Bandarískur blaðamaður drepinn nálægt Kænugarði Brent Renaud, fimmtugur blaðamaður og kvikmyndagerðarmaður frá Bandaríkjunum, var drepinn skammt frá Kænugarði í dag en Renaud hafði áður starfað fyrir miðla á borð við New York Times. Hann var þó ekki að störfum fyrir miðilinn þegar hann var drepinn. Erlent 13. mars 2022 14:58
Efast um að NATO myndi blanda sér í stríðið þó Rússar notuðu efnavopn Prófessor í stjórnmálafræði efast um að NATO myndi blanda sér í stríðið í Úkraínu ef Rússar myndu beita þar efnavopnum. Það þyrfti meira til að NATO færi í allsherjarstríð við Rússland. Erlent 13. mars 2022 13:10
Á fjórða tug látnir og varnamálaráðherrann sakar Rússa um hryðjuverk Skotið var á herstöð í Yavoriv, vestan við borgina Lviv í vesturhluta Úkraínu, í morgun en úkraínsk yfirvöld segja Rússa hafa verið að verki. Samkvæmt nýjustu tölum létust 35 og 134 særðust þegar tugum flugskeyta var skotið á herstöðina, sem er innan við 25 kílómetra frá landamærum Póllands. Erlent 13. mars 2022 09:52
Vaktin: Rafmagn komið aftur á í Tsjernobyl Úkraínsk yfirvöld segja Rússa hafa skotið á herstöð við landamæri Póllands, sem er NATO ríki, en 35 létust í árásinni að sögn yfirvalda. Fréttastofa Vísis, Stöðvar 2 og Bylgjunnar fylgist með þróun mála í Úkraínu í allan dag. Erlent 13. mars 2022 08:00
Missti annað barnið sitt í sprengjuárás Rússa Pútín Rússlandsforseti sýndi engan vilja til að binda enda á stríðið við Úkraínu að sögn franskra yfirvalda en Pútín átti símafund með Frakklandsforseta og kanslara Þýskalands í dag. Árásir Rússa á nokkrar úkraínskar borgir færðust mjög í aukana í morgun. Við vörum við myndefni sem fylgir myndbandinu í fréttinni. Erlent 12. mars 2022 23:00
Rússar verði háðir Kínverjum eftir nýjustu efnahagsþvinganir Evrópusambandið ætlar að meina Rússum aðgang að Alþjóðagjaldeyrissjóðnum sem myndi gera þá algerlega háða Kínverjum eða Indverjum þegar efnahagur landsins hrynur. Þetta er á meðal þess sem kynnt var í fjórða pakka þvingunaraðgerða gegn Rússlandi í gær. Erlent 12. mars 2022 20:30
Rússar hafi ráðist á almenna borgara á flótta Úkraínska leyniþjónustan segir að Rússar hafi skotið á bílalest fulla af konum og börnum, sem voru á leið frá noðvesturhluta Kyiv í gær. Rússnesk yfirvöld hafa ekki viljað tjá sig um ásakanirnar. Erlent 12. mars 2022 19:36
Sakar Loga um ódýra hræðslupólitík Þingmaður Sjálfstæðisflokksins og formaður íslandsdeildar NATO-þingsins sakar formann Samfylkingarinnar um ódýra hræðslupólitík, en hann sagði í dag að tilefni væri til að setja umsókn um aðild að Evrópusambandinu aftur á dagskrá. Innlent 12. mars 2022 15:56
Ekki nóg að vera í NATO og tímabært að huga að aðild að ESB Formaður Samfylkingarinnar segir kominn tíma á að setja aðildarumsókn að Evrópusambandi aftur rækilega á dagskrá. Innlent 12. mars 2022 13:35
Abramovich bannaður frá enskum fótbolta Enska úrvalsdeildin gaf út tilkynningu rétt í þessu að deildin hafi bannað Abramovich frá frekari aðkomu að deildinni sem stjórnandi Chelsea. Fótbolti 12. mars 2022 13:03
Líður öruggari með hverjum deginum sem líður: „Ég veit ekki hvað ég taldi margar hríðskotabyssur“ Íslendingur sem búsettur er í Kænugarði óttast ekki að Rússar séu að undirbúa áhlaup á borgina. Hann segir tilraunir Rússa til að ná úkraínskum borgum á sitt vald hafa misheppnast hrapalega. Næstu tveir dagar komi til með að segja mikið um framhald stríðsins. Erlent 12. mars 2022 12:09
Forsætisráðherra óttast að stríðið dragist á langinn Forsætisráðherra segir að að þjóðin eigi að halda áfram að fylgjast með fréttum af stríðinu í Úkraínu, þó það reyni mikið á og geti verið erfitt, ekki síst fyrir börn og ungmenni. Hún óttast að stríðið eigi eftir að dragast á langinn. Innlent 12. mars 2022 12:01
Reyna að koma upp flóttaleiðum en segja árásir Rússa linnulausar Sautjándi dagur innrásar Rússa í Úkraínu hófst með látum í morgun þar sem loftvarnasírenur ómuðu í flestum borgum Úkraínu. Vonir eru bundnar við að hægt verði að koma upp öruggum flóttaleiðum í dag en yfirvöld segja árásir Rússa gera þeim erfitt fyrir og stofna lífi flóttamanna í hættu. Erlent 12. mars 2022 11:08
Lögðu hald á lúxussnekkju rússneska auðjöfursins sem var á Íslandi Lögreglan á Ítalíu hefur lagt hald á lúxussnekkjuna Sailing Yacht A sem er í eigu rússneska auðjöfursins Andrey Igorevich Melnichenko. Umrædd snekkja vakti töluverða athygli hér á landi en Melnichenko dvaldi á Íslandi í nokkurn tíma í fyrra með fjölskyldu sinni. Erlent 12. mars 2022 09:08
Leigjendasamtökin lýsa yfir neyðarástandi á leigumarkaðnum Leigjendasamtökin lýsa yfir neyðarástandi á leigumarkaðnum, ennfremur hvetja samtökin stjórnvöld til að setja neyðarlög fyrir húsaleigumarkaðinn. Mikilvægt er að það verði gert til að verja stríđshrjáð flóttafólk, leigjendur og þá sem þurfa að búa sér heimili á leigumarkaði fyrir óheftu okri og fyrirsjáanlegum hækkunum á húsaleigu verði ekkert að gert. Skoðun 12. mars 2022 08:01
Vaktin: Segir rússneska herinn hafa orðið fyrir sögulegu höggi Rússar halda áfram að sækja að í Kænugarði en átök áttu sér stað norðvestur af borginni í morgun. Fréttastofa Vísis, Stöðvar 2 og Bylgjunnar fylgist með þróun mála í Úkraínu í allan dag. Erlent 12. mars 2022 07:52
Leita til TikTok-áhrifavalda til að tækla upplýsingaóreiðu Til þess að stemma stigu við upplýsingaóreiðu um innrás Rússa í Úkraínu hafa bandarísk yfirvöld leitað til þrjátíu helstu TikTok-áhrifavaldanna í Bandaríkjunum. Erlent 11. mars 2022 22:45
Úkraínskum borgarstjóra rænt Skrifstofa forseta Úkraínu segir Ivan Fedoro, borgarstjóra Melítópól í suðurhluta Úkraínu, hafa verið rænt af útsendurum innrásarliðs Rússa. Erlent 11. mars 2022 20:53
Troðfullt vöruhús af varningi á leið til Úkraínu Félag Úkraínumanna á Íslandi stendur nú fyrir söfnun fatnaðar og annarra nauðsynja sem senda á út til þeirra svæða í Úkraínu sem verst hafa orðið úti vegna innrásar Rússa í Úkraínu. Með hjálp ýmissa aðila hefur tekist að troðfylla heilt vöruhús af varningi. Innlent 11. mars 2022 20:30
Opnum stríðshrjáðu flóttafólki hlýjan faðm Nú þegar hafa á annað hundrað flóttamenn frá Úkraínu óskað eftir hæli hérlendis frá því að innrásin hófst og þeim fjölgar enn dag frá degi. Þess er vænst að tekið verði á móti allt að 2.000 manns frá Úkraínu á næstu vikum. Sumir dveljast hér tímabundið en aðrir setjast að lengur og snúa jafnvel aldrei aftur heim. Miklu skiptir að þetta fólk mæti hér hlýju, skilningi og fjölþættri aðstoð. Skoðun 11. mars 2022 19:31
Úkraínuforseti segir stefnu Rússa birtast í ásökunum þeirra gegn öðrum Forseti Úkraínu óttast að ásakanir Rússa um að Úkraínumenn séu að koma sér upp efnavopnum séu undanfari þess að þeir beiti slíkum vopnum í Úkraínu. Biden bandaríkjaforseti segir Putin algerlega hafa misreiknað samstöðu Vesturlanda. Rússar sækja vestur á bóginn í innrásinni. Erlent 11. mars 2022 19:21
Bankareikningum Chelsea lokað tímabundið Bankareikningum enska knattspyrnufélagsins Chelsea hjá Barclays-bankanum hefur verið lokað tímabundið. Er þetta enn eitt höggið sem félagið verður fyrir eftir að breska ríkisstjórnin ákvað að banna Roman Abramovich, rússneskum eiganda félagsins, að eiga í viðskiptum innan Bretlands. Enski boltinn 11. mars 2022 19:15
Gera ráð fyrir að á fjórða hundruð sæki um vernd það sem eftir lifir mars Alls hafa 143 einstaklingar með úkraínskt ríkisfang komið til Íslands og sótt um vernd frá því að innrás Rússa hófst fyrir rúmri viku en 34 komu til landsins í gær. Ríkislögreglustjóri áætlar að allt að 381 muni sækja um vernd hér á landi það sem eftir lifir mars, eða að meðaltali átján manns á dag. Innlent 11. mars 2022 13:55
Sendiráð Rússneska sambandsríkisins, Úkraínugötu 33 Víða um Evrópu eru götur, þar sem sendiráð Rússlands standa, nú endurnefndar til heiðurs frelsisbaráttu Úkraínu. Skoðun 11. mars 2022 13:00
Ófriður í álfunni gæti sett ferðasumarið í uppnám Stríðshörmungar eru það síðasta sem Evrópa þurfti eftir tvö ár af heimsfaraldri. Þetta á ekki síst við um ferðaþjónustuna sem fékk hvert höggið á fætur öðru síðastliðin ár þegar ýmist var hert eða slakað á sóttvarnaaðgerðum sem orkaði á ferðaþjónustuna eins og fjárhagslegur harmónikkuleikur þótt höggin væru milduð með fjárhagslegum úrræðum stjórnvalda. Viðskipti innlent 11. mars 2022 12:20
Þjóð í öfgum Mikil tækifæri eru í vinnslu og sölu orku til Evrópu og jafnvel mætti færa fyrir því rök að á okkur Íslendingum hvíli siðferðisleg skylda sem aðildarland NATÓ að leggja okkar að mörkum til að efla öryggi í álfunni með þeim hætti. Ísland hefur einkum lagt landfræðilega stöðu sína af mörkum til bandalagsins en ástæða er til að velta því upp hvort að framlag Íslands til NATÓ geti einnig tengst orkuöryggi. Umræðan 11. mars 2022 12:00
Útilokar ekki að slitið verði á tengslin við vinaborgina Moskvu Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri Reykjavíkur, segir ekkert útilokað í þeim efnum hvort slitið verði á tengsl Reykjavíkurborgar og vinaborgarinnar Moskvu. Í Danmörku bárust fréttir af því í gær að bæði Árósir og Álaborg hafi slitið á tengslin við rússneskar vinaborgir sínar vegna innrásar Rússa í Úkraínu. Innlent 11. mars 2022 10:44
Hrávörustríðið – ný tegund heimsstyrjaldar Innrásin í Úkraínu hefur veruleg áhrif á hrávöru, flutning á henni og hendur til að vinna hrávöru úr jörðu. Grunnur átakanna á svæðinu er beintengdur hagsmunum Rússa er kemur að hrávöru. Skoðun 11. mars 2022 10:00
Rússneska stórstjarnan stígur fram og gefur úkraínskum börnum pening Ein frægasta íþróttakona Rússa í sögunni hefur tekið afstöðu gegn innrás Rússa í Úkraínu. Sport 11. mars 2022 08:31
Níutíu prósent Íslendinga hlynnt móttöku flóttafólks frá Úkraínu Rúm níutíu prósent landsmanna eru hlynnt því að Ísland taki á móti flóttafólki frá Úkraínu. Innlent 11. mars 2022 07:18