Erlent

Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn banda­mönnum sínum

Eiður Þór Árnason skrifar
Donald Trump Bandaríkjaforseti þurfti að þola mikinn ósigur. Hann segir niðurstöðuna alls ekki vera sér að kenna. 
Donald Trump Bandaríkjaforseti þurfti að þola mikinn ósigur. Hann segir niðurstöðuna alls ekki vera sér að kenna.  AP/Alex Brandon

Donald Trump Bandaríkjaforseti lét gamminn geisa á samfélagsmiðli sínum um það leyti sem kosninganiðurstöður og spár fóru að birtast í gær. Ríkisstjórn hans hefur verið sökuð um að reyna að grafa undan trúverðugleika kosninganna en forsetinn segist nú ætla að viðurkenna niðurstöðuna sem hefur verið lýst sem algerum ósigri.

Forsetinn er dyggur áhorfandi bandarísku íhaldsstöðvarinnar Fox News og er greinilegt að hann fylgdist náið með umfjöllun þeirra um það leyti sem kjörstöðum var lokað.

„Er að horfa á forniðurstöðurnar kosninganna á FoxNews, en ég þoli ekki rödd Jessicu Tarlov — HEIMSK EINS OG STEINN, en það er röddin sem fer í mig. Verð að fara eitthvert annað þangað til þessi LÚSER er farin úr loftinu — ég kem aftur síðar!“ skrifaði Trump á Truth Social klukkan 22:25. Tarlov starfar fyrir Demókrataflokkinn en er meðal reglulegra þáttastjórnenda í þættinum The Five á Fox News.

„Skoðanakönnun FoxNews, alltaf sú versta, spyr svo móðgandi spurninga. Hver einasta spurning er rógsherferð og hvert einasta svar er „KJAFTÆÐI!“ Þetta hefur viðgengist árum saman,“ skrifaði Trump síðar.

Þá sagði hann áhorfstölur sjónvarpsstöðvarinnar hafa hrunið vegna þess að hún eyddi of miklum tíma í umfjöllun um Demókrata sem væru með ranghugmyndir og Trump á heilanum.

„Engin furða að áhorfstölur FoxNews séu að hrynja, og þær eiga eftir að fara mun neðar. Þær hafa hrapað, ekki mín vegna, heldur vegna þess að þeir eru Á MÓTI mér! Þetta gerðist einu sinni áður og Fox hrundi næstum. Það er að gerast aftur!“ 

Á einhverjum tímapunkti virtist Trump vera að senda skilaboð á þáttastjórnendur The Five á meðan þeir voru í beinni útsendingu.

Hann hringdi síðar inn í þáttinn og mátti þá heyra aðeins mildari tón í forsetanum. „Þetta kom mér svolítið á óvart. Ég hélt að þeim myndi ganga betur.“

Margir þáttastjórnendur Fox News hafa löngum verið yfirlýstir stuðningsmenn og jafnvel nánir bandamenn. Þá hefur sjónvarpsfólk þaðan ratað í ríkisstjórn hans.

Ekki honum að kenna

Í viðtali við The New York Times sagðist Trump vera til í að vinna með Demókrötum í þinginu og sagði ástæðuna fyrir tapinu vera að hann hafi ekki sjálfur verið á kjörseðlinum. Þá sagði hann ákvörðun sína um að hefja stríð í Íran hafa verið „mjög gáfulega ákvörðun“ en stríðið hefur notið mikilla óvinsælda meðal bandarísks almennings þvert á flokka.

Vinsældir Trumps hafa mælst litlar í könnunum um langt skeið og farið þverrandi. 

Fréttin er í vinnslu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×