Helsti valdamaður flugsins var oftast utan sviðsljóssins Hann var einn valdamesti maður íslenska fluggeirans um áratugaskeið og sá sem lengst allra sat í stjórn Flugleiða. Hann stóð þó utan sviðsljóssins þrátt fyrir að hafa allan sinn starfsferil jafnframt verið einn af lykilstjórnendum Loftleiða og síðar Flugleiða. Innlent 14.5.2025 13:00
Spá óbreyttum stýrivöxtum Greiningardeild Íslandsbanka spáir því að Seðlabankinn muni halda stýrivöxtum óbreyttum við næstu vaxtaákvörðun sem kynnt verður á miðvikudaginn í næstu viku. Talsverðar líkur séu þó einnig á smáu vaxtalækkunarskrefi. Stýrivextirnir standa nú í 7,75 prósentum. Viðskipti innlent 14.5.2025 12:35
Jákvætt að almenningur njóti forgangs við söluna Bankastjóri Íslandsbanka segir jákvætt að almenningur njóti forgangs við sölu á hluti ríkisins í Íslandsbanka, um sé að ræða góða fjárfestingu. Útboð vegna sölunnar hófst í dag en fjármálaráðherra segir núverandi aðstæður á mörkuðum góðar fyrir sölu. Viðskipti innlent 13.5.2025 19:03
Greinendur verðmeta Íslandsbanka 33 prósentum yfir lágmarksgengi í útboðinu Innherji 13.5.2025 15:39
Ráðuneytið ræður fjögur íslensk fjármálafyrirtæki vegna sölunnar á Íslandsbanka Viðskipti innlent 12.5.2025 13:23
Sjóvá fundaði með PPP en afþakkaði þjónustu Tryggingafyrirtækið Sjóvá hefur staðfest að PPP hélt kynningu fyrir starfsfólk félagsins á sama tíma og fyrirtækið vann að rannsókn á fyrrum eigendum og stjórnendum Sjóvár fyrir sérstakan saksóknara. Samkvæmt yfirlýsingu frá Sjóva fjallaði kynning PPP um hvort það gæti aðstoðað við rannsókn mögulegra tryggingasvika. Viðskipti innlent 12. maí 2025 12:53
Samkeppnisstaða Alvotech verði „enn sterk“ þótt verð á frumlyfjum muni lækki Ef áform Trump um að knýja í gegn tugprósenta lækkun á verði lyfja vestanhafs mun raungerast ætti það að sama skapi að leiða til verðhækkana á frumlyfjum í Evrópu og öðrum löndum, að sögn forstjóra Alvotech, og styrkja þá samkeppnisstöðu félagsins enn frekar utan Bandaríkjanna. Hann telur að útspil Bandaríkjaforseta muni ekki hafa áhrif á boðaða skráningu Alvotech í Svíþjóð í næstu viku og vegna „mikils áhuga“ séu væntingar um að stórir norrænir fjárfestar muni bætast við hluthafahópinn eftir að félaginu verður fleytt á markað þar í landi. Innherji 12. maí 2025 11:21
Icelandair hættir rekstri stærstu flugvéla sinna Ráðamenn Icelandair hafa tekið þá ákvörðun að hætta breiðþoturekstri og nota eingöngu mjóþotur í millilandafluginu. Þá er framundan að ákveða hvort aðeins verði reknar Airbus-þotur eða hvort Boeing Max-þoturnar verði áfram í flotanum. Innlent 10. maí 2025 22:11
Bankastjóri Íslandsbanka: Syngur hástöfum fjölskyldunni til hryllings Jón Guðni Ómarsson, bankastjóri Íslandsbanka, er ekki góður söngvari. Að minnsta kosti hryllir fjölskyldunni við þegar hann fær lag á heilann og syngur það hástöfum. Blessunarlega erfðu börnin ekki þennan skort á sönghæfileikunum. Atvinnulíf 10. maí 2025 10:04
Salan á Íslandsbanka: Samið við fjóra erlenda söluaðila Fjármála- og efnahagsráðuneytið hefur ákveðið að ganga til samninga við fjóra erlenda aðila til að sinna sölu hlutabréfa í fyrirhuguðu útboði á hlutum ríkisins í Íslandsbanka. Tilkynnt verður um þá innlendu aðila sem sinna munu hlutverki söluaðila í fyrirhuguðu útboði fljótlega. Viðskipti innlent 9. maí 2025 14:36
Umframfé Íslandsbanka verður hátt í 40 milljarðar með nýju bankaregluverki Umtalsvert minni niðurfærsla á lánasafni Íslandsbanka en búist var við þýddi að afkoman á fyrsta fjórðungi, sem er að birtast fáeinum dögum áður en ríkið áformar að selja stóran hluta í bankanum, var umfram væntingar greinenda en þrátt fyrir það er arðsemin nokkuð undir markmiði. Með bættri fjármagnsskipan og innleiðingu á nýju bankaregluverki mun umfram eigið fé Íslandsbanka, að sögn stjórnenda, vera hátt í fjörutíu milljarðar króna. Innherji 9. maí 2025 11:32
Hagnaðist um rúma fimm milljarða á fyrsta ársfjórðungi Hagnaður af rekstri Íslandsbanka nam 5,2 milljörðum króna á fyrsta ársfjórðungi 2025. Vaxtatekjur jukust um tæp sjö prósent, samanborið við sama ársfjórðung í fyrra og þóknanatekjur um tæp tvö prósent. Viðskipti innlent 9. maí 2025 07:49
Sérstakt áhyggjuefni „hversu veikburða“ íslenski hlutabréfamarkaðurinn er Með hliðsjón af þjóðhagslegu mikilvægi þess að vera með skilvirkan hlutabréfamarkaði þá er það „sérstakt áhyggjuefni“ hversu veikburða hann er hér á landi, að sögn stjórnanda hjá Kviku, en bankinn fór ekki varhluta af erfiðu árferði á mörkuðum á fyrsta fjórðungi með minni tekjum í markaðsviðskiptum og samdrætti í eignum í stýringu. Forstjóri Kviku, sem skilaði ágætis uppgjöri með arðsemi rétt undir markmiði sínu, viðurkennir að umbreyting Aur í þá átt að bjóða upp á víðtækari bankaþjónustu hafi gengið hægt en bankinn mun á „allra næstu vikum“ hefja innreið sína á húsnæðislánamarkað undir vörumerki Auðar. Innherji 8. maí 2025 16:28
Samþykktu að bæta við leið fyrir stóra fjárfesta í sölu Íslandsbanka Þriðju tilboðsbókinni í sölu á eignarhlut ríkisins í Íslandsbanka var bætt við með lagabreytingum sem samþykktar voru á Alþingi í dag. Sú leið á að auka líkur á að stórir fjárfestar taki þátt í útboðinu án þses að gengi verði á forgang einstaklinga. Viðskipti innlent 8. maí 2025 14:22
Alvotech bætir við skráningu í Svíþjóð eftir uppgjör sem var vel yfir væntingum Tekjur og rekstrarhagnaður Alvotech á fyrsta fjórðungi var verulega yfir væntingum greinenda, sem þýddi að hlutabréfaverð félagsins hækkaði um meira en tuttugu prósent í viðskiptum á eftirmarkaði í Bandaríkjunum, og hafa stjórnendur félagsins uppfært nokkuð afkomuspána fyrir árið 2025. Félagið hefur jafnframt boðað skráningu og útboð í Svíþjóð síðar í mánuðinum, sem er aðeins um fjögur hundruð milljónir að stærð og því ekki til að afla nýs hlutafjár, og verður útboðsgengið að hámarki í kringum 1.200 krónur á hlut. Innherji 8. maí 2025 09:23
Tæplega átta milljarða króna viðsnúningur milli ára Alvotech hagnaðist um tæplega 1,4 milljarða króna á fyrsta ársfjórðungi ársins en tapaði 6,3 milljörðum króna króna á sama tímabili í fyrra. Það gerir tæplega 7,7 milljarða króna viðsnúning milli ára. Félagið hefur hækkað afkomuspá sína aftur eftir að hafa lækkað hana fyrir skömmu. Viðskipti innlent 8. maí 2025 08:35
„Íslenskir bankar eru með belti, axlabönd, sikrisnælur og hjálma“ Bæði almenningur og fagfjárfestar munu geta keypt í Íslandsbanka í fyrirhugðu útboði stjórnvalda á eignarhlut í bankanum. Sérfræðingur á fjármálamarkaði ráðleggur ríkisstjórninni að flýta sér hægt og hafa upplýsingagjöf í lagi. Innlent 7. maí 2025 21:31
Styrking krónu og verðfall hlutabréfa tók eignir sjóðanna niður um 400 milljarða Skörp gengisstyrking krónunnar gagnvart Bandaríkjadal, ásamt talsverðum verðlækkunum hlutabréfa bæði hér heima og vestanhafs, þýddi að eignir íslensku lífeyrissjóðanna skruppu saman um nærri fjögur hundruð milljarða á aðeins tveimur mánuðum í febrúar og mars. Hlutabréfaverð um allan heim, einkum í Bandaríkjunum þar sem erlendar eignir sjóðanna eru að stórum hluta, féll enn frekar eftir að Bandaríkjaforseti boðaði tollastríð við umheiminn í upphafi apríl en markaðir hafa rétt nokkuð úr kútnum á allra síðustu vikum. Innherji 7. maí 2025 17:44
Margrét hættir sem forstjóri Nova Margrét Tryggvadóttir, forstjóri Nova, hefur óskað eftir að láta af störfum eftir sjö ár í forstjórastól og 18 ár hjá félaginu. Hún mun gegna starfinu áfram til 1. desember og sinna ráðgjöf fyrir félagið eftir að hún lætur af störfum. Viðskipti innlent 7. maí 2025 17:21
Sýkna í Samskipamálinu en Eimskip þarf samt að passa sig Hæstiréttur hefur sýknað Samkeppniseftirlitið af kröfum Samskipa um ógildingu sáttar Eimskips við eftirlitið. Meðal þess sem sáttin mælir fyrir um er bann á viðskipti milli Eimskips og Samskipa. Hæstiréttur bendir á að sýknan komi ekki í veg fyrir að Samskip leiti réttar síns vegna mögulegra brota Eimskips á samkeppnislögum. Viðskipti innlent 7. maí 2025 16:34
Lítill vöxtur milli ára hjá atvinnufyrirtækjum og þrýstingur á framlegð Samanlagður hagnaður 24 félaga á Aðalmarkaði í Kauphöllinni minnkaði lítillega á liðnu fjárhagsári og var arðsemi eigin fjár aðeins rétt yfir meginvöxtum Seðlabankans á tímabilinu, samkvæmt greiningu Jóns Gunnars Jónssonar, fyrrverandi forstjóra Bankasýslunnar, á afkomu fyrirtækjanna. Sé aðeins litið til skráðra atvinnufyrirtækja þá sýna niðurstöður uppgjöra félaganna hverfandi tekjuvöxt milli ára á sama tíma og það er þrýstingur á framlegð hjá þeim. Umræðan 7. maí 2025 12:18
Áhrif tolla Trumps væru innan við eitt prósent Alvotech áætlar að mögulegir tollar á innflutning lyfja til Bandaríkjanna hefðu hverfandi áhrif á tekjur félagsins af sölu lyfja á árinu. Viðskipti innlent 7. maí 2025 10:10
Hefði fengið rúmum tíu þúsundkalli meira í vasann í bankaútibúi Það getur kostað ríflega 20 prósent meira að skipta gjaldeyri hjá fyrirtækinu Change Group, sem er með aðstöðu í Leifstöð, en það myndi kosta að skipta sama gjaldeyri í útibúi íslenskra banka. Þannig sýnir nýlegt dæmi að viðskiptavinur hefði getað fengið rúmum tíu þúsund krónum meira í sinn hlut með því að skipta gjaldeyri í útibúi í bænum frekar en í Leifsstöð. Neytendur 7. maí 2025 09:42
Veiðigjöldin enn rædd en þó ekki á dagskrá í dag Frumvarp Hönnu Katrínar Friðriksson atvinnuvegaráðherra um veiðigjöld á sjávarútvegsfyrirtækin, eitt umdeildasta mál þessa þings, var frestað á Alþingi um klukkan tíu í gærkvöldi. Þingmenn hafa nú rætt málið fram á kvöld tvo daga í röð og sér ekki fyrir endann á. Innlent 7. maí 2025 07:51
„Gróskuhugarfarið hjálpar okkur líka að viðurkenna mistök” „Gróskuhugarfarið tel ég mjög mikilvægt í þessari vegferð. Því við vitum ekki svörin nema með því að prófa okkur áfram, með þá nálgun og hugarfar á öllum stigum að klárlega gerum við mistök á leiðinni sem við þurfum þá að læra af,” segir Þórir Ólafsson, forstöðumaður Stafrænnar þróunar hjá Icelandair. Atvinnulíf 7. maí 2025 07:00
Berjaya vill halda áfram að leigja Nordica og Natura Berjaya Hotels Iceland hefur tilkynnt að þau ætli að nýta forleigurétt sinn við Reiti fasteignafélag hf. að Hilton Reykjavík Nordica og Reykjavík Natura hótel er staðsett. Íslandshótel gerðu samning við Reiti í síðasta mánuði um rekstur og leigu til sautján mánaða með þeim fyrirvara að Berjaya hefði forleigurétt. Viðskipti innlent 6. maí 2025 21:40