Innlent

Dragi upp­sagnirnar til baka

Bjarki Sigurðsson skrifar
Steinunn María Sveinsdóttir er formaður FÍSOS. Hún gagnrýnir niðurskurð borgarstjóra á söfnum.
Steinunn María Sveinsdóttir er formaður FÍSOS. Hún gagnrýnir niðurskurð borgarstjóra á söfnum. Vísir/Egill/Einar

Félag íslenskra safna og safnafólks (FÍSOS) harmar uppsagnir sem hafa átt sér stað á söfnum og öðrum menningarstofnunum undanfarið. Reykjavíkurborg hvött til þess að draga til baka nýlegar uppsagnir en Borgarbókasfanið fækkaði stöðugildum um fimm um mánaðamótin.

Þetta kemur fram í ályktun stjórnar félagsins. FÍSOS hvetur eigendur safna til að láta ekki skammtímasjónarmið ráða för við ákvarðanatöku um hagræðingu í rekstri. 

„Með því að veikja getu safna til að sinna rannsóknum, skráningu og varðveislumálum er verið að veikja alla aðra starfsemi þeirra. Mannauðurinn er mikilvægasta auðlind safnanna. Í stóru myndinni í hagræðingu sveitarfélaga skipta uppsagnir örfárra safnastarfsmanna litlu máli en þær geta haft miklar, langvarandi og jafnvel varanlegar afleiðingar á starfsemi þeirra safna sem um ræðir,“ segir í ályktuninni. 

Til að mynda var Borgarbókasafninu gert að skera niður um 85 milljónir króna, sem nemur um fimm prósentum af fjárframlögum safnsins. Stöðugildum var þá fækkað um fimm. 

Söfn gegni mikilvægu hlutverki þegar kemur að ferðaþjónustunni og að samfélagslegt hlutverk þeirra sé stórt. 

„Langflest söfn á Íslandi eru viðurkennd söfn sem starfa samkvæmt safnalögum og eru undir eftirliti Safnaráðs. Með það að markmiði að varðveita og miðla menningararfinum til komandi kynslóða, er framtíðin safnamönnum hugleikin. Því mega ákvarðanir um rekstur safna og hlutverk þeirra ekki vera teknar með skammsýni að leiðarljósi,“ segir í ályktuninni. 

„Að endingu hvetur FÍSOS Reykjavíkurborg til þess að draga til baka nýlegar uppsagnir á söfnum borgarinnar og standa vörð um rannsóknir og miðlun á sögu Reykjavíkur.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×