Ísraelar íhuga árásir á Írana í Írak "Ég er að segja að við munum berjast gegn öllum ógnunum frá Írönum, og það skiptir ekki máli hvar.“ Erlent 3. september 2018 10:35
Hvetur þýsku þjóðina til að mótmæla áróðri öfgahægrimanna og rasista Fjölmennir hópar öfgaþjóðernissinna og vinstrisinnaðra mótmælenda hafa tekist á í þýsku borginni Chemnitz undanfarna daga. Erlent 3. september 2018 07:00
Bandalag eldklerksins stærst Bandalag Moqtada al-Sadr unnu sigur í írösku þingkosningunum sem fóru fram þann 12.maí Erlent 19. maí 2018 12:00
Tugir látnir í sprengjuárás í Bagdad 35 manns hið minnsta létu lífið í árás þar sem tveir sprengdu sjálfa sig í loft upp í Bagdad í morgun. Erlent 15. janúar 2018 08:22
Stafar enn ógn af starfsemi ISIS Árinu 2017 er að ljúka og kalífadæmi ISIS er í molum. Samtökin eru þó enn fullfær um að beita skæruhernaði. Það sást greinilega í gær þegar sjálfsmorðssprengjuárás kostaði 41 lífið í Kabúl, höfuðborg Afganistans. Erlent 29. desember 2017 06:00
Mosul: Ódæði framin í nafni hefndar Hefndaraðgerðir hermanna gegn grunuðum ISIS-liðum ógnar framtíðarstöðugleika ríksisns. Erlent 19. júlí 2017 14:30
Blair kom ekki hreint fram um Íraksstríðið Höfundur opinberrar skýrslu um þátt Breta í Íraksstríðinu segir að Tony Blair, þáverandi forsætisráðherra Bretlands, hafi ekki komið hreint fram við þjóðina um þær ákvarðanir sem hann tók. Þetta er í fyrsta skipti sem hann tjáir sig opinberlega um efni skýrslunnar sem kom út fyrir ári. Erlent 6. júlí 2017 21:14
Tuttugu fallnir eftir sjálfsmorðsárás í Falluja Að minnsta kosti 20 eru fallnir og aðrir 20 særðir eftir sjálfsmorðsárás í Falluja, vestur af Bagdad, í morgun. Maður gyrtur sprengjubelti gekk inn hóp manna sem hugðust sækja um vinnu hjá lögreglu og sprengdi sig í loft upp með þessum afleiðingum. Erlent 31. maí 2007 11:01
Telur Mahdi-sveitir hafa rænt Bretum í Bagdad Enn hefur ekkert spurst til fimm Breta sem rænt var í Bagdad, höfuðborg Íraks, í gær. Hoshyar Zebari, utanríkisráðherra landsins, sagði í morgun líklegra að liðsmenn Mahdi-herdeildanna, sem tengjast sjíaklerknum Muqtada al-Sadr, hefðu staðið á bak við ránið. Erlent 30. maí 2007 12:30
Al-Sadr aftur í sviðsljósið í Írak Róttæki sjíaklerkurinn Moqtada al-Sadr kom í dag í fyrsta sinn fram opinberlega í marga mánuði í Írak. Al-Sadr predikaði við föstudagsbænir í Kufa í austurlhluta Íraks og fordæmdi hersetu Bandaríkjamanna í landinu. Erlent 25. maí 2007 13:58
Bandaríkjamenn reyndu að ráða al-Sadr af dögum Bandaríkjamenn reyndu að ráð sjíaklerkinn Moqtada al-Sadr af dögum fyrir þremur árum eftir því sem breska dagblaðið Independent hefur eftir þjóðaröryggisráðgjafa Íraks Erlent 21. maí 2007 12:02
Cheney í óvæntri heimsókn til Íraks Dick Cheney, varaforseti Bandaríkjanna, kom í óvænta heimsókn til Íraks í dag. Heimsóknin er liður í ferð hans um Miðausturlönd sem ætlað er að stemma stigu við átökum ýmissa þjóðarbrota í Írak. Erlent 9. maí 2007 10:18
Fulltrúadeildin samþykkir að hefja heimflutning hermanna Fulltrúadeild Bandaríkjaþings samþykkti í gær að hefja heimflutning hermanna frá Írak í haust þrátt fyrir hótun Bush forseta um að beita neitunarvaldi gegn lagasetningunni. Erlent 26. apríl 2007 13:00
Fimmtán látnir eftir sjálfsmorðsárás í Ramadi Fimmtán hið minnsta eru sagðir látnir og 25 særðir eftir sjálfsmorðsárás manns í útjaðri Ramadi í Írak í dag. Maður á stórum flutningabíl sprengdi sig í loft upp þegar lögregla í eftirlitsferð átti leið hjá markaði í norðurhluta borgarinnar. Erlent 24. apríl 2007 21:52
Vilja að aftökum verði hætt í Írak Mannréttindasamtökin Amnesty International hafa kallað eftir því að aftökum í Írak verði hætt og hvetja bæði bandaríska og breska herinn til að afhenda írökskum stjórnvöldum ekki menn sem dæmdir hafa verið til dauða í landinu. Erlent 20. apríl 2007 08:53
Reid:Íraksstríðið er tapað Harry Reid, leiðtogi demókrata í öldungadeild Bandaríkjaþings, sagði George Bush Bandaríkjaforseta á fundi í gær að hann teldi að Íraksstríðið væri tapað og að viðbótarherafli sem sendur hefði verið nýverið til Íraks hefði engu skilað. Erlent 19. apríl 2007 19:23
Átta milljónir þurfa á hjálp að halda Fjöldi þeirra sem þurfa á bráðri hjálp að halda í Írak er átta milljónir, þar á meðal tvær milljónir flóttamanna og tvær milljónir heimilislausra. Þetta kom fram á sérstökum fundi sem haldin var um málefni Írak. Erlent 17. apríl 2007 14:03
Bandarískir hermenn skutu þrjá írakska lögreglumenn Bandaríski herinn rannsakar nú hvers vegna bandarískir hermenn skutu í dag þrjá írakska lögreglumenn til bana í áhlaupi á híbýli uppreisnarmanna sem taldir eru tengjast al-Qaida. Erlent 16. apríl 2007 13:52
Stríðið hefur alvarleg áhrif á íröksk börn Sjö af hverjum tíu börnum í grunnskólum í hverfi í Norður-Bagdad þjást af áfallaröskun þannig að þau stama eða pissa undir. Þetta leiðir ný skýrsla á vegum írakska heilbrigðisráðuneytisins í ljós en í rannsókninni var kannað hvaða áhrif stríðið í Írak hefði á börnin. Erlent 16. apríl 2007 10:34
Hreyfing Sadrs ætlar úr ríkisstjórn Stjórnmálahreyfing herskáa sjíaklerksins Moqtada al-Sadrs tilkynnti í dag að hún hygðist draga sig út úr ríkisstjórn Íraks á morgun til þess að þrýsta á um að Bandaríkjamenn legðu fram áætlun um brotthvarf hermanna sinna. Erlent 15. apríl 2007 20:01
Vel á annað hundrað látinn eftir helgina í Írak Vel á annað hundrað hafa fallið í hrinu ofbeldisverka í Írak um helgina. Mörg hundruð liggja þungt haldnir eftir röð bílsprengjuárása um allt landið í dag og í gær. Þá fórust tveir breskir hermenn þegar tvær herþyrlur skullu saman rétt utan við höfuðborgina Bagdad í morgun. Erlent 15. apríl 2007 19:45
Áframhaldandi blóðbað í Írak Átján féllu og fimmtíu manns eru særðir eftir tvær bílsprengjuárásir í fjölförnu hverfi í Baghdad í Írak í morgun. Seinni sprengjan sprakk aðeins nokkrum mínútum á eftir þeirri fyrri, þegar fjöldi fólks hafði safnast saman á staðnum þar sem sú fyrri sprakk. Erlent 15. apríl 2007 09:46
Mikið mannfall í árás í Karbala í morgun Lögregla í hinni helgu borg Karbala hefur lýst yfir útgöngubanni og lokað öllum leiðum inn og út úr borginni eftir að hátt í fimmtíu manns létust og yfir 60 særðust í sjálfsmorðsárás í morgun. Árásarmaðurinn sprengdi sprengjuna við fjölfarna strætisvagnastöð nærri bænahúsi sjía í borginni þar sem barnabarn Múhameðs spámanns er sagt grafið. Erlent 14. apríl 2007 11:12
Hópur tengdur al-Qaida segist bera ábyrgð á sprengjutilræði Íslamska ríkið í Írak, sem er uppreisnarhópur tengdur al-Qaida, lýsti í dag yfir ábyrgð á sjálfsmorðsárásinni sem gerð var á veitingastað í írakska þinginu í gær. Erlent 13. apríl 2007 14:16
Þrír starfsmenn í íraska þinghúsinu yfirheyrðir Íraska þingið fordæmdi í morgun sjálfsmorðssprengjuárás sem gerð var í þinghúsinu í Bagdad í gær. Einn þingmaður lét lífið í árásinni og tuttugu og tveir særðust. Þrír starfsmenn mötuneytis þingsins hafa verið yfirheyrðir í morgun vegna árásarinnar. Erlent 13. apríl 2007 12:07
Árás í þingi glæpaverk hugleysingja Nouri al-Maliki, forsætisráðherra Íraks, lýsti árásinni í írakska þinginu í Bagdad í morgun sem glæpaverki hugleysingja og sagði að hún myndi ekki draga kjarkinn úr írökskum þingmönnum. Að minnsta kosti tveir írakskir þingmenn eru nú sagðir látnir og vel á annan tug manna særður eftir árásina sem var í kaffiteríu í írakska þinginu. Erlent 12. apríl 2007 14:57
Varnarmálaráðuneytið lengir dvöl hermanna á vígstöðvum Bandarískir hermenn í Írak og Afganistan þurfa framvegis að vera 15 mánuði í stað eins árs á vígstöðvunum samkvæmt nýjum reglum sem Robert Gates, varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, kynnti í dag. Erlent 11. apríl 2007 21:59
Saka Írana um að vopnbúa uppreisnarmenn súnnía Talsmaður Bandaríkjahers sakaði í dag Írana um að um sjá uppreisnarmönnum úr röðum súnnía í Írak fyrir vopnum í baráttu sinni. Þetta er í fyrsta sinn sem Bandaríkjaher heldur slíku fram en áður höfðu Bandaríkjamenn sakaða Írana, sem eru langflestir sjíar, um að sjá sjíum í Írak fyrir vopnum. Erlent 11. apríl 2007 20:41
Máli á hendur Rasmussen vegna Íraksstríðs vísað frá Landsréttur í Danmörku vísaði í dag frá máli sem 26 andstæðingar Íraksstríðsins höfðuðu á hendur Anders Fogh Rasmussen, forsætisráðherra Danmerkur, vegna þátttöku Dana í stríðinu. Hópurinn, sem nefndi sig stjórnarskrárnefndina, var stofnaður í kjölfar innrásarinnar í Írak árið 2003. Erlent 11. apríl 2007 13:10