Bandero dregið úr höfn og flutt til Akraness Bandero, skip Paul Watson-samtakanna, var dregið úr höfn í gærkvöldi og til Akraness. Gísli Jóhann Hallsson, yfirhafnsögumaður hjá Faxaflóahöfnum, sagði við mbl.is í gærkvöldi að búa ætti til pláss við höfnina. Um rekstrarlega ákvörðun hafi verið að ræða. Innlent 18.8.2026 07:32
Geta skotið drónum langt inn fyrir landsvæði NATO-ríkja Rússar hafa á undanförnum árum komið upp herstöðvum víða í vesturhluta landsins. Þaðan eru þeir taldir geta skotið öflugum drónum langt inn á landsvæði ríkja Atlantshafsbandalagsins. Erlent 17.8.2026 23:47
Gott að Trump hafi opnað á umræðuna Yfirmaður herafla Bandaríkjanna í Evrópu, sem er sömuleiðis yfirherforingi NATO, segir það jákvætt að ummæli Donalds Trump Bandaríkjaforseta um Grænland hafi ýtt undir umræðu um mikilvægi varnarmála á Norðurslóðum. Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra tekur heils hugar undir. Innlent 17.8.2026 21:55
Rússnesk stýriflaug líklega lent í Póllandi Rússnesk Kh-101 stýriflaug á leið til Úkraínu lenti í Póllandi í nótt. Þetta segir Andrii Sybiha, utanríkisráðherra Úkraínu. Władysław Kosiniak-Kamysz, varnarmálaráðherra Póllands, segir að „líklegast“ hafi verið um að ræða Kh-101 stýriflaug sem skotið er úr lofti. Atvikið sé enn til rannsóknar. Erlent 30. júlí 2026 09:27
Kíkti í kaffi til kanslarans „Ég átti þar leið hjá og nýtti tækifærið,“ segir Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra Íslands í færslu, en hún hitti Friedrich Merz kanslara Þýskalands í vikunni. Lífið 29. júlí 2026 22:21
Skutu niður meinta rússneska dróna í lofthelgi ESB í þriðja sinn Rúmenía skaut í gær niður dróna sem flaug inn í lofthelgi landsins en talið er að hann hafi verið á vegum Rússa. Þetta var í þriðja sinn sem það gerist á jafnmörgum dögum, að sögn forseta landsins. Erlent 27. júlí 2026 08:54
Vopnaframleiðendur reyna að koma til móts við Evrópu Forsvarsmenn bandarískra hergagnaframleiðenda mættu áhyggjum þegar þeir mættu á flugsýningu í Farnborough í Bretlandi í vikunni. Þar lýstu evrópskir viðskiptavinir ítrekað yfir áhyggjum af því að reiða of mikið á Bandaríkjamenn þegar kemur að hergögnum og framleiðslu þeirra. Erlent 24. júlí 2026 12:35
NATO 3.0 kallar á nýtt varnarsamstarf í Evrópu á grunni JEF Sú staðreynd að hugmyndin um NATO 3.0 er nú sett fram ætti að vera Evrópubúum skýr vísbending um að hagsmunir Bandaríkjanna af öryggi Evrópu hafi tekið verulegum breytingum. Umræðan 23. júlí 2026 08:19
Heimurinn aftur orðinn flóknari en NATO muni aðlagast Þrjú spænsk herskip eru við Reykjavík vegna eftirlits- og viðbragðsverkefnis NATO á Norður-Atlantshafi. Tvö kanadísk herskip eru á leið til landsins og fyrirhuguð er sameiginleg æfing í vikunni þar sem varnir gegn árásum dróna verða æfðar. Innlent 21. júlí 2026 21:00
Fylgjendafjöldi Kristrúnar fimmfaldast Kristrún Frostadóttir vakti greinilega athygli heimamanna á leiðtogafundi Atlantshafsbandalagsins í Tyrklandi í vikunni. Fylgjendafjöldi hennar á Instagram hefur fimmfaldast og farið úr 20 þúsundum í rúm 107 þúsund á fjórum dögum. Nýju fylgjendurnir virðast flestir vera Tyrkir og hafa færslur Kristrúnar fyllst af tyrkneskum ummælum. Lífið 10. júlí 2026 10:41
Fengu öll áletraða skammbyssu að gjöf frá Erdogan Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra og aðrir leiðtogar NATO-ríkjanna fengu skammbyssu að gjöf frá Recep Tayyip Erdogan Tyrklandsforseta við lok leiðtogafundar NATO í Ankara í gær. Nafn hvers og eins leiðtoga var áletrað á byssuna sem sá fékk að gjöf og fylgdi kassi af skotfærum með, auk græja til að hreinsa byssuna. Innlent 9. júlí 2026 07:53
Kristrún um Trump: „Það er hlýtt á milli okkar“ Leiðtogafundi Atlantshafsbandalagsins í Tyrklandi lauk í dag en þar fór Bandaríkjaforseti mikinn og hélt áhuga sínum á Grænlandi til streitu. Forsætisráðherra segir mikla hlýju hafa einkennt fundinn og vel fór á milli hennar og Donalds Trump. Innlent 8. júlí 2026 18:52
Aukin framlög til varnarmála og öflugur stuðningur við Úkraínu á leiðtogafundi NATO Aukin framlög til varnarmála og framlag Evrópu og Kanada til sameiginlegra varna, efling varnariðnaðar og öflugur stuðningur við Úkraínu voru í forgrunni leiðtogafundar Atlantshafsbandalagsins í Ankara í Tyrklandi í dag. Forsætisráðherra og utanríkisráðherra Íslands sóttu fundinn. Innlent 8. júlí 2026 16:37
Sneri sér við, greip í spaðann á Kristrúnu og gekk út Leiðtogafundur Atlantshafsbandalagsins fór fram í Ankara í Tyrklandi í gær og í morgun en Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur farið mikinn þar. Athygli vakti að eftir myndatöku með leiðtogum bandalagsins sneri Trump sér við og tók í spaðann á Kristrúnu Frostadóttur en engum öðrum. Innlent 8. júlí 2026 14:50
Ummæli Trump um Grænland þurfi ekki að koma á óvart Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra segir að ummæli Donalds Trump Bandaríkjaforseta um Grænland þurfi ekki að koma á óvart. Hún segist þó vongóð um að farsæl lausn náist þar sem formlegur vinnuhópur bandarískra, danskra og grænlenskra stjórnvalda sé starfandi. Innlent 8. júlí 2026 08:58
Trump fer hamförum í Ankara: Búinn að fá nóg af Írönum, sparkar í Nató og vill hætta öllum viðskiptum við Spán Donald Trump Bandaríkjaforseti segir samtal Bandaríkjamanna og Írana vera komið á endastöð. „Ég nenni ekki að fást við þá lengur. Þeir eru úrhrök,“ sagði forsetinn í Ankara í morgun. „Þeir eru veikir, þeir eru grimmir... ofbeldisfullt fólk.“ Erlent 8. júlí 2026 08:40
Forsætisráðherra Kanada óskaði eftir því að deila Haaland á næsta HM Mark Carney, forsætisráðherra Kanada, brá á leik á leiðtogafundi Atlantshafsbandalagsins í Tyrklandi og óskaði eftir liðsstyrk fyrir fótboltalandslið þjóðarinnar fyrir næsta heimsmeistaramót. Fótbolti 8. júlí 2026 08:03
Tólf Evrópuríki sögð ætla að smíða nýja langdræga eldflaug Tólf Evrópuríki hyggjast taka saman höndum og verja 37 milljörðum punda á næstu tíu árum til að smíða nýja langdræga eldflaug. Frá þessu greindu stjórnvöld á Bretlandseyjum, sem fara fyrir verkefninu en það verður til umræðu á leiðtogafundi Atlantshafsbandalagsins í Ankara í Tyrklandi í dag. Erlent 8. júlí 2026 07:17
Trump sló harðan tón við upphaf leiðtogafundar NATO Bandaríkjaforseti hefur ítrekað á ný að Grænland eigi að tilheyra Bandaríkjunum. Hann lét í ljós vonbrigði og óánægju með viðbrögð NATO-ríkja við stríðinu í Íran. Hann hafi lagt próf fyrir evrópsk bandalagsríki þegar hann hafi óskað eftir stuðningi þeirra. Erlent 7. júlí 2026 21:29
NATO-ríki auki stuðning við Úkraínu Utanríkisráðherra segir aðild Íslands að NATO mikilvæga og nýlegar árásir Rússa á Úkraínu dragi fram mikilvægi þess að sýna fram á samheldni bandalagsins. Ísland, meðal annarra aðildarríkja, ætli að auka stuðning við Úkraínu. Innlent 7. júlí 2026 18:33
Gæti hætt að styðja við Evrópu fái Bandaríkin ekki Grænland Donald Trump Bandaríkjaforseti segir Dani ekki verja nægum fjármunum til að hjálpa Grænlandi, og á móti hjálpi Grænlendingar Danmörku ekki nægjanlega vel. Erlent 7. júlí 2026 15:24
„Mjög er horft til þess sem Bandaríkjaforseti segir“ „Mjög er horft til þess sem Bandaríkjaforseti segir.“ Þetta segir Albert Jónsson, sérfræðingur í alþjóðamálum og fyrrverandi sendiherra, um yfirstandandi leiðtogafund NATÓ sem fer fram í Ankara á Tyrklandi. Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra eru mættar til Tyrklands til að sækja fundinn. Innlent 7. júlí 2026 13:36
Kristrún og Þorgerður á NATO-fundinum í Ankara Aukin framlög til varnarmála, jafnari skipting byrða og stuðningur við Úkraínu er talinn verða í forgrunni á leiðtogafundi Atlantshafsbandalagsins sem hefst í Ankara í Tyrklandi í dag. Kristrún Frostadóttir, forsætisráðherra, og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, sækja fundinn fyrir hönd Íslands. Innlent 7. júlí 2026 10:07
NATO-stjóri segir Trump hafa rétt fyrir sér um allt Framkvæmdastjóri Atlantshafsbandalagsins segir að Donald Trump Bandaríkjaforseti hafi haft á réttu að standa í gagnrýni sinni á evrópsk bandalagsríki og með því að ráðast á Íran. Hann segir að sér líki vel við forsetann. Erlent 7. júlí 2026 09:45