir bílar skullu saman úr gagnstæðri átt við Þrastalund. Alls voru sex í bílunum tveimur. Innlent 17. nóvember 2024 20:59
Þyrlan kölluð út vegna umferðarslyss við Þrastalund Óskað var eftir aðstoð þyrlu Landhelgisgæslunnar vegna umferðaslyss við Þrastalund þegar um korter vantaði í átta í kvöld. Óljóst er um fjölda bíla. Innlent 17. nóvember 2024 20:00
Bilun gæti valdið heitavatnsleysi víðar Útleysing varð á öllum vélum í Nesjavallavirkjun í morgun. Orsök bilunarinnar er óljós en unnið er að greiningu. Innlent 9. október 2024 12:44
GOGG, GOGG, GOGG og aftur GOGG Sveitarfélagið mitt Grímsnes- og Grafningshreppur (GOGG) heldur áfram að halda því fram opinberlega að ég búi ólöglega í GOGG. Þessari fullyrðingu er ég ALLS ekki sammála þar sem lög gera ráð fyrir „að skrásetja skuli alla landsbyggðina“. Skoðun 23. september 2024 17:33
Manndráp í Kiðjabergi komið til saksóknara Lögreglan á Suðurlandi skilaði rannsókn á andláti manns í sumarbústað í Kiðjabergi í vor á borð Héraðsaksóknara á föstudag. Einn er með réttarstöðu sakbornings í málinu grunaður um að hafa orðið manninum að bana. Innlent 23. september 2024 12:20
Hart tekist á um netaveiði í Ölfusá Þeir sem bera hag Norður-Atlantshafslaxins fyrir brjósti biðla nú til þeirra sem enn stunda netaveiði í Ölfusá að hlífa því sem eftir lifir stofns í stærsta ferskvatnakerfi í Evrópu. Þeir segja þetta ljótan blett á orðspori Íslands og laxinn sé í útrýmingarhættu. Sveitin er klofin. Jörundur Gauksson lögmaður, formaður í Veiðifélagi Árnessýslu, stendur hins vegar fastur fyrir og á sínu. Innlent 19. september 2024 12:57
Hefur verið með kindur í Reykjavík í 67 ár Þrjár konur eru fjallkóngar í smölun og réttum í Grímsnes- og Grafningshreppi enda segir ein af konunum að það smalist miklu betur þegar konur stýra leitum og réttum. Fjárbóndi í Reykjavík, sem hefur verið með kindur í höfuðborginni frá 1957 sótti sitt fé í Grafningsrétt í morgun. Innlent 16. september 2024 20:06
Sagði hótelið hafa sagt sér upp vegna meðgöngu maka Kærunefnd jafnréttismála féllst ekki á að Hótel Grímsborgir hafi brotið gegn lögum með uppsögn kokks en hann sakaði hótelið um að hafa sagt sér upp vegna meðgöngu maka hans og vegna þjóðernisuppruna hans. Innlent 9. september 2024 22:00
Að búa í sveit Búseta í dreifbýli hefur sína kosti og galla, nálægðin við náttúruna er stórt aðdráttarafl en á sama tíma getur verið aðeins lengra í ákveðna þjónustu. Hvert sveitarfélag gegnir ákveðnum skyldum gagnvart íbúum þess. Skoðun 27. ágúst 2024 09:03
Rósa hefur átt við 1,1 milljón táa í vinnunni sinni Kúrekahattar og naut komu við sögu á sveitabæ í Grímsnes- og Grafningshreppi í gærkvöldi þegar 45 ára afmæli snyrtistofu í Reykjavík var fagnað, sem er jafnframt elsta snyrtistofa landsins. Eigandi stofunnar hefur átt við 1,1 milljón táa í öll þessi ár. Lífið 25. ágúst 2024 20:06
Harmonikkan er alls staðar að slá í gegn Vinsældir harmonikkunnar, sem hljóðfæris eru alltaf að aukast og aukast enda mikið um ungt fólk, sem lærir á harmonikku og þá hefur eldri kynslóðin ekki síður gaman af hljóðfærinu. Fréttamaður hitti nokkra flotta hljóðfæraleikara, sem stofnuðu nýlega hljómsveit þar sem harmonikkan er í aðalhlutverki. Lífið 24. ágúst 2024 20:07
Engin salernisaðstaða við Kerið þrátt fyrir hagnað og ellefu ára gjaldtöku Þrátt fyrir að fyrrverandi og núverandi eigendur Kersins hafi tekið gjald af ferðamönnum í ellefu ár er ekki boðið upp á neina þjónustu á svæðinu eins og salernisaðstöðu. Forstjóri ferðaþjónustufyrirtækisins Arctic Adventures segir fyrirhugað að reisa þjónustumiðstöð á svæðinu á næstu árum. Innlent 21. ágúst 2024 13:16
Stjörnurnar streyma á Sólheima Það iðar allt af lífi og fjöri á menningarveislu Sólheima í Grímsnesi í sumar þar sem boðið er upp á ókeypis tónlistardagskrá alla laugardaga með landsþekktu listafólki. Lífið 8. ágúst 2024 21:04
„Smá stress en alltaf jafn skemmtilegt“ að elda ofan í Ramsay Þriðja árið í röð lét stjörnukokkurinn Gordon Ramsay sjá sig á veitingastaðnum Þrastalundi í Grímsnesi í dag. Eigandi staðarins segir örlítið kvíðavaldandi en alltaf jafn gaman að fá Ramsay í heimsókn. Matur 29. júlí 2024 19:16
Bálhýsi á skógræktarsvæði á Borg í Grímsnesi Glæsilegt Bálhýsi er nú í byggingu við tjaldsvæðið á Borg í Grímsnesi en allt efni í hýsinu er af skógræktarsvæðinu á Snæfoksstöðum í Grímsnes- og Grafningshreppi. Allir eru velkomnir að nýta sér bálhýsið. Innlent 27. júlí 2024 08:06
Reynir Pétur gengur miklu minna en hann gerði Göngugarpurinn Reynir Pétur Ingvarsson á Sólheimum í Grímsnesi hefur heldur dregið úr gönguferðum sínum því hann er komin með gangráð af því að hann var svo fljótur að mæðast. Þess í stað hjólar hann mikið, auk þess að vera á rafskutlu. Lífið 8. júlí 2024 20:04
Mikil uppbygging framundan á Borg í Grímsnesi Heitasti reiturinn á Suðurlandi hvað varðar uppbyggingu nýrrar íbúðabyggðar í dag er á Borg í Grímsnesi en þar er búið að skipuleggja stóra nýja íbúðabyggð fyrir 220 íbúðir, auk nokkurra stórra lóða undir verslun og þjónustu. Innlent 7. júlí 2024 20:05
Landsvirkjun með hundraðasta frisbígolfvöll landsins Svo virðist sem frísbílgolfæði hafi runnið á landsmenn því nú var Landsvirkjun að opna hundraðasta völl landsins við Ljósafossstöð í Grímsnes og Grafningshreppi. Völlurinn er sagður vera sá allra flottasti í landinu. Innlent 28. júní 2024 21:05
„Öll aðstaða er til fyrirmyndar“ Rekstraraðili tjaldsvæðisins í Þrastaskógi segir að svæðið sé búið að vera lokað síðan í september á síðasta ári. Hann segir heilbrigðiseftirlitið hafa tekið svæðið út í vikunni og að það muni opna um mánaðamótin. Innlent 21. júní 2024 21:15
Starfsleyfi afturkallað vegna óviðunandi aðbúnaðs og umgengni Heilsbrigðisnefnd Suðurlands hefur fellt úr gildi starfsleyfi á tjaldsvæðinu í Þrastaskógi í Grímsnesi. Nefndin segir aðbúnað og umgengni með öllu óviðeigandi og að gistiþjónusta sé rekin án allra leyfa. Innlent 21. júní 2024 20:01
Ófagleg vinnubrögð HSU og FSRE Mikil umræða er þessa dagana um heilsugæslumál í Uppsveitum Árnessýslu. Engan skal undra þar sem Heilbrigðisstofnun Suðurlands (HSU) og Framkvæmdasýslan – Ríkiseignir (FSRE) hafa ákveðið að flytja Heilsugæsluna í Laugarási að Flúðum. Skoðun 20. júní 2024 17:30