Íran

Íran

Höfuðborg: Teheran. Mannfjöldi: 89,6 milljónir (2025). Flatarmál: 1.648.195 ferkílómetrar.

Fréttamynd

Hegðun Trumps von­brigði

Snorri Másson, varaformaður Miðflokksins, telur að kjósendur Donalds Trump Bandaríkjaforseta hafi orðið fyrir vonbrigðum vegna stríðsreksturs stjórnvalda í Íran. Hann segir málflutning forsetans óboðlegan.

Innlent
Fréttamynd

Hótar að út­rýma írönsku þjóðinni

Bandaríkjaforseti virðist hóta kjarnorkustríði á hendur Íran í vanstilltri færslu á samfélagsmiðli. Þar fullyrðir hann að „heil siðmenning deyi út í nótt“. Hótunin tengist fresti sem forsetinn gaf Írönum að opna Hormússund og hann hefur ítrekað framlengt.

Erlent
Fréttamynd

Íranska þjóðin vöruð við því að nota lestar landsins í dag

Ísraelsher hefur varað Írani við því að nota lestarkerfi landsins í dag og fram til klukkan 21 í kvöld. Viðvörunin var gefin út á samfélagsmiðlinum X, þar sem sagði að íbúar væru vinsamlegast beðnir um að ferðast ekki með lestum í dag eða vera nálægt lestarleiðum, þar sem það myndi setja líf þeirra í hættu.

Erlent
Fréttamynd

Íranska þjóðin fagni sprengju­regni

Donald Trump Bandaríkjaforseti sagði írönsku þjóðina vilja heyra í sprengjuregni vegna þess að hún vill vera frjáls. Þungar loftárásir Bandaríkjanna og Ísraels séu Írönum til gagns.

Erlent
Fréttamynd

Til­lögum að vopnahléssamkomulagi komið til stríðandi fylkinga

Tillögur að samningi um tafarlaust vopnahlé milli Bandaríkjanna og Íran hefur verið komið á stríðandi aðila. Pakistanar, Egyptar og Tyrkir freista þess að binda enda á átökin áður en Trump lætur til kastanna koma og gerir stórtækari árásir á raforkuinnviði í Íran.

Erlent
Fréttamynd

Yfir­maður leyni­þjónustunnar felldur

Íranski byltingarvörðurinn segir í yfirlýsingu að Majid Khademi, forstjóri yfirmaður leyniþjónustu íranska hersins, hafi verið felldur af Ísraelsher og Bandaríkjaher. Ísraelsmenn gangast við þessu en varnarmálaráðherrann Israel Katz og Ísraelsher lýstu yfir ábyrgð í yfirlýsingum á samfélagsmiðlum.

Erlent
Fréttamynd

Flugliðinn nú „al­var­lega særður“

Bandaríski flugliðinn sem bjargað var í Íran er alvarlega særður, að sögn Donald Trump Bandaríkjaforseta. Bandarískir ráðamenn segja Bandaríkjaher hafa sprengt eigin flugvélar og þyrlur í björgunaraðgerðinni vegna bilana sem komu upp. Íranir vilja meina að þeir hafi grandað vélunum.

Erlent
Fréttamynd

„Opnið djöfulsins sundið, sjúku fantarnir ykkar“

„Opnið djöfulsins sundið, sjúku fantarnir ykkar, annars fáið þið að búa í helvíti,“ skrifar Donald Trump Bandaríkjaforseti í færslu á samfélagsmiðla. Hann ýjar að því að sprengja orkuver og brýr í Íran á þriðjudag, opni Íranir ekki Hormússund á ný.

Erlent
Fréttamynd

Gefur skít í helvítishótanir Trumps

Íranski herinn gerir lítið úr hótunum Donalds Trump Bandaríkjaforseta, sem sagði fyrr í dag að „allt færi til fjandans“ í Íran ef Íranir opnuðu ekki fyrir umferð um Hormússund eða samþykktu ekki friðarsamkomulag innan við tvo sólarhringa.

Innlent
Fréttamynd

„48 klukku­stundir þar til allt fer til fjandans“

Íranir hafa til mánudags til þess að opna Hormússund á ný eða gera einhvers konar samkomulag við Bandaríkin, annars fer allt í bál og brand. Svo hljóðar nýjasta hótun Bandaríkjaforseta, sem hefur þó lítið sem ekkert tjáð sig um týnda bandaríska flugmanninn sem Bandaríkjaher og Íranir keppast um að finna.

Erlent
Fréttamynd

Einum úr á­höfninni bjargað

Íranski herinn skaut bandaríska herflugvél af gerðinni F-15 yfir miðhluta landsins í dag. Leit að áhöfninni stendur yfir en öðrum áhafnarmeðlimi af tveimur hefur verið bjargað.

Erlent
Fréttamynd

Segir NATO „pappírstígur“ og í­hugar að hætta

Donald Trump segist íhuga það alvarlega að Bandaríkin hætti í Atlantshafsbandalaginu. Trump hefur lengi talað gegn bandalaginu og hefur hann virst reiður út í bandalagsríki Bandaríkjanna fyrir að aðstoða ekki við árásir á Íran og koma ekki askvaðandi þegar hann bað um aðstoð við að opna Hormússund aftur.

Erlent
Fréttamynd

Segir að að­gerðum gæti lokið eftir tvær til þrjár vikur

Donald Trump Bandaríkjaforseti segir Bandaríkjamenn munu „yfirgefa“ Íran innan tíðar og að hernaðaraðgerðum gæti lokið eftir tvær til þrjár vikur. Þá segir hann aðalmarkmiðum hafa verið náð, það er að segja að koma í veg fyrir að Íranir eignuðust kjarnavopn.

Erlent
Fréttamynd

„Banda­ríkin verða ekki lengur til staðar fyrir ykkur“

Donald Trump segir að þau ríki heims sem skorti eldsneyti vegna lokunar Hormússunds og hafi neitað að aðstoða Bandaríkin í stríðinu gegn Íran, standi ein. Forsetinn nefnir Bretland sérstaklega og segir að Bandaríkin verði ekki lengur til staðar fyrir þessi ríki.

Erlent
Fréttamynd

Skoðar að enda stríðið án þess að opna Hormússund

Donald Trump hefur sagt ráðgjöfum sínum í Hvíta húsinu að hann sé tilbúinn til að binda enda á stríð Bandaríkjanna gegn Íran, án þess að opna Hormússund fyrir skipasiglingar á nýjan leik. Forsetinn og ráðgjafar hans eru sagðir þeirrar skoðunar að það yrði of tímafrekt að opna sundið með hervaldi og þess vegna vilji hann halda í hluta af upprunalegu markmiðum sínum um að útrýma flota Íran og valda skaða á eldflaugaframleiðslu þar og binda enda á árásir á næstunni.

Erlent
Fréttamynd

Hyggjast tollleggja skipaumferð um Hormuz-sund

Íranskir miðlar hafa greint frá því að þingnefnd hafi samþykkt tillögu um að heimta toll af skipaumferð um Hormuz-sund. Samkvæmt fréttastofunni Fars verður sundið lokað skipum frá Bandaríkjunum, Ísrael og öðrum ríkjum sem hafa beitt Íran refsiaðgerðum.

Erlent
Fréttamynd

Segir við­ræður ganga stór­vel en hótar stríðsglæpum

Bandaríkjamenn eiga í viðræðum við „nýja og skynsamari“ ríkisstjórn í Íran um að binda enda á árásir á landið. Þessar viðræður hafa skilað miklum árangri, eftir því Donald Trump Bandaríkjaforseti, segir en hann hótar þó umfangsmiklum stríðsglæpum gegn Íran, náist samningar ekki fljótt og verði Hormússund ekki opnað fyrir skipasiglingar á nýjan leik.

Erlent
Fréttamynd

Enn fer ekki saman hljóð og mynd

Donald Trump Bandaríkjaforseti heldur áfram að hafa í hótunum við stjórnvöld í Íran, á sama tíma og hann segir samningaviðræður eiga sér stað, beint og óbeint, og lýsir nýrri forystu landsins sem „sanngjarnri“ (e. reasonable).

Erlent
Fréttamynd

Íranir búa sig undir á­rásir landherliðs

Íranir segjast tilbúnir að bregðast við árásum bandarískra landgönguliða sem þeir telja í farvatninu hjá Bandaríkjaher. Forseti íranska þingsins sakar Bandaríkjamenn um að skipuleggja slíkar árásir á sama tíma og þeir þykist opnir fyrir friðarviðræðum.

Erlent
Fréttamynd

Hútar gerðu aðra á­rás á Ísrael

Uppreisnarhópur Húta í Jemen skaut eldflaugum og drónum á nokkur skotmörk í suðurhluta Ísrael í sinni annarri loftárás á landið í dag. Talsmaður Húta segir árásirnar hafa beinst að mikilvægum hernaðarinnviðum. 

Erlent
Fréttamynd

Heimta enn að­stoð sem þeir segjast ekki þurfa

Marco Rubio, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, tekur undir með Donald Trump, forseta, um að bandamenn Bandaríkjanna í Evrópu þurfi að gera meira þegar kemur að því að opna Hormússund fyrir umferð olíuflutningaskipa á nýjan leik. Rubio segir Bandaríkjamenn sífellt beðna um að styðja Úkraínu og hjálpa til í stríði sem sé á annarri heimsálfu. Þegar Bandaríkjamenn þurfi á aðstoð að halda hafi Trump fengið neikvæð svör.

Erlent
Fréttamynd

Segir við­semj­endur ekki þora að gangast við við­ræðum

Donald Trump Bandaríkjaforseti segir stjórnvöld í Íran áfjáð í að komast að samkomulagi til að binda enda á árásir Bandaríkjanna og Ísrael en að þau séu hrædd við að viðurkenna það. Viðsemjendur Bandaríkjanna óttist að vera myrtir af eigin stjórn. „Þeir eru líka hræddir um að verða drepnir af okkur,“ sagði forsetinn í gær.

Erlent