Leita manna sem grunaðir eru um hópárás Lögreglan á Suðurnesjum hefur til rannsóknar alvarlega líkamsárás sem er sögð hafa verið framin á aðfaranótt föstudags í Reykjanesbæ. Innlent 6.10.2026 16:18
Fréttamaður missti af strætónum til baka Hversu einfalt og þægilegt er að taka strætó á Keflavíkurflugvöll nú þegar vagninn ekur farþegum alveg upp að flugstöðinni? Fréttastofa kannar málið í beinni útsendingu og ræðir við gesti og gangandi. Neytendur 2.10.2026 09:45
Nú er hægt að taka Strætó alla leið að flugstöðinni Nýjar stoppistöðvar hafa verið settar upp á tveimur stöðum við Flugstöð Leifs Eiríkssonar, merkingar bættar og gönguleiðin að almenningsvögnum fyrir farþega sem eru að koma úr flugi er nú yfirbyggð. Eftir breytingar verða þrjár stoppistöðvar við flugstöðina en í dag er ein stoppistöð fyrir almenningsvagna, í talsverðri fjarlægð frá flugstöðinni. Innlent 30.9.2026 16:18
Bein útsending: Atvinnu- og framkvæmdaþing Reykjanesbæjar Reykjanesbær stendur fyrir atvinnu- og framkvæmdaþing þar sem sjónum verður beint að atvinnulífi, uppbyggingu og þeim fjölmörgu tækifærum sem eru í sveitarfélaginu. Hægt verður að fylgjast með fundinum í beinu streymi í spilaranum að neðan. Viðskipti innlent 16. september 2026 13:31
Húsnæði fundið undir brottfararstöð Gangi samningaviðræður eftir verður brottfarastöð fyrir útlendinga sem vísa á úr landi opnuð að Klettatröð 8 á Ásbrú í Reykjanesbæ. Innlent 16. september 2026 11:52
Skjálftahrina suðvestur af Eldey Skjálftahrina hófst á Reykjaneshrygg, um fimmtíu kílómetrum suðvestur af Eldey, klukkan 21:55 í gærkvöldi. Innlent 16. september 2026 07:30
Gátu ekki gefið skýr svör um mögulegt ástarsamband Maður og kona hafa hlotið fimm og þriggja mánaða skilorðsbundinn fangelsisdóm fyrir peningaþvætti hér á landi. Bæði eru þau erlendir ríkisborgarar sem fyrir dómara og lögreglu gátu ekki sammælst um hvort þau ættu í ástarsambandi eða ekki. Innlent 15. september 2026 23:10
Gera ekkert í að lögregla hafi eytt sönnunargögnum Nefnd um eftirlit með lögreglu telur ekki tilefni til þess að aðhafast frekar vegna þess að lögregla hafi skipað manni að eyða upptöku af því þegar kviknað í manni eftir að lögreglumenn skutu hann með rafbyssu. Lögreglan telur að myndbandið hefði verið sönnunargagn í rannsókn á málinu. Innlent 11. september 2026 13:18
Svona er umhorfs í endurbættri fríhöfn Forsvarsmenn Ísland Duty Free kynntu breytingar á fríhafnarverslunum á Keflavíkurflugvelli á blaðamannafundi klukkan tíu. Fréttastofa kíkti á fríhöfnina í beinni útsendingu en horfa má á bæði blaðamannafundinn og gönguna um fríhöfnina hér fyrir neðan. Viðskipti innlent 9. september 2026 09:30
Ekkert heitt vatn á Suðurnesjum í dag HS Veitur og HS Orka ráðast í viðamiklar framkvæmdir í dag og verður lokað fyrir heitt vatn á Suðurnesjum vegna þeirra. Búið er að skrúfa fyrir vatnið á hluta svæðisins. Innlent 9. september 2026 07:34
Handtökur vegna líkamsárásar og ölvunar á Ljósanótt Mikill mannfjöldi sótti viðburði Ljósanætur í gær, laugardaginn 5. september, en lögreglan hafði í nægu að snúast. Í það minnsta fjórir voru handteknir og vistaðir í fangageymslu en þar af snerist ein handtakan um grun um líkamsárás. Innlent 6. september 2026 12:02
Sérstakt viðbragð á Ljósanótt vegna unglingadrykkju Sérstakt viðbragð viðbragðsaðila verður á Ljósanótt vegna unglingadrykkju en hátíðin var sett í morgun. Minningartónleikar um Gunnar Þórðarson verða í Hljómahöll á sunnudag og verkefnastjóri hátíðarinnar segir að af mörgu sé að taka í dagskrá hátíðarinnar. Innlent 3. september 2026 14:17
„Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Skúli Tómas Gunnlaugsson læknir segir það sér að meinalausu að mál hans fari fyrir dóm. Skúli var árið 2019 ákærður fyrir manndráp og brot á lögum um heilbrigðisstarfsmenn. Hann segir dómstóla ekki skilja læknisfræði og að allt sem hafi komið fram í málinu sé rangt. Innlent 2. september 2026 06:33
Hundrað skjálfta hrina við Eldey Tæplega hundrað jarðskjálftar hafa mælst í jarðskjálftahrinu við Eldey í nótt. Hrinan hófst á stórum skjálfta klukkan 03:38. Fyrsti skjálftinn var 4,1 að stærð en sumir eftirskjálftar hafa verið yfir 3,0. Innlent 25. ágúst 2026 07:19
Afnema byggingarréttargjöld í Reykjanesbæ Skipulagsráð Reykjanesbæjar samþykkti á fundi sínum í morgun að fella niður öll byggingargjöld á nýjar framkvæmdir. Vilhjálmur Árnason bæjarstjóri segir að ákvörðunin kunni að lækka kostnað við gerð 150 fermetra íbúahúsnæðis um rúmar fimm milljónir. Innlent 21. ágúst 2026 16:22
Vilja banna frjáls ferðalög ísraelskra ferðamanna á Íslandi Sniðgönguhreyfingin fyrir Palestínu, BDS Ísland, skorar á stjórnvöld að innleiða skimanir við landamærin á ísraelskum ríkisborgurum á herskyldualdri og að þau banni frjáls ferðalög ísraelskra ferðamanna á Íslandi. Rúm 800 hafa skrifað undir áskorun þess efnis til stjórnvalda. Innlent 19. ágúst 2026 14:50
Ekkert út á Dorriti að setja en frásögn eigenda ekki á rökum reist Ísraelskir ferðamenn sem eru sagðir hafa ógnað starfsmanni kaffihússins og sætabrauðsverslunarinnar Lava Sweets og valdið þar tjóni segja frásögn palenstínskra eigenda staðarins ekki eiga við rök að styðjast. Þeir hafi til að mynda alls ekki farið inn á staðinn með það í huga að áreita eða ógna fólki. Dorrit Moussaieff var ein þeirra sem tjáðu sig um málið en mennirnir fjórir segja ekki við hana að sakast, hún hafi einfaldlega trúað því sem eigendurnir sögðu. Innlent 17. ágúst 2026 17:59
Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Dorrit Moussaief fyrrverandi forsetafrú vill fá að ræða við eigendur kaffihússins Lava Sweets í Keflavík og biðja þau afsökunar. Lífið 16. ágúst 2026 12:48
Ísraelskir ferðamenn með ógnandi tilburði á palestínsku kaffihúsi Eigendur kaffihússins og sætabrauðsverslunarinnar Lava Sweet við Hafnargötu í Keflavík segja fjóra menn hafa ógnað starfsmanni staðarins og valdið tjóni eftir að hafa séð að á veggnum var kort af Palestínu með vinsælu slagorði. Eigendur staðarins eru Palestínumenn. Innlent 15. ágúst 2026 17:19
Ósátt með fyrirhugaða sameiningu lögregluembætta Bæjarráð Reykjanesbæjar tekur undir bókun Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum sem leggst gegn því að embætti lögreglustjórans á Suðurnesjum verði sameinað öðru lögregluembætti. Innlent 15. ágúst 2026 14:41
Aukinn viðbúnaður vegna almyrkva á Reykjanesi Lögreglan á Suðurnesjum, björgunarsveitir Slysavarnafélagsins Landsbjargar, Brunavarnir Suðurnesja og Slökkvilið Grindavíkur verða með aukinn viðbúnað vegna almyrkvans á sólu miðvikudaginn 12. ágúst. Á Reykjanesi og verður almyrkvinn allt frá tveimur mínútum til 1.45. Innlent 10. ágúst 2026 11:37
Heimabærinn borgar fyrir útför Gunnars að hluta Bæjarráð Reykjanesbæjar hefur samþykkt að greiða hluta kostnaðar af útför Gunnars Þórðarsonar, sem verður jarðsunginn frá Hallgrímskirkju næstkomandi fimmtudag. Innlent 7. ágúst 2026 15:52
Alelda bíll í Reykjanesbæ Eldur kviknaði í bíl við smábátahöfn í Reykjanesbæ. Bíllinn varð alelda og lagði mikinn svartan reyk yfir bæinn. Innlent 31. júlí 2026 13:17
Ískaldur töffari, skapstór snillingur og afkastamikill vinnuþjarkur Gunnar Þórðarson er einn ástsælasti tónlistarmaður og lagahöfundur sem Ísland hefur alið. Gunnar var hlédrægur og leyfði tónlistinni að tala fyrir sig. Samkvæmt vinum og fjölskyldu var hann rólyndismaður sem fékk sínu fram, ískaldur töffari og vinnuhestur sem mætti fyrstur til vinnu og fór síðastur heim. Lífið 31. júlí 2026 10:14