Treyja Kobe Bryant nú vinsælust í Kína Kobe Bryant á nú vinsælustu keppnistreyju allra leikmanna í NBA deildinni í Kína á meðan treyja heimamannsins Yao Ming hefur hrapað niður lista þeirra söluhæstu. Treyja Bryant er sú vinsælasta í Bandaríkjunum, en Yao Ming er aðeins í sjötta sæti í heimalandi sínu. Körfubolti 21. mars 2007 15:59
Cuban ætlaði að selja Dallas Mavericks Mark Cuban, eigandi Dallas Mavericks í NBA deildinni, segist hafa verið nálægt því að selja félagið eftir að það tapaði fyrir Miami Heat í úrslitunum síðasta sumar. Hann segist hafa hætt við allt saman eftir að hafa átt langt spjall við Dirk Nowitzki. Körfubolti 21. mars 2007 13:44
NBA: Charlotte stöðvaði sigurgöngu Cleveland Tíu leikir fóru fram í NBA-deildinni í nótt. Charlotte Bobcats stöðvuðu átta leikja sigurgöngu Cleveland Cavaliers með 108-100 sigri í framlengdum leik. Cleveland höfðu forystu nær allan leikinn en í síðasta leikhluta komu Charlotte-menn til baka og náðu að jafna. Þeir áttu svo meira eftir til að klára framlenginguna. LeBron James var að vanda langatkvæðamestur Cleveland-manna, skoraði 37 stig og gaf 6 stoðsendingar. Hjá Charlotte skiptist stigaskorið jafnar á milli manna; Gerald Wallace var stigahæstur með 27 stig, Matt Carroll skoraði 20, Raymond Felton 17 og Walter Herrmann kom af bekknum og skoraði 19 stig. Körfubolti 21. mars 2007 09:08
Kidd og Bryant leikmenn vikunnar Jason Kidd hjá New Jersey og Kobe Bryant hjá LA Lakers voru útnefndir leikmenn vikunnar í NBA deildinni í gær. Kidd leiddi New Jersey til sigurs í þremur af fjórum leikjum sínum og skoraði 14,5 stig, gaf 12,8 stoðsendingar og hirti 7,5 fráköst. Kobe Bryant fór fyrir liði Lakers og skoraði að meðaltali 46,7 stig að meðaltali í þremur leikjum með LA Lakers, en liðið vann tvo af þremur leikjum sínum í vikunni. Körfubolti 20. mars 2007 12:02
Boston steinlá fyrir New Orleans Tveir leikir fóru fram í NBA deildinni í körfubolta í nótt. New Orleans vann auðveldan sigur á Boston í Oklahoma City 106-88 og Atlanta burstaði Sacramento 99-76. Leikur New Jersey og Denver verður sýndur beint á NBA TV sjónvarpsstöðinni klukkan 23 í kvöld. Körfubolti 20. mars 2007 11:52
Kobe Bryant orðinn stigahæstur á ný Kobe Bryant er nú kominn með hæsta meðaltalið í stigaskorun í NBA deildinni í fyrsta skipti í vetur eftir að hann skoraði 115 stig í síðustu tveimur leikjum. Carmelo Anthony hjá Denver hafði verið stigahæstur í deildinni síðan 18. nóvember, en nú er Bryant kominn upp í 30 stig að meðaltali í leik á meðan Anthony er með 29,8 stig að meðaltali. Körfubolti 19. mars 2007 16:33
Enn ein sýningin hjá Kobe Bryant Kobe Bryant olli ekki aðdáendum sínum vonbrigðum frekar en fyrri daginn þegar hann skoraði 50 stig fyrir LA Lakers í 109-102 sigri liðsins á Minnesota í beinni útsendingu á NBA TV í nótt. Orlando stöðvaði sigurgöngu Miami og Houston burstaði Philadelpha með 50 stiga mun á útivelli. Körfubolti 19. mars 2007 03:12
Góður sigur Dallas í Detroit Dallas vann í kvöld mikilvægan sigur á Detroit á útivelli í NBA deildinni í körfubolta. Dirk Nowitzki fór fyrir liði Dallas eins og svo oft áður og skoraði 28 stig og hirti 12 fráköst. Detroit var án leikstjórnandans Chauncey Billups sem er meiddur, en staðgengill hans Ron Murray skoraði 18 stig fyrir Detroit. Körfubolti 18. mars 2007 22:24
New York skellti Toronto Einum leik er þegar lokið í NBA deildinni í körfubolta í kvöld. New York Knicks lagði Toronto auðveldlega í Madison Square Garden 92-74. Stephon Marbury skoraði 14 af 21 stigi sínu í þriðja leikhlutanum þar sem New York hafði betur 35-13 og lagði grunninn að sigrinum. Körfubolti 18. mars 2007 18:50
Lakers - Minnesota í beinni á miðnætti Leikur LA Lakers og Minnesota Timberwolves verður sýndur beint á NBA TV sjónvarpsstöðinni á miðnætti í nótt. Kobe Bryant skoraði 65 stig í sigri Lakers í síðasta leik eftir að liðið hafði tapað sjö leikjum í röð og gaman verður að sjá hvort kappinn verður í viðlíka stuði í kvöld. Þá verður annar stórleikur á dagskrá í NBA í kvöld þegar Detroit tekur á móti Dallas. Körfubolti 18. mars 2007 17:25
Denver valtaði yfir Phoenix Nokkur óvænt úrslit urðu í NBA deildinni í körfubolta í nótt. Denver rótburstaði Phoenix, Boston hélt upp á dag heilags Patreks með fyrsta sigri sínum í San Antonio í 18 ár og Chicago tapaði fyrir Memphis. Þá vann Cleveland 8. leikinn í röð og Indiana afstýrði vafasömu meti þegar liðið vann sinn fyrsta sigur í 12 leikjum. Körfubolti 18. mars 2007 14:05
Kobe Bryant skoraði 65 stig Kobe Bryant var ekki á þeim buxunum að tapa áttunda leiknum í röð með liði sínu LA Lakers þegar það mætti Portlant í NBA deildinni í nótt. Lakers hafði betur 116-111 eftir framlengdan leik, þar sem Kobe Bryant skoraði 65 stig fyrir Lakers. Körfubolti 17. mars 2007 13:47
Milwaukee - San Antonio á Sýn í kvöld Leikur Milwaukee Bucks og San Antonio Spurs í NBA deildinni frá í gærkvöld verður sýndur á sjónvarpsstöðinni Sýn í kvöld klukkan 0:40. San Antonio var búið að vinna 13 leiki í röð fyrir viðureignina í gærkvöldi. Körfubolti 16. mars 2007 19:22
Enn tapar Lakers 3 leikir voru í NBA körfuboltanum í gærkvöldi. Los Angeles Lakers steinlá fyrir Denver Nuggets113-86. Þetta var 7. tapleikur Lakers í röð og í 1. sinn á 16 ára þjálfaraferli sem Phil Jackson upplifir það að lið hans tapi 7 í röð. Linas Kleiza var stigahæstur hjá Nuggets með 29 stig sem er það mesta sem hann hefur skorað á ferlinum. Kobe Bryant var stigahæstur hjá Lakers með 25 stig. 13 leikja sigurhrinu San Antonio Spurs lauk í gærkvöldi í Bradley Center í Milwaukee. Milwaukee vann 101-90. Daginn fyrir leikinn rak Milwaukee þjálfarann, Larry Stotts, og aðstoðarþjálfarinn, Larry Krystkowiak, tók við liðinu. Miami Heat vann 8da leikinn í röð í gærkvöldi, sigraði New Jersey 93-86. Shaquille O´Neal skoraði 19 stig fyrir Miami þar af 17 í seinni hálfleik. Körfubolti 16. mars 2007 08:54
Ummæli Phil Jackson kostuðu 7 milljónir Phil Jackson þjálfari LA Lakers í NBA deildinni var í dag sektaður um 3,5 milljónir króna fyrir ummæli sín síðasta fimmtudag, þegar hann sagði forráðamenn deildarinnar vera á nornaveiðum. Hann lét þessi orð falla eftir að aganefnd deildarinnar rannsakaði meint brot Kobe Bryant hjá Lakers í þriðja sinn á stuttum tíma. Þá var félagið einnig sektað um sömu upphæð og því kostuðu ummælin alls um 7 milljónir króna. Körfubolti 15. mars 2007 20:10
Hæ krakkar, notið eiturlyf Miðherjinn Scot Pollard hjá Cleveland Cavaliers er ekki vinsælasti maðurinn í Ohio um þessar mundir eftir misheppnað grín hans í beinni útsendingu sjónvarps á sunnudaginn. Körfubolti 15. mars 2007 19:36
Phoenix skellti Dallas í stórkostlegu einvígi Leikur Dallas Mavericks og Phoenix Suns í NBA deildinni í nótt var réttilega auglýstur sem einvígi tveggja bestu liðanna í deildinni. Leikurinn var stórkostleg skemmtun og réðust úrslitin ekki fyrr en um leið og lokaflautið gall í annari framlengingu. Phoenix hafði betur 129-127 og batt þar með enda á 23 leikja sigurgöngu Dallas á heimavelli. Körfubolti 15. mars 2007 05:14
Cleveland vann sjöunda leikinn í röð Tíu leikir voru á dagskrá í NBA deildinni í nótt. Cleveland vann sjöunda leik sinn í röð þegar liðið skellti Memphis á útivelli og þá tapaði Indiana 11. leiknum í röð. Körfubolti 15. mars 2007 04:43
Milwaukee rekur þjálfarann Terry Stotts var í kvöld rekinn úr starfi sínu sem þjálfari NBA liðsins Milwaukee Bucks. Liðinu hefur gengið afleitlega í vetur og er það í neðsta sæti miðdeildarinnar með 23 sigra og 41 tap. Ekki hefur verið tilkynnt hver tekur við starfinu út leiktíðina. Körfubolti 14. mars 2007 20:41
Memphis - Cleveland í beinni í kvöld Leikur Memphis Grizzlies og Cleveland Cavaliers verður sýndur beint á NBA TV sjónvarpsstöðinni á Fjölvarpinu í kvöld. Cleveland stefnir að því að vinna sjöunda leikinn í röð í vetur, en svo gæti farið að það þyrfti að vera án LeBron James annan leikinn í röð vegna bakmeiðsla kappans. Leikurinn hefst klukkan 12 á miðnætti. Körfubolti 14. mars 2007 18:31
Ég hata ekki homma í alvörunni Fyrrum körfuboltamaðurinn Tim Hardaway vill ólmur laga ímynd sína eftir að hann sagðist hata homma í útvarpsviðtali í síðasta mánuði. Ummæli Hardaway rötuðu á síður allra helstu fjölmiðla heimsins og í kjölfarið hefur hann átt erfitt uppdráttar á opinberum vettvangi. Körfubolti 14. mars 2007 18:09
Þrettán sigrar í röð hjá San Antonio San Antonio hefur tekið við af grönnum sínum í Dallas sem heitasta liðið í NBA deildinni, en í nótt vann liðið þrettánda leikinn í röð þegar það skellti LA Clippers 93-84 á heimavelli sínum. Þá vann Miami þrettánda heimaleik sinn í röð þegar það skellti Utah eftir að hafa verið 17 stigum undir í síðari hálfleik. Körfubolti 14. mars 2007 03:45
Endurkoma Krists gæti ekki bjargað okkur Slæmt gengi LA Lakers í NBA deildinni undanfarið er farið að hafa áhrif á ótrúlegustu menn. Sjálfur Zen-Meistarinn Phil Jackson lét hafa eftir sér í LA Times í dag að liðið spilaði svo illa þessa dagana að sjálfur Kristur gæti ekki bjargað því. Körfubolti 13. mars 2007 22:45
Nýr þjálfari hjá Bobcats í sumar Michael Jordan, yfirmaður körfuboltamála hjá Charlotte Bobcats í NBA deildinni, tilkynnti í dag að þjálfarinn Bernie Bickerstaff fengi nýtt hlutverk hjá félaginu í sumar. Bickersteff hefur stýrt liðinu í þrjú ár og á að baki 67 sigra og 161 tap, en hann mun væntanlega taka sér sæti á skrifstofunni í sumar. Körfubolti 13. mars 2007 20:15
Isiah Thomas fékk nýjan samning hjá Knicks Isiah Thomas, forseti og þjálfari New York Knicks, skrifaði undir nýjan samning við félagið um helgina. Þessi tíðindi komu nokkuð á óvart í ljósi þess að eigandi félagsins hafði áður sagt að hann ætlaði að taka ákvörðun um framtíð Thomas eftir að keppnistímabilinu lyki. Körfubolti 13. mars 2007 19:08
Golden State batt enda á sigurgöngu Dallas Sautján leikja sigurgöngu Dallas Mavericks í NBA deildinni lauk í nótt þegar liðið steinlá á útivelli fyrir Golden State Warriors 117-100. Sigurganga Dallas var sú sjöunda besta í sögu deildarinnar og var tapið aðeins það þriðja hjá liðinu á síðustu þremur mánuðum. Körfubolti 13. mars 2007 13:28
Versta tap í sögu LA Lakers á heimavelli Ekkert lát er á sigurgöngu Dallas í NBA-deildinni í körfubolta og í nótt vann liðið yfirburðasigur á LA Lakers, 108-72, útivelli. Þetta var 17. sigur Dallas í röð og hefur liðið nú unnið 52 af 61 leik sínum í vetur. Þetta var jafnframt versta tap Lakers í sögu félagsins síðan það flutti frá Minneapolis til Los Angeles árið 1960. Körfubolti 12. mars 2007 11:41
Yao Ming óstöðvandi Kínverski risinn Yao Ming skoraði 37 stig í gærkvöldi þegar Houston Rockets sigraði Orlando Magic 103-92. Ming er nýstaðinn upp úr erfiðum meiðslum og var aðeins að spila fjórða leik sinn eftir að hafa misst af 32 leikjum eftir að hafa fótbrotnað fyrr á leiktíðinni. Tracy McGrady var einnig atkvæðamikill í liði Houston, skoraði 19 stig og var með 10 stoðsendingar. Í síðustu 10 leikjum hefur Houston haft betur í rimmunni við Orlando í 9 þeirra. Körfubolti 12. mars 2007 09:11
Ron Artest: Ég hef brugðist Fimm dögum eftir að hafa verið handtekinn vegna gruns um að hafa beitt eiginkonu sína ofbeldi hefur leikmaður Sacramento í NBA-deildinni, beðist afsökunar á framferði sínu. Artest segist hafa brugðist hlutverki sínu, sem eiginmaður, faðir og leikmaður Sacramento, og biður um fyrirgefningu. Körfubolti 11. mars 2007 17:30
12. sigur San Antonio í röð San Antonio Spurs er á fljúgandi siglingu í NBA-deildinni um þessar mundir og í nótt vann liðið sinn 12. sigur í röð þegar það lagði New Jersey af velli á heimavelli, 93-77. Eins og svo oft áður var það liðsheildin sem skóp sigur San Antonio, en allir þeir 12 leikmenn sem voru á skýrslu liðsins náðu að skora stig í leiknum. Körfubolti 11. mars 2007 10:17