Lofar að minnast Panettiere ávallt af virðingu Vladimir Klitschko, barnsfaðir leikkonunnar Hayden Panettiere, segir fjölskylduna í mikilli sorg. Panettiere hafi yfirgefið þessa jörð allt of snemma og að þó svo að þau hafi ekki verið saman hafi hún verið mikilvægur hluti lífs hans og móðir dóttur þeirra, Kayu. Hann biður um frið til að glíma við sorgina og andlát hennar. Lífið 18.8.2026 08:24
Geta skotið drónum langt inn fyrir landsvæði NATO-ríkja Rússar hafa á undanförnum árum komið upp herstöðvum víða í vesturhluta landsins. Þaðan eru þeir taldir geta skotið öflugum drónum langt inn á landsvæði ríkja Atlantshafsbandalagsins. Erlent 17.8.2026 23:47
Úkraína gæti átt heimasmíðaðar skotflaugar innan nokkurra mánaða Mykhailo Fedorov, fyrrverandi varnarmálaráðherra Úkraínu, segir mögulegt að Úkraínuher muni geta gert árás á Rússland með heimsmíðaðri skotflaug á næstu þremur til sex mánuðum. Erlent 17.8.2026 08:02
Mannfall í drónaárás á olíuhreinsistöð í Tatarstan Þrettán manns í það minnsta eru sagðir hafa fallið í drónaárás Úkraínumanna á olíuhreinsistöð í rússneska sambandslýðveldinu Tatarstan í nótt. Rússnesk yfirvöld fullyrða að eitt barn sé á meðal þeirra föllnu í árásinni sem er ein sú blóðugusta frá upphafi allsherjarinnrásar Rússa í Úkraínu. Erlent 10. ágúst 2026 11:59
Segir allt að 50 þúsund hermenn frá Norður-Kóreu á leið til Rússlands Vólódimír Selenskí Úkraínuforseti segir allt að 50 þúsund hermenn frá Norður-Kóreu væntanlega til Rússlands. Þá segir hann eldflaugar frá Norður-Kóreu hafa fundist á landsvæði Úkraínu. Erlent 10. ágúst 2026 06:43
Veldi auðugustu konu Rússlands sagt riða til falls Tatíana Kim er ríkasta kona Rússlands. Hún starfaði fyrstu fullorðinsárin sem enskukennari, en stofnaði árið 2004, þá 28 ára gömul, fyrirtækið Wildberries, sem lýsa mætti sem rússneska Amazon, og hefur grætt á tá og fingri síðan. Nú er reksturinn sagður í hættu, vegna stríðs Rússlands og Úkraínu. Viðskipti erlent 8. ágúst 2026 22:50
Rússar taldir bera ábyrgð á sjálfsprengjudrónanum Sjálfsprengjudróni sem fannst nærri flugvelli í Þýskalandi er frá Rússlandi samkvæmt bandarískum embættismanni sem þekkir til leynilegrar skýrslu um málið. Erlent 8. ágúst 2026 13:49
Algjörlega varnarlausir gegn skotflaugum Rússa Rússar skutu 24 skotflaugum, fjórum annars konar eldflaugum og 115 sjálfsprengidrónum að Kænugarði og úthverfum borgarinnar í nótt. Úkraínumenn segjast hafa skotið 98 dróna niður en ekki einustu eldflaug en að minnsta kosti sautján létu lífið í árásinni og tugir eru særðir. Úkraínumenn virðast búnir með flugskeyti sín í einu loftvarnarkerfin sem þeir eiga sem geta verið notuð til að skjóta niður rússneskar skotflaugar. Erlent 5. ágúst 2026 10:30
Ein mannskæðasta árásin á Kænugarð á þessu ári Rússar gerðu í nótt harðar árásir á Úkraínu og eru að minnsta kosti fjórtán óbreyttir borgarar látnir í höfuðborginni Kænugarði og tugir særðir. Erlent 5. ágúst 2026 07:23
„Veiddu“ grænmetissala með dróna Rússneskir hermenn eltu á dögunum óbreyttan borgara með sjálfsprengidróna og reyndu að sprengja hann í loft upp. Maðurinn var að setja upp sölubás fyrir grænmeti í Kherson í suðurhluta Úkraínu þegar drónaárásin var gerð. Maðurinn lifði af en forseti Úkraínu segir þetta enn eina sönnun þess að Rússar hafi misst vitið og að rússneskir hermenn njóti þess að „veiða“ óbreytta borgara, drepa þá og misþyrma þeim. Erlent 4. ágúst 2026 16:04
Þrjú börn látin eftir drónaárás á baðströnd Sjö eru látnir og þar af þrjú börn eftir að drónaárás á baðströnd í suðvesturhluta Rússlands. Minnst fjörutíu manns hlutu áverka í sprengingunni en það þykir mögulegt að árásinni hafi verið beint að rússnesku flotastöðinni í Novorossiysk sem er í um fjörutíu kílómetra fjarlægð frá ströndinni. Úkraínuher hefur ekki tjáð sig um málið. Erlent 3. ágúst 2026 17:33
Níu felldir í Kænugarði Rússar gerðu í nótt umfangsmikla árás á Kænugarð, höfuðborg Úkraínu. Níu fórust og 33 voru særðir, að sögn yfirvalda í Úkraínu. Erlent 1. ágúst 2026 14:03
Rússnesk stýriflaug líklega lent í Póllandi Rússnesk Kh-101 stýriflaug á leið til Úkraínu lenti í Póllandi í nótt. Þetta segir Andrii Sybiha, utanríkisráðherra Úkraínu. Władysław Kosiniak-Kamysz, varnarmálaráðherra Póllands, segir að „líklegast“ hafi verið um að ræða Kh-101 stýriflaug sem skotið er úr lofti. Atvikið sé enn til rannsóknar. Erlent 30. júlí 2026 09:27
Fjögur börn látin eftir loftárásir Rússa á borgir Úkraínu Þrettán eru látnir, þar af fjögur börn, í loftárásum Rússa á borgir Úkraínu í nótt. Að minnsta kosti sex létust í borginni Kryvyi Rih, þar af fimm og tólf ára stúlkur. Þá létust sex í héruðunum Dnipropetrovsk og Poltava, þar af tvö börn. Úkraínumenn hafa verið hvattir til að leita skjóls. Erlent 30. júlí 2026 07:21
Ræddu Patriot-flaugar og friðarviðræður Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, segist hafa átt góðan fund með kollega sínum Donald Trump í Hvíta húsinu í dag. Þeir hafi meðal annars talað um mögulega framleiðslu flugskeyta í Patriot-loftvarnarkerfi í Úkraínu, mögulegar friðarviðræður og hvernig þeir gætu varið líf Úkraínumanna. Erlent 28. júlí 2026 15:57
„Við munum ná markmiðum okkar“ Vladimír Pútín lýsti því yfir í gær að útgjöld til varnarmála ættu að vera í forgangi í Rússlandi næstu þrjú árin, hið minnsta. Í ávarpi forsetans á Dúmunni, þingi Rússlands, sagði hann nýja heimsmynd vera að myndast og bölsóttaðist út í Vesturlönd fyrir að reyna að einangra Rússland. Erlent 28. júlí 2026 11:14
Minnst 15 látnir í árásum Rússa Minnst 15 eru látnir eftir árásir Rússa á Úkraínu í dag, þar af tíu á drónasýningu nærri Kænugarði, að sögn úkraínskra stjórnvalda. Erlent 24. júlí 2026 21:56
NATO 3.0 kallar á nýtt varnarsamstarf í Evrópu á grunni JEF Sú staðreynd að hugmyndin um NATO 3.0 er nú sett fram ætti að vera Evrópubúum skýr vísbending um að hagsmunir Bandaríkjanna af öryggi Evrópu hafi tekið verulegum breytingum. Umræðan 23. júlí 2026 08:19
Rýnt í deilurnar: Hver er nýr yfirherforingi Úkraínu? Vólódímír Selenskí rak í gær yfirherforingja Úkraínu og skipaði nýjan. Það gerði hann í kjölfar umfangsmikilla mótmæla eftir að hann rak varnarmálaráðherra landsins. Forsetinn segir frekari breytingar í vændum á næstu dögum. Erlent 22. júlí 2026 10:19
Yfirhershöfðingja Úkraínuhers vikið úr embætti Volodimír Selenskí, forseti Úkraínu, hefur vikið yfirhershöfðingja landsins, Oleksander Sirskí, úr starfi. Erlent 21. júlí 2026 23:04
Fundar með fjölda herforingja í skugga mótmæla Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, hefur á undanförnum dögum fundað með mörgum af helstu herforingjum úkraínska hersins. Forsetinn er sagður leita að arftaka Oleksanders Sirskí, formanns herforingjaráðs Úkraínu. Mikil mótmæli hafa átt sér stað í Úkraínu eftir að Selenskí lét varnarmálaráðherrann Mykhailo Fedóróv taka pokann sinn í síðustu viku. Erlent 21. júlí 2026 07:52
Tíu látnir eftir árásir Rússa á flutningaskip Tíu eru látnir eftir árás Rússa á flutningaskip við strendur úkraínsku hafnarborgarinnar Ódessu en árásir á svæðið hafa aukist síðustu vikur. Erlent 20. júlí 2026 18:48
Mótmælt í Kænugarði vegna uppsagnar varnarmálaráðherrans Komið hefur til mótmæla í Úkraínu vegna ákvörðunar Vólódimírs Selenskís forseta um að láta varnarmálaráðherrann Mykhailo Fedorov taka pokann sinn. Forsetinn segir valið hafa staðið á milli Fedorov og yfirherforningjans Oleksandr Syrskyi. Erlent 17. júlí 2026 08:04
Þúsundir Úkraínumanna mótmæla hrókeringum Selenskís Þúsundir Úkraínumanna hafa í dag mótmælt í borgum víða í heimalandinu í kjölfar þess að Volodimír Selenskí Úkraínuforseti lét varnarmálaráðherrann Mykhailo Fedorov óvænt taka pokann sinn í gær. Fedorov hafði verið ráðherra í hálft ár og ekki liggur fyrir hvers vegna hann var látinn fara. Innlent 16. júlí 2026 11:48