Árekstur á Höfðabakkabrú Árekstur varð á Höfðabakkabrú nú fyrir skömmu en tveir sjúkrabílar hafa verið sendir á vettvang. Innlent 12. júní 2024 16:53
Einn umdeildasti kennari landsins lætur af störfum Páll Vilhjálmsson framhaldsskólakennari í Garðabæ mun ekki mæta til kennslu næsta haust. Tekist hefur samkomulag milli hans og Kristins Þorsteinssonar skólameistara að komið sé gott. Innlent 12. júní 2024 15:27
Lögregla fámál um húsleit í máli Davíðs Viðarssonar Lögregla vill lítið tjá sig um húsleit sem framkvæmd var í síðasta mánuði í tengslum við rannsókn á máli Davíðs Viðarssonar, áður Quang Le. Rannsóknin er afar umfangsmikil og þrír hinna grunuðu hafa setið í gæsluvarðhaldi í að verða 14 vikur. Innlent 12. júní 2024 14:09
Hrottaleg árás á átján ára mann enn til rannsóknar Fólskuleg árás á átján ára mann á leið sinni heim úr útskriftarveislu í Árbæ í Reykjavík sunnudaginn 2. júní er enn til rannsóknar hjá lögreglunni. Innlent 12. júní 2024 13:40
Stunginn í heimahúsi í Súðavík Ungur karlmaður var handtekinn í heimahúsi í Súðavík seint í gærkvöldi, grunaður um að hafa stungið mann. Maðurinn hlaut lífshættuleg stungusár og var fluttur með sjúkraflugi til Reykjavíkur. Hann er nú kominn úr lífshættu. Innlent 12. júní 2024 10:20
Rannsaka kynferðisbrot en ekki innbrot Réttargæslumaður konu sem kært hefur kynferðisbrot um borð í skipinu Polar Nanoq, Áslaug Lára Lárusdóttir, segir staðhæfingar útgerðarstjóra Sigguk A/S um að rannsókn lögreglu snúi að innbroti um borð í Polar Nanoq alrangar. Lögregla rannsaki kynferðisbrot, ekki innbrot. Innlent 11. júní 2024 18:21
Senda fólk inn úr sólinni Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur undanfarna daga haft eftirlit með veitingastöðum og kannað sérstaklega hvort umræddir staðir hafi leyfi til útiveitinga, en pottur virðist víða brotinn í þeim efnum. Gestum veitingastaða hefur víða verið vísað inn af útisvæði veitingastaða sem ekki hafa tilskilin leyfi til veitinga utandyra. Innlent 11. júní 2024 15:30
Segir allan áburð um kynferðisbrot úr lausu lofti gripinn Frans Heilmann útgerðarstjóri Sigguk A/S, sem er undir hatti Polar Seafood, segir fréttaflutning af meintu kynferðisbroti í frystitogaranum Polar Nanoq illskiljanlegan og ömurlegan. Innlent 11. júní 2024 15:30
Sextán ára reyndi að stinga lögguna af Sextán ára gamall strákur gerði tilraun til þess að stinga lögreglu af á Hafnarfjarðarvegi í gær. Hann fór Heiðmerkurleið og inn í Kórahverfi í Kópavogi þar sem hann endaði utan vegar. Bíllinn er stórskemmdur en þrír voru í bílnum. Innlent 11. júní 2024 15:22
Einn stunginn þegar tveir hópar voru að útkljá sín mál Einn maður var stunginn eða skorinn með hníf í Kópavogi skömmu fyrir miðnætti í gærkvöld. Hann var fluttur á slysadeild til aðhlynningar með áverka á hendi sem eru ekki taldir alvarlegir. Innlent 11. júní 2024 10:19
Skemmdarverk unnin á lögreglubílum Lögreglan á Suðurnesjum óskar eftir upplýsingum um skemmdarverk sem hafa verið unnin á lögreglubílum. Innlent 11. júní 2024 08:13
Ók í gegnum grindverk heimahúss og fannst skammt frá Lögreglunni var tilkynnt um hópslagsmál í Kópavogi í gærkvöldi í nótt. Einn var slasaður eftir slagsmálin og var sá fluttur á slysadeild. Einn var handtekinn vegna málsins, grunaður um alvarlega líkamsárás. Innlent 11. júní 2024 06:24
Rænulaus maður á almannafæri reyndist ferðamaður í sólbaði Lögreglu var í dag tilkynnt um mann sem var sagður liggja rænulaus á almannafæri í Reykjavík. Sá reyndist vera erlendur ferðamaður að sólbaða sig í góða veðrinu. Innlent 10. júní 2024 17:46
Fólkið sem er talið hafa brotið á Maltverjanum látið laust Tveir sakborningar sem grunaðir erum um að brjóta á maltneskum karlmanni í Reykholti í Biskupstungum lok aprílmánaðar hafa ekki verið úrskurðaðir í frekara gæsluvarðhald. Innlent 10. júní 2024 11:40
Þrír liggja undir grun en eru líklegast komnir úr landi Mennirnir þrír sem voru handteknir á laugardaginn og yfirheyrðir vegna kynferðisbrots sem er sagt tengjast grænlenska frystitogaranum Polar Nanoq sæta ekki farbanni vegna málsins. Allir þrír hafa þó stöðu sakbornings í málinu og liggja þar af leiðandi allir undir grun um kynferðisbrot. Innlent 10. júní 2024 11:29
Banaslys á Vesturlandsvegi í Borgarfirði Banaslys varð á Vesturlandsvegi skammt frá Hraunsnefi í Norðurárdal í Borgarfirði á níunda tímanum í gær. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglu. Innlent 10. júní 2024 10:25
Lögregluaðgerðir á nokkrum stöðum í tengslum við vændisrannsókn Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu réðist í aðgerðir á nokkrum stöðum á höfuðborgarsvæðinu í síðustu viku í tengslum við vændisrannsókn. Höfð voru afskipti af og rætt við nokkurn fjölda einstaklinga sem tengjast auglýsingum fyrir vændi. Innlent 9. júní 2024 19:04
Lögregla sendi fólk aftur inn úr blíðunni Gesti á Kaffibrennslunni í miðbænum var vísað inn af útisvæði staðarins eftir að í ljós kom að tilskilin leyfi til veitinga utandyra voru ekki til staðar. Lögreglumenn fóru á nokkra veitingastaði og bari niðri í bæ til að athuga hvort þeir væru með leyfi til veitingareksturs utandyra. Innlent 9. júní 2024 17:01
Þremur skipverjum verið sleppt úr haldi Enginn er í varðhaldi í tengslum við rannsókn lögreglu vegna gruns um kynferðisbrot sem sagt er tengjast skipverja á grænlenska frystitoganum Polar Nanoq. RÚV greindi frá því í gær, samkvæmt heimildum, að lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hafi handtekið skipverja vegna gruns um kynferðisbrot og að fleiri skipverjar hafi verið yfirheyrðir. Innlent 9. júní 2024 10:56
Grunaður um að hafa brotið á konu um borð í Polar Nanoq Skipverji á grænlenska togaranum Polar Nanoq var handtekinn í morgun, grunaður um að hafa farið með konu um borð í togarann og brotið á henni kynferðislega. Innlent 8. júní 2024 18:22
Mótmælendur höfða mál á hendur ríkinu Daníel Þór Bjarnason er í hópi átta mótmælenda tók þátt í mótmælum á vegum samtakanna Ísland-Palestínu þann 31. maí síðastliðinn sem hafa ákveðið að leita réttar síns vegna þess sem þau kalla ólögmætrar og óhóflegrar valdbeitingar lögreglunnar. Undirbúningur er hafinn á höfðun dómsmáls á hendur embættis lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Innlent 7. júní 2024 16:19
Stolið af Grænum skátum fyrir tvær til þrjár milljónir á mánuði Tveimur til þremur milljónum króna hefur verið stolið frá Grænum skátum í formi dósa og flaska á söfnunarstöðum. Jón Ingvar Bragason, framkvæmdastjóri Grænna skáta, segir að staðfestur grunur sé um að ákveðinn aðili sé á bak við verknaðinn. Innlent 7. júní 2024 11:41
Tilkynnt um ungmenni með byssur í 101 Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu var kölluð út í dag vegna ungmenna með byssur í miðborg eða Vesturbæ Reykjavíkur í dag. Í dagbók lögreglu segir að komið hafið svo í ljós að um var að ræða krakka í „byssu og bófa leik“. Lögreglan sinnti fjölda annarra verkefna í dag varðandi ýmis mál. Innlent 6. júní 2024 22:09
Tóku svartan mann hálstaki við handtöku og greiða bætur Ríkið hefur fallist á að greiða nítján ára manni, sem er dökkur á hörund, 150 þúsund krónur í bætur vegna handtöku sem hann varð fyrir á Þjóðhátíð á síðasta ári. Lögreglan tók manninn hálstaki í tjaldi. Innlent 6. júní 2024 13:27
Ungur maður varð fyrir alvarlegri líkamsárás í Árbæ Ráðist var á átján ára mann á leið sinni heim úr útskriftarveislu í Árbæ aðfaranótt sunnudags. Hann var kýldur, sparkað var í hann liggjandi í höfuð, brjóstkassa og maga. Innlent 6. júní 2024 13:18
Gæsluvarðhald framlengt yfir tveimur en einn látinn laus Tveir sakborningar voru úrskurðaðir í áframhaldandi gæsluvarðhald á mánudaginn í tengslum við rannsókn lögreglunnar á Suðurlandi á frelsissviptingu, líkamsárás og fjárkúgun í Reykholti gegn maltneskum manni. Gæsluvarðhaldið gildir til fyrsta júlí. Innlent 6. júní 2024 12:00
Engir ytri áverkar sem skýra andlátin Engir ytri áverkar voru á líkum sambýlisfólks á sjötugsaldri sem fannst látið á heimili sínu í Bolungarvík í síðustu viku. Dánarorsök er ekki ljós og nákvæm dánarstund liggur ekki fyrir, en ekkert bendir til þess að andlátin hafi borið að með saknæmum hætti. Innlent 6. júní 2024 10:59
Kærði gæsluvarðhaldsúrskurð vegna manndráps til Landsréttar Maður sem grunaður er um að hafa orðið konu sinni að bana á Akureyri í lok aprílmánaðar kærði áframhaldandi gæsluvarðhaldsúrskurð til Landsréttar á mánudag. Landsréttur hefur ekki enn tekið málið fyrir. Innlent 6. júní 2024 10:31
Hætta rannsókn banaslyssins í Óshlíð Ríkissaksóknari hefur staðfest ákvörðun lögreglunnar á Vestfjörðum um að hætta rannsókn á banaslysi í Óshlíð fyrir rúmlega fimmtíu árum síðan. Hinn nítján ára gamli Kristinn Haukur Jóhannesson er talinn hafa látist þegar leigubifreið sem hann var í hafnaði utan vegar á Óshlíðarvegi árið 1973. Málið var tekið upp að nýju í maí 2022, en rannsaka átti hvort að andlát hans hafi mögulega borið að með öðrum hætti. Innlent 5. júní 2024 18:35
Hefði verið auðvelt að koma í veg fyrir banaslysið Umsögn Vinnueftirlitsins varpar nýju ljósi á banaslys sem varð fyrir sjö árum síðan í svefnskála fiskverkunarfyrirtækisins Háteigs á Reykjanesi. Adam Osowski, 43 ára frá Póllandi, lést í slysinu eftir að gas úr borholu Reykjanesvirkjunar komst upp í gegnum vatnslagnir vegna yfirþrýstings inn í svefnskálanum. Innlent 5. júní 2024 14:31