Ísland áfram eina græna land Evrópu Fjórðu vikuna í röð er Ísland eina græna landið á litakóðunarkorti Sóttvarnastofnunar Evrópu vegna kórónuveirufaraldursins. Innlent 19. febrúar 2021 06:33
Fleiri flugvélar lentu á Akureyri en á Keflavíkurflugvelli Það hefur sjaldan verið eins tómlegt á Keflavíkurflugvelli þar sem farþegum hefur fækkað enn frekar undanfarnar vikur. Nú ráfa nokkrir tugir og kannski í mestu örfá hundruð farþega um flugstöðina á meðan það voru þúsundir og jafnvel upp í tugþúsundir manna á ferð á hverjum degi. Innlent 18. febrúar 2021 21:01
Heimir með kórónuveiruna Heimir Hallgrímsson, fyrrverandi landsliðsþjálfari Íslands í fótbolta, hefur greinst með kórónuveiruna. Fótbolti 18. febrúar 2021 15:30
Dæmdur fyrir að hósta á lögreglu og hrópa „kóróna“ Hæstiréttur í Danmörku hefur dæmt tvítugan karlmann í fjögurra mánaða fangelsi fyrir að hafa hóstað á tvo lögreglumenn og hrópað „kóróna“. Maðurinn er dæmdur fyrir brot gegn valdstjórninni, en sömuleiðis fyrir að hafa flúið frá lögreglustöð. Erlent 18. febrúar 2021 14:54
Telur aðgerðir á landamærum hér með þeim vægari í Evrópu Þórólfur Guðnason, sóttvarnalæknir, vísar því á bug að aðgerðir hér á landamærum verði með því hörðustu sem um getur í Evrópu þegar ný reglugerð tekur gildi á morgun. Innlent 18. febrúar 2021 12:34
„Erfitt að bregðast við því þegar fólk er með svo einbeittan brotavilja“ Víðir Reynisson yfirlögregluþjónn segir að aukið eftirlit með komufarþegum á Keflavíkurflugvelli hafi meðal leitt til þess að fjölmargir panti leigubíl niður í bæ í Keflavík þangað sem ættingjar sækja þá. Innlent 18. febrúar 2021 12:17
Á ferðinni um Ísafjörð en átti að vera í skimunarsóttkví Lögreglan á Vestfjörðum rannsakar nú meint sóttkvíarbrot manns, sem handtekinn var á Ísafirði í síðustu viku. Maðurinn var nýkominn til landsins og átti að vera í skimunarsóttkví en var handtekinn við akstur bifreiðar í bænum. Innlent 18. febrúar 2021 11:51
Tillögur að tilslökunum um eða eftir helgi Þórólfur Guðnason, sóttvarnalæknir, mun skila Svandísi Svavarsdóttur, heilbrigðisráðherra, tillögum að tilslökunum innanlands um helgina eða fljótlega eftir helgi. Innlent 18. febrúar 2021 11:37
Enginn greindist innanlands sjötta daginn í röð Sjötta daginn í röð greindist enginn með korónuveiruna innanlands í gær. Tveir greindust með veiruna á landamærum, þar sem annar reyndist vera með mótefni og er niðurstöðu mótefnamælingar beðið í tilvikum hins. Innlent 18. febrúar 2021 10:54
Svona var 163. upplýsingafundurinn vegna kórónuveirunnar Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra og embætti landlæknis boða til upplýsingafundar klukkan 11 í dag. Þar munu Víðir Reynisson yfirlögregluþjónn og Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir fara yfir stöðu mála varðandi framgang COVID-19 faraldursins hér á landi. Innlent 18. febrúar 2021 10:33
Kórónuveirusmitum á Englandi fækkað mikið á einum mánuði Á einum mánuði hefur kórónuveirusmitum á Englandi fækkað um tvo þriðju. Sérfræðingar vara þó við því að skólar verði opnaðir í bráð, því veiran sé nú að dreifa sér hraðast á meðal barna á skólaaldri og yngra fólks. Erlent 18. febrúar 2021 07:48
Fékk ekki að millilenda þrátt fyrir „gulltryggingu með tveimur mótefnamælingum“ Ísold Guðlaugsdóttir er búsett í Svíþjóð. Hún var búin að vera á Íslandi í um tvo mánuði en var snemma í gærmorgun mætt á Keflavíkurflugvöll þar sem hún átti flugmiða heim til Stokkhólms með millilendingu í Kaupmannahöfn. Hún fékk aftur á móti ekki að fara um borð í vélina til Kaupmannahafnar þar sem hvorugt skjalið sem hún var með í höndunum um að hún væri með mótefni gegn covid-19 var tekið gilt. Annað reyndist of gamalt og hitt of nýtt. Innlent 17. febrúar 2021 23:23
Breyta fyrirkomulagi upplýsingafunda og þakka samstöðu þjóðarinnar Frá því í október hefur fréttamönnum verið óheimilt að vera viðstaddir upplýsingafundi almannavarna og landlæknis af sóttvarnarástæðum og í stað þess tekið þátt í fundunum í gegnum fjarfundarbúnað. Innlent 17. febrúar 2021 19:18
Tekjur tvöfölduðust á kórónuveiruárinu Tekjur netöryggisfyrirtækisins AwareGo rúmlega tvöfölduðust frá árinu 2019 til 2020. Fyrirtækið þakkar vöxtinn að mestu stórum langtímasamningum við erlend fyrirtæki og endursöluaðila sem hlaupi á milljónum dollara, hundruðum milljóna króna. Framkvæmdastjóri AwareGo segir vöxt fyrirtækisins undanfarin tvö ár hafa verið ævintýralegan. Viðskipti innlent 17. febrúar 2021 16:25
Hyggjast smita allt að 90 heilbrigða einstaklinga í rannsóknarskyni Á næstu vikum verður nýju rannsóknarverkefni hrint úr vör þar sem heilbrigðir einstaklingar verða smitaðir af SARS-CoV-2. Tilgangurinn er að kanna betur ónæmisviðbrögð líkamans og hvernig veiran berst á milli einstaklinga. Erlent 17. febrúar 2021 15:05
Íslendingar komist heim án PCR-prófs en líkast til beittir sektum Engum íslenskum ríkisborgara verður meinað að koma til landsins samkvæmt reglugerð um kröfu á farþega um að framvísa neikvæðu PCR-prófi áður en þeir koma til Íslands. Framkvæmdin hefur enn ekki verið fullmótuð en grípa þyrfti til viðurlaga ef Íslendingur kemur ekki með neikvætt próf til landsins. Innlent 17. febrúar 2021 14:41
Hafa þróað hermilíkan um áhrif bólusetningar Hröð bólusetning elstu aldurshópanna dregur mjög úr fjölda þeirra sem veikjast lífshættulega af Covid-19 þótt ljóst sé að afleiðingarnar yrðu miklar á heilbrigðiskerfið ef kæmi til útbreidds faraldurs, jafnvel þótt vel takist að verja elstu hópana. Innlent 17. febrúar 2021 11:47
Aftur greindist enginn með veiruna innanlands en sex á landamærum Fimmta daginn í röð greindist enginn með korónuveiruna innanlands í gær. Sex greindust með veiruna á landamærum, fimm með virk smit í fyrri skimun og er niðurstöðu mótefnamælingar beðið í tilvikum eins. Innlent 17. febrúar 2021 10:43
Mörg flugfélög í samstarf við UNICEF um dreifingu bóluefna Flugfélög um allan heim leggjast á eitt um að koma bóluefna gegn COVID-19 til fátækari ríkja heims. Heimsmarkmiðin 17. febrúar 2021 10:13
Ekki ljóst hvort bólusettir geti borið veiruna til landsins Sóttvarnalæknir vildi að heilbrigðisráðherra drægi til baka ákvörðun um að undanskilja þá tvöfaldri skimun á landamærunum geti þeir sýnt fram á að þeir hafi verið bólusettir við kórónuveirunni. Ekki liggi fyrir vísindalega séð hvort þeir sem eru bólusettir geti borið veiruna án þess að veikjast og þannig smitað aðra. Innlent 16. febrúar 2021 19:30
Bóluefni Janssen komið á borð evrópsku lyfjastofnunarinnar Lyfjastofnun Evrópu hefur borist umsókn um skilyrt markaðsleyfi fyrir bóluefni Janssen, sem er dótturfélag bandaríska lyfjaframleiðandans Johnson og Johnson. Erlent 16. febrúar 2021 18:33
Íslenskum ríkisborgurum verði aldrei vísað úr landi Heilbrigðisráðherra segir að íslenskum ríkisborgurum verði aldrei vísað úr landi. Hún telur kröfu um að allir framvísi PCR-prófi áður en þeir koma til landsins standast stjórnarskrá og tekur ekki undir efasemdir sem komið hafa fram þess efnis. Innlent 16. febrúar 2021 15:24
Veður og veira... það vorar að lokum Heilbrigðisyfirvöld stefna nú að því að bólusetja 190 þúsund landsmanna fyrir júnílok en gróft reiknað jafngildir það því að allir 35 ára og eldri verði þá bólusettir. Innlent 16. febrúar 2021 15:18
Frekari tilslakanir innanlands gætu komið til í næstu viku Frekari tilslakanir innanlands voru ekki ræddar á ríkisstjórnarfundi í morgun að sögn Svandísar Svavarsdóttur, heilbrigðisráðherra. Hún á þó von á minnisblaði frá Þórólfi Guðnasyni, sóttvarnalækni, um afléttingar innanlands á næstu dögum og að frekari tilslakanir gætu þá tekið gildi í næstu viku. Innlent 16. febrúar 2021 12:23
Katrín segir einhug innan ríkisstjórnarinnar um aðgerðir á landamærunum Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra segir einhug innan ríkisstjórnarinnar um aðgerðir á landamærunum en heilbrigðisráðherra greindi frá því eftir ríkisstjórnarfund í morgun að enginn kæmi til landsins frá og með föstudegi án þess að geta sýnt fram á neikvætt PCR-próf á brottfararstað. Innlent 16. febrúar 2021 12:15
Útgöngubann stjórnvalda stangast á við stjórnarskrá Dómstóll í Haag í Hollandi hefur beint því til þarlendra stjórnvalda að aflétta útgöngubanni sem komið hafði verið á til að hefta útbreiðslu kórónuveirunnar. Erlent 16. febrúar 2021 12:08
Enginn til Íslands frá og með föstudegi án neikvæðs prófs Ný reglugerð varðandi aðgerðir á landamærunum tekur gildi á föstudag. Helsta breytingin er sú að komufarþegar verða nú krafðir um svokallað PCR-próf á brottfararstað og þarf prófið að sýna neikvæða niðurstöðu varðandi kórónuveirusmit. Innlent 16. febrúar 2021 11:25
Tölvuþrjótar Kim reyndu að stela gögnum um bóluefni Tölvuþrjótar á vegum Norður-Kóreu hafa reynt að stela upplýsingum um framleiðslu bóluefna og þar á meðal uppskriftinni að bóluefni Pfizer. Þetta kom fram á fundi forsvarsmanna leyniþjónustu Suður-Kóreu með þingmönnum í nótt. Erlent 16. febrúar 2021 11:00
Fjórða daginn í röð greindist enginn innanlands Fjórða daginn í röð greindist enginn með korónuveiruna innanlands í gær. Innlent 16. febrúar 2021 10:43
Heilbrigðisráðherra ræddi tillögur Þórólfs Ríkisstjórnin situr á reglulegum þriðjudagsfundi sínum í Ráðherrabústaðnum þar sem til umræðu er meðal annars nýtt minnisblað Þórólfs Guðnasonar sóttvarnalæknis þar sem hann leggur til hertar aðgerðir á landamærunum vegna kórónuveirufaraldursins. Innlent 16. febrúar 2021 10:19