Nýjar sannanir um vatn Spirit, könnunarfar NASA á Mars, hefur fundið steinefni sem teljast til öruggasta sönnunin hingað til fyrir því að vatn hafi einhvern tíman fundist á plánetunni. Þetta kom fram hjá vísindamönnum NASA á mánudag. Erlent 14. desember 2004 00:01
Hvasst á Hveravöllum Vindur af suð-suðvestan fór upp í tæpa 30 metra á sekúndu á Hveravöllum í gær. Nokkuð fennti og var frostið mest sex gráður. Innlent 14. desember 2004 00:01
Varað við ferðum fyrir vestan Ekkert ferðaveður er í Ísafjarðardjúpi, á Steingrímsfjarðarheiði og á Ströndum að sögn Vegagerðarinnar. Vegfarendur eru varaðir við að vera á ferðinni á þessum slóðum og er ráðlagt að fylgjast með veðurfréttum. Innlent 13. desember 2004 00:01
Ljósagangur af eldingum síðustu daga Síðustu daga hefur gengið mikið þrumuveður suður og suðaustur af landinu. Þórður Arason, jarðeðlisfræðingur á sérþjónustudeild veðursviðs Veðurstofunnar, segir mesta veðrið hafa verið á fimmtudag. Innlent 10. desember 2004 00:01
Elding slær út Grindavík Eldingu sem sló niður í tengivirki við stjórnstöð Hitaveitu Suðurnesja í Grindavík varð þess valdandi að rafmagnslaust varð í bænum um hálft tíu leytið í gær. Einn íbúi Grindavíkur sagði að miklar sprengingar hafi orðið þegar eldingunni laust niður. Innlent 8. desember 2004 00:01
Spá öflugum fellibyljum árið 2005 Búist er við því að fjöldi fellibylja í Atlantshafi á næsta ári verði yfir meðallagi. Þetta kemur fram í spá veðurfræðinga við Ríkisháskólann í Colorado í Bandaríkjunum. Aldrei hefur fjárhagslegt tjón vegna fellibylja verið jafnmikið og á þessu ári. Erlent 7. desember 2004 00:01
Flughált í Hvalfirði og víðar Flughált er í uppsveitum Árnessýslu, í Hvalfirði og uppsveitum Borgafjarðar. Hálka eða hálkublettir eru á norðanverðu landinu og víða éljagangur eða snjókoma. Dynjandisheiði og Lágheiði eru ófærar. Snjóþekja er víða á Austur- og Suðausturlandi og þæfingur er á Öxi. Innlent 4. desember 2004 00:01
Umhleypingasamur nóvember Nóvember var nokkuð umhleypingasamur á landinu og hitasveiflur miklar, að því er fram kemur í stuttu tíðarfarsyfirliti Veðurstofunnar. Hiti var yfir meðallagi, þrátt fyrir að mikið kuldakast hafi gert 15. til 20. dags mánaðarins. Meðalhiti í Reykjavík mældist 2,2 stig, en það er sagt 1,1 stigi ofan meðallags. Innlent 3. desember 2004 00:01
Mývatnssveitin falleg í frosti Frostið mældist 30 gráður í Mývatnssveit klukkan sex í gærmorgun. Upp úr hádegi hafði hlýnað og frostið var 22 gráður og klukkan fimm síðdegis var það 17 gráður. Fáir voru á ferli í sveitinni í gær en menn skruppu vitanlega í messu og gufubað eins og gengur. </font /></b /> Innlent 21. nóvember 2004 00:01
Hlýnun aldrei hraðari Vísindamenn eru sammála um hlýnun Norðurheimskautsins og spá umfangsmiklum breytingum sem áhrif hafa á veðurfar um heim allan. Norðurheimskautsís bráðnar, Grænlandsjökull minnkar og sjávarborð hækkar. Hér gætu fiskveiðar aukist. Innlent 10. nóvember 2004 00:01
Kallað á rannsóknir ACIA Norðurheimskautsráðið og Alþjóðleg vísindanefnd um Norðurheimskautið (International Arctic Science Committee, eða IASC) kölluðu eftir úttektinni á áhrifum og umfangi loftslagsbreytinga á norðurslóðum fyrir fjórum árum síðan. Innlent 10. nóvember 2004 00:01
Vistkerfið breytist mikið Áhrif hlýnunarinnar á norðurslóðum eru í skýrslu ACIA sögð verða mjög mikil. Til dæmis á sjávarborð eftir að hækka og eftir því sem íshellan yfir Norðurskautinu minnkar eykst hættan á að dýr á borð við ísbirni og sumar selategundir hreinlega deyi út. Innlent 10. nóvember 2004 00:01
Ráðherrar ákveða næstu skref "Ákvörðun um næstu skref verður tekin á ráðherrafundinum 24. nóvember næstkomandi," segir Helgi Jensson, forstöðumaður á framkvæmda- og eftirlitssviði Umhverfisstofnunar, um hver áhrif niðurstaðna alþjóðlega rannsóknarhópsins um hlýnun á norðurslóðum verða. Innlent 10. nóvember 2004 00:01
Væg hlýnun eflir fiskistofna Niðurstöður alþjóðlegs rannsóknarteymis á vegum Norðurskautsráðsins gera ráð fyrir að loftslag á Íslandi og Grænlandi hlýni næstu hundrað árin um 2 til 3 gráður á Celsius, en slík breyting gæti eflt þá fiskistofna sem mikilvægastir eru fyrir hagkerfi þjóðanna, svo sem þorsk og síld. Innlent 9. nóvember 2004 00:01
Hærri sjór og dýr í hættu Norðurskautið hlýnar sem aldrei fyrr, nær tvisvar sinnum hraðar en aðrir hlutar jarðarinnar. Aukinn útblástur gróðurhúsalofttegunda á svo eftir að valda enn meiri hlýnun, að því er fram kemur í nýrri alþjóðlegri rannsókn um 300 vísindamanna sem staðið hefur síðustu fjögur ár. Innlent 8. nóvember 2004 00:01
Ísöld innan 100 ára Sænskur jarðeðlisfræðingur segir að lítils háttar ísöld kunni að skella á hér á landi á þessari öld samkvæmt reglubundnum veðurfarsbreytingum sem rekja megi til sólarinnar. Hann vísar á bug kenningum um mikla hækkun sjávar vegna bráðnunar jökla og segir menn hafa óþarfaáhyggjur. Erlent 8. nóvember 2004 00:01
Skepnur eru hafðar lengur úti Vegna hlýnandi loftslags er fé látið ganga lengur úti en áður tíðkaðist og ekki algengt að búið sé að loka fé inni í byrjun nóvember. Innlent 8. nóvember 2004 00:01
19 stiga hiti fyrir austan Einstaklega hlýtt veður hefur verið um allt land um helgina. Á laugardaginn náði hitinn hæst 19 stigum á Seyðisfirði, en á höfuðborgarsvæðinu var hiti um 10 stig. Innlent 7. nóvember 2004 00:01
Sólríkur október Sólskinsstundir í Reykjavík í nýliðnum októbermánuði mældust 110 sem er 27 stundum umfram meðallag, að því er fram kemur í samantekt Veðurstofunnar. Innlent 2. nóvember 2004 00:01
Hlýnun jarðar eykst mikið Loftslagsbreytingar eru að mestu af völdum manna samkvæmt nýrri rannsókn sem 300 vísindamenn frá átta ríkjum tóku þátt í. Frá þessu greindi bandaríska dagblaðið The New York Times sem komst yfir skýrsluna sem átti ekki að birta fyrr en í næstu viku, að sögn vegna þess að bandarísk stjórnvöld vildu ekki að hún birtist fyrr en eftir kosningar. Erlent 31. október 2004 00:01
Versta áfall Japana í nær áratug Mannskæðasta óveður sem gengið hefur yfir Japan í nær tvo áratugi kostaði í það minnsta 55 manns lífið þegar fellibylurinn Tokage gekk yfir landið í fyrradag og fyrrinótt. Rúmlega tuttugu manns til viðbótar er saknað og því getur tala látinna enn hækkað. Erlent 21. október 2004 00:01
Vind lægir í dag Óveðrið sem geisað hefur víða um land síðan á mánudag með miklu hvassviðri á Suður- og Vesturlandi mun ganga niður í dag, samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofu Íslands. Innlent 19. október 2004 00:01
Bærinn þakinn brúnni slikju Mikið moldrok var á hálendinu í hvassviðrinu sem gekk yfir landið í gær og fyrradag. Að sögn lögreglunnar í Vestmannaeyjum fóru Eyjamenn ekki varhluta af moldrokinu. Var það svo mikið að varla sást út úr augum um tíma. Innlent 19. október 2004 00:01
Mikill uppblástur á Suðurlandi Uppblástur á Suðurlandi í hvassviðrinu undanfarna tvo daga er sá mesti sem orðið hefur í mörg ár. Þetta segir Jón Ragnar Björnsson, fræðslufulltrúi Landgræðslu Íslands. Hann segir uppblásturinn hafi verið mestan í uppsveitum Rangárvallasýslu, sérstaklega í kringum Heklu. Hann segir mold, sand og vikur hafa myndað skafla á svæðinu. Innlent 19. október 2004 00:01
Loka þurfti Oddsskarði Vonskuveður var á austanverðu landinu í gær og voru björgunarsveitir á Egilsstöðum og Reyðarfirði kallaðar út til að aðstoða ökumenn bíla sem lent höfðu í vandræðum í Fagradal vegna ófærðar. Innlent 18. október 2004 00:01
Hermönnum bjargað úr pytti Fimm varnarliðsmönnum í skemmtiferð var bjargað skammt frá Kerlingafjöllum skömmu fyrir klukkan hálf sjö í gær þar sem þeir höfðu fest Ford 450 pikkupjeppabifreið sína í krapapytti. Innlent 18. október 2004 00:01
Dimmt og kalsalegt Rafmagn fór af Höfn í Hornafirði um miðjan dag í gær og voru bæjarbúar án rafmagns fram undir kvöld. Bilun varð í báðum línunum sem bera rafmagnið inn í bæinn en orsakir þeirra eru ókunnar. </font /></b /> Innlent 18. október 2004 00:01
Þaki haldið í skefjum Þaki á einbýlishúsi á Höfn í Hornarfirði var haldið í skefjum með skurðgröfu í gær. Hávaðarok var í bænum, líkt og víða um land, og fylgdust björgunarsveitarmenn árvökulum augum með því sem hugsanlega gat tekist á loft. Innlent 18. október 2004 00:01
Veturinn kom í gær Vindur blés hressilega víða um land í gær og sums staðar var dágóð snjókoma. Nokkurt tjón hlaust af þegar hluti þaks feyktist af mjölgeymslu í Vestmannaeyjum, rafmagn fór af á Höfn í Hornafirði og snjóþyngsli öftruðu færð á Austfjörðum. Innlent 18. október 2004 00:01
Þak fauk og bátur sökk Vitlaust veður var í Vestmannaeyjum í gær og hlaust af talsvert tjón. Rýma þurfti nokkra vinnustaði í bænum eftir að hluti þaks á einu af húsum Ísfélags Vestmannaeyja hófst á loft og skall af miklum þunga á jörðina. Engan sakaði. </font /></b /> Innlent 18. október 2004 00:01
Leynilega upptakan á Edition-hótelinu:„Ef ég á að taka fimmta sætið vil ég verða þinn maður í þessu“ Innlent