Köflótt undir kleinurnar Sannkölluð keramíkveisla stendur nú yfir í Kraumi í Aðalstræti 10 en þar sýnir Ólöf Erla Bjarnadóttir nýja línu kökudiska. Einnig sýna nemendur Myndlistaskólans í Reykjavík vörur sem unnar voru fyrir Kahla. Tíska og hönnun 5. júlí 2011 16:00
Hannar mynd á breskan bol Mynd eftir íslenska hönnuðinn Sigga Eggertsson birtist á bolum Asos í júlí. Asos er stærsta sjálfstæða tísku- og snyrtivöruverslun Bretlands á netinu. Siggi er fyrsti Íslendingurinn sem vinnur með Asos. Tíska og hönnun 5. júlí 2011 14:00
Speisað vinnuspeis Í myndasafni má sjá myndir, líkan og teikningar af skrifstofuhúsnæði sem er staðsett í Shanghai í Kína. Hönnunin er eftir Taranta arkítekta. Vinnustöðvarnar eru skemmtilega hannaðar með það í huga að efla sköpun á meðal starfsmanna. Á neðri hæð skrifstofunnar má sjá loftið falla niður í mitt rýmið líkt og um stóran vatnsdropa væri að ræða. Þá er gólfið á efri hæðinni nýtt sem skrifstofuborð eins og sjá má hér. Tíska og hönnun 30. júní 2011 12:46
Naomi Campbell hannar gallabuxnalínu Ofurfyrirsætan Naomi Campbell hefur verið fengin til að hanna gallabuxnalínu fyrir ítalska tískumerkið Fiorucci. Sögur herma að línan verði frumsýnd á herratískuvikunni í Mílanó sem fram fer um þessar mundir. Tíska og hönnun 29. júní 2011 21:00
Lampi í anda Eyjafjallajökuls "Þegar Eyjafjallajökull og öskuskýið tóku yfir fréttatímann og dagblöðin í heiminum í fyrra heillaðist ég af myndunum sem birtust og þaðan kom hugmyndin að lampanum," segir Mia E. Göransson, sænskur leirhönnuður sem hefur hannað lampa sem ber nafnið Eyjafjallajökull. Tíska og hönnun 29. júní 2011 14:00
Hvítt heltekur Hollywood Meðfylgjandi myndir sýna að Hollywoodstjörnurnar eru hrifnar af skjannahvítum kjólum. Sjáðu Kim Kardashian, Carrie Underwood, Kate Middleton, Lucy Liu, Evu Longoria og fleiri í myndasafni. Tíska og hönnun 28. júní 2011 18:14
Spennandi tækifæri Herborg Eðvaldsdóttir er á leið í starfsnám í postulínsverksmiðjunni Kahla í Þýskalandi. „Þetta verður skemmtileg upplifun,“ segir Herborg Eðvaldsdóttir en tilkynnt var um valið á alþjóðlegu sýningunni DMY í Berlín á dögunum, þar sem sjö nemendur skólans sýndu verk sín. Tíska og hönnun 28. júní 2011 18:00
Dýrgripir úr ólíkum þræði Sýningin Þræðir var opnuð á þjóðhátíðardaginn í Sparki á Klapparstíg 33. Þar mætast tvær kynslóðir sem fást við skartgripagerð á ólíkan hátt en þó eiga þær margt sameiginlegt. Tíska og hönnun 28. júní 2011 16:00
Sundlaugin kallar á mann Sundlaugin við húsið sem staðsett er í Ástralíu kallar svo sannarlega á mann. Húsið, sem er hannað af arkitektum sem kalla sig Vibe Design Group, er sérstak í útliti eins og sjá má í myndasafni en lögð var áhersla á að birtan fengi að njóta sín og að allar hliðar hússins myndu gleðja íbúa þess þegar kemur að útliti og notagildi. Tíska og hönnun 28. júní 2011 10:41
Vera Wang - haust 2011 Í meðfylgjandi myndasafni má sjá haustlínu Veru Wang árið 2011. Tíska og hönnun 28. júní 2011 09:43
Kaupendur hanna fötin Fyrsti íslenski internetklæðskerinn sem sérhæfir sig í sérsaumuðum og sérhönnuðum jakkafötum á karlmenn og drögtum á konur hefur hafið rekstur. Áætluð er útrás til Skandinavíu og Bretlands. Tíska og hönnun 27. júní 2011 21:00
Kaðlar og krúsidúllur Tískuvikunni í Sao Paulo lauk á dögunum en þar mátti sjá kvenleg snið og múlbundnar fyrirsætur. Tíska og hönnun 27. júní 2011 16:00
Klikkað útsýni í strandhúsi Litagleðin er allsráðandi í skemmtilegu strandhúsi sem staðsett er í Perú eftir Longhi arkitekta eins og sjá má í myndasafni. Ekki spillir útsýnið fyrir stemningunni í svefnherberginu. Skoða egglaga hús á stærð við hjóhýsi hér. Tíska og hönnun 27. júní 2011 11:07
Haustlína Vivienne Westwood 2011 Sjáðu haustlínu Vivienne Westwood fyrir árið 2011 í meðfylgjandi myndasafni. Tíska og hönnun 25. júní 2011 12:53
Barnvænt hús í Belgíu DmvA arkítektar hönnuðu húsið sem skoða má í meðfylgjandi myndasafni. Húsið, sem er í Belgíu, var teiknað fyrir fjölskyldufólk sem lagði ríka áherslu að húsið væri barnvænt og að umferðin fyrir utan húsið hyrfi um leið og stigið væri inn í það. Garðurinn snýr ekki að götunni og það á einnig við um svefnherbergin og stofuna. Tíska og hönnun 23. júní 2011 10:51
Litaðar gallabuxur rokka Meðfylgjandi má m.a. sjá myndir af Hollywoodstjörnum eins og Kylie Minogue, Siennu Miller, Hayden Panettiere, Hilary Duff og Khloe Kardashian sem allar eiga það sameiginlegt að ganga í lituðum gallabuxum í sumar. Skoða buxurnar betur í meðfylgjandi myndskeiði. Tíska og hönnun 22. júní 2011 16:36
Gaman að byrja svona vel Emilía Borgþórsdóttir iðnhönnuður hlaut gullverðlaun á stærstu húsgagnasýningu Bandaríkjanna, NeoCon, sem haldin er árlega í Chicago. Verðlaunin þykja mikill heiður og reynist mörgum stökkpallur í fremstu línu hönnuða á heimsvísu. Emilía fékk verðlaun í flokki sófaborða en sérstaka athygli vekur ytra að fyrsta vara hönnuðar, eins og raunin er með borð hennar, hljóti svo stóra viðurkenningu. Tíska og hönnun 21. júní 2011 13:30
Þetta er almennileg lofthæð Meðfylgjandi má skoða myndir af húsi í Tokyo í Japan hannað af Ikimono arkitektum. Við hönnun hússins, sem líkist helst skemmu, var lögð áhersla á mikla lofthæð og endalaust rými sem lætur íbúum hússins líða eins og þeir séu staddir úti en ekki inni. Ryðfrítt stál er aðaluppistaða hússins eins og sjá má á myndunum. Tíska og hönnun 21. júní 2011 10:08
Lela Rose - haust 2011 Fatahönnuðurinn Lela Rose fékk hugmyndina að munstrinu sem hún notar í haustlínunni sinni fyrir árið 2011, sem skoða má í myndasafni, á listasýningu þýska listamannins Gerhard Richter í Chicago. Sjá haustlínu Lelu í meðfylgjandi myndasafni. Tíska og hönnun 21. júní 2011 09:37
Haustlína Jil Sander 2011 Í meðfylgjandi myndasafni má skoða haustlínu Jil Sander 2011. Tíska og hönnun 13. júní 2011 13:57
Kalt hús í steikjandi hitanum Meðfylgjandi má sjá glæsilegt hús í Aigina í Grikklandi hannað af arkitektinum Helen Sfakianaki. Eins og sjá má í myndasafni kjósa íbúar hússins að kæla sig niður í miðhlutanum, eða öllu heldur í skugganum þar sem gluggar hússins eru færanlegir. Bæði lag og útlit hússins harmonerar afskaplega vel við hlýtt loftslagið og fagurblátt hafið. Sjá myndir hér. Tíska og hönnun 12. júní 2011 02:18
Hrá steypan nýtur sín þarna Meðfylgjandi má skoða hús í Schliersee í Þýskalandi. Við byggingu hússins var lögð rík áhersla á einfaldleikann. Eins og sjá má er flæðið gott í húsnæðinu þar sem viðurinn mætir steypunni á ljómandi fallegan hátt. Tíska og hönnun 11. júní 2011 13:53
Mjúkar og léttar línur að sunnan Tískuvikan í Ástralíu var haldin hátíðleg fyrstu vikuna í maí og var margt fallegt að sjá á tískupöllunum þar eins og myndirnar bera vitni um. Forvitnilegt er að fylgjast með tískustraumunum sem þar ríkja og eru ástralskir hönnuðir engir eftirbátar þeirra frönsku eða ítölsku. Tíska og hönnun 9. júní 2011 20:30
Klikkað kaffihús Mocha – Mojo er kaffihús í Chennai á Indlandi eftir Mancini arkítekta þar sem húsgögn staðarins eru að mestu dýnur og púðar. Kaffihúsið er ævintýralegt, eins og sjá má í myndasafni, nánast í líkingu við Legoland. Áhersla var lögð á að skapa þrívíddar umhverfi á staðnum sem heppnaðist líka svona afburða vel. Tíska og hönnun 9. júní 2011 09:38
Stórar og ýktar augabrúnir eru málið Stúlkur, fleygið plokkaranum og leyfið augabrúnunum að vaxa villtum. Á tískupöllunum í haust mátti víða sjá fyrirsætur bera ýktar og dökkar augabrúnir með sóma og eiga augabrúnirnar því að taka vaxtarkipp með gróðrinum í vor. Tíska og hönnun 9. júní 2011 09:30
Gamlir gimsteinar í Nostalgíu Verslunin Nostalgía við Laugaveg hefur fyrst verslana tekið til sölu "vintage“ hönnunarflíkur og geta tískuunnendur nú fest kaup á kjólum frá Pucci og Yves Saint Laurent, skóm frá Prada, tösku frá Moschino og ýmsu öðru girnilegu. Tíska og hönnun 8. júní 2011 20:30
Egglaga hús Veggirnir í egglaga húsi, sem skoða má í meðfylgjandi myndasafni, eftir dmvA arkítekta, eru afskaplega vel nýttir. Sofa má í hliðum hússins, elda, vaska upp sem og geyma ýmsa hluti. Þá er einnig klósett í öðrum enda hússins. Húsið, sem er á stærð við hjólhýsi, má nota sem gestaherbergi, vinnustofu eða móttöku. Það er færanlegt hvert sem er. Tíska og hönnun 8. júní 2011 16:30
Hvítt, hið nýja svart Þrátt fyrir yfirvofandi litadýrð í sumartískunni verður hvíti liturinn einnig áberandi og hafa rómantískir kjólar, hvítar blúndur og gegnsæ pils sjaldan verið heitari. Tíska og hönnun 8. júní 2011 14:30
Fjölskylduvænt hús þar sem sólin skín Arkitektinn Bernando Rodrigues lagði ríka áherslu á að öllum fjölskyldumeðlimum liði vel í húsinu eftir hann sem skoða má í meðfylgjandi myndasafni. Húsið, sem er staðsett á Azore, eyjaklasa í Atlantshafi vestur af strönd Portúgals þar sem hlý sólin kemur upp í suðri og kaldur vindurinn blæs úr norðri, er skemmtilega hannað með tilliti til veðráttunnar þar sem börnin geta svo sannarlega unað sér vel á þakinu. Tíska og hönnun 7. júní 2011 11:07
Haustlína Elie Saab 2011 Sjáðu haustlínu Elie Saab 2011 í meðfylgjandi myndasafni. Tíska og hönnun 2. júní 2011 08:38