Veturinn kom í gær Vindur blés hressilega víða um land í gær og sums staðar var dágóð snjókoma. Nokkurt tjón hlaust af þegar hluti þaks feyktist af mjölgeymslu í Vestmannaeyjum, rafmagn fór af á Höfn í Hornafirði og snjóþyngsli öftruðu færð á Austfjörðum. Innlent 18. október 2004 00:01
Hermönnum bjargað úr pytti Fimm varnarliðsmönnum í skemmtiferð var bjargað skammt frá Kerlingafjöllum skömmu fyrir klukkan hálf sjö í gær þar sem þeir höfðu fest Ford 450 pikkupjeppabifreið sína í krapapytti. Innlent 18. október 2004 00:01
Dimmt og kalsalegt Rafmagn fór af Höfn í Hornafirði um miðjan dag í gær og voru bæjarbúar án rafmagns fram undir kvöld. Bilun varð í báðum línunum sem bera rafmagnið inn í bæinn en orsakir þeirra eru ókunnar. </font /></b /> Innlent 18. október 2004 00:01
Loka þurfti Oddsskarði Vonskuveður var á austanverðu landinu í gær og voru björgunarsveitir á Egilsstöðum og Reyðarfirði kallaðar út til að aðstoða ökumenn bíla sem lent höfðu í vandræðum í Fagradal vegna ófærðar. Innlent 18. október 2004 00:01
Sjávarhiti mildar norðanáttina Þjóðtrú segir að vetur verði mildur ef rignir þrisvar fyrir jól. Hlýrri sjór fyrir norðan land hitar vindinn þannig að fremur rignir en snjóar. Miklar sveiflur í hita sjávar valda loftslagsbreytingum á norðurhveli sem jafnast á við gróðurhúsaáhrif. Innlent 13. október 2004 00:01
Hugsanlega tímamót í hlýnun jarðar Koltvísýringsmengun í andrúmsloftinu hefur aukist mikið síðustu ár. Aukningin kemur mjög á óvart þar sem ekki er samhengi milli hennar og útblásturs koltvísýrings á sama tímabili. Þetta veldur vísindamönnum áhyggjum yfir því að hlýnun jarðar kunni að aukast hraðar en búist hefur verið við. Erlent 11. október 2004 00:01
Bylur í Japan raskar Formúlukeppni Tímataka í Formúlu eitt á Suzuka brautinni í Japan núna um helgina var færð frá laugardegi yfir á sunnudagsmorgun vegna fellibyls sem yfir landið gengur. Gert var ráð fyrir að fellibylurinn skylli á Japan á aðfararnótt laugardags, með úrhellisrigningu og ofsaroki. Innlent 8. október 2004 00:01
Tafir á Eyjaflugi í gær Tafir urðu á flugi til Vestmannaeyja í gærmorgun vegna hvassviðris í Eyjum. Flugi klukkan hálfátta var frestað, en þær upplýsingar fengust hjá flugmálastjórn í Eyjum að þar hefði verið misvindasamt og vindhraði farið upp í 40 hnúta í hviðum, en það eru 20,5 metrar á sekúndu. Innlent 6. október 2004 00:01
Kuldaskoti að ljúka Fyrsti snjór haustsins á Akureyri féll í gær. Veðurstofan gerir ráð fyrir því að kuldaskotinu sem gengið hefur yfir landið ljúki í kvöld og nótt. Innlent 5. október 2004 00:01
Nípukollsveður í Neskaupstað Tré rifnuðu upp með rótum, þakplötur og klæðningar flettust af og rúður brotnuðu í Nípukollsveðri sem gekk yfir Neskaupstað í fyrrinótt. Tjónið er umtalsvert. Innlent 5. október 2004 00:01
Björgunarsveitir kallaðar út Átta hópar björgunarsveitarmanna frá Slysavarnarfélaginu Landsbjörgu voru kallaðir út á höfuðborgarsvæðinu í gær vegna óveðursins sem gekk yfir. Óskað var eftir aðstoð eftir að þakplötur og lausir munir byrjuðu að fjúka og gátu valdið hættu og skemmdum. Innlent 5. október 2004 00:01
Strompur í Norðurmýri fauk Kalla þurfti út björgunarsveitir þegar mikið hvassviðri brast á á höfuðborgarsvæðinu síðdegis í gær. Innlent 4. október 2004 00:01
Kári kveður dyra Talsvert hvassviðri var á sunnan- og vestanverðu landinu í gær og fór vindur sums staðar yfir 40 m/s í verstu hviðunum. Lögreglan fékk nokkrar tilkynningar um fjúkandi muni. Innlent 4. október 2004 00:01
Hlýr, votur og dimmur Nýliðinn september var nokkuð hlýr, en úrkomusamt var og fremur sólarlítið. Úrkoma í Reykjavík mældist 40 prósentum meiri en í meðal septembermánuði. Innlent 4. október 2004 00:01
Yfir meðalhita 30 mánuði í röð Hitastig í Reykjavík hefur nú verið yfir meðallagi þrjátíu mánuði í röð. Meðalhiti í september var 9 gráður og er það 1,6 gráðu yfir meðallagi áranna 1961-1990. Mánuðurinn var samt fremur sólarlítill og úrkomusamur. Innlent 4. október 2004 00:01
Kemur ef hann kemur Íbúar Miami á suðurodda Florída kipptu sér vart upp við fellibylinn Jeanne í fyrrinótt og gærmorgun. Hann gekk enda yfir nokkuð norðan við borgina og lét finna fyrir sér í grennd við Fort Pierce og Okeechobee. </font /></b /> Erlent 26. september 2004 00:01
Skreiðarhjallar lögðust á hliðina Nokkurt tjón varð í Vestmannaeyjum í óveðri í fyrrinótt og var erilsamt hjá lögreglunni frá miðnætti til klukkan níu í gærmorgun. Björgunarfélag Vestmannaeyja hjálpuðu lögreglu að festa þakplötur og lausa muni. Innlent 16. september 2004 00:01
Mikil eyðilegging í öflugum stormi Þak fauk af hótelbyggingu í Freysnesi í Öræfum og klæðning flettist af nærliggjandi vegi. Flytja þurfti gesti burt af hótelinu og verður það lokað næstu daga. Björgunarsveitir höfðu í mörgu að snúast í gærmorgun. </font /></b /> Innlent 16. september 2004 00:01
Veður olli usla á suðvesturhorninu Morgunninn var erilsamur hjá lögreglu og björgunarsveitarsveitarmönnum á höfuðborgarsvæðinu. Ekki er vitað til að slys hafi orðið á fólki en veðrið olli talsverðum usla á suðvesturhorninu þótt vindhraðinn væri hvergi nærri eins mikill og á Suðurlandi. Innlent 16. september 2004 00:01
Tré fuku upp með rótum Mikið hvassviðri var á Hvolsvelli og í nágrenni í fyrrinótt og gærmorgun að sögn lögreglu. Nokkur stór tré fuku upp með rótum, gervihnattadiskar skemmdust og þakplötur fuku. Innlent 16. september 2004 00:01
Risatré brotnaði Risavaxið tré í garði í Efstasundi 6 í Reykjavík bókstaflega kubbaðist í sundur í óveðrinu í fyrrinótt. Ekkert skemmdist þó þegar tréð slengdist til jarðar, en íbúar vöknuðu við skruðninginn. Innlent 16. september 2004 00:01
Tólf hafa látist í Bandaríkjunum Tólf manns hafa látið lífið í áhlaupi Ívans grimma á Bandaríkin. Mikið hefur dregið úr styrk fellibylsins sem nú gengur norður eftir Alabama-ríki. Erlent 16. september 2004 00:01
Þúsundir flýja heimili sín Hundruð þúsunda manna á suðurströnd Bandaríkjanna hafa rýmt heimili sín því búist er við að fellibylurinn Ívan, sem varð 70 manns að bana í Karabíska hafinu, gangi á land í dag. Stjórnvöld hafa beðið tvær milljónir manna um að flýja frá hættusvæðunum. Erlent 15. september 2004 00:01
Hiti yfir meðallagi í 29 mánuði Meðalhiti í Reykjavík í ágústmánuði var 12,6 stig, eða 2,3 stigum ofan við meðallag, samkvæmt tilkynningu frá Veðurstofu Íslands. Mánaðarhiti hefur nú verið yfir meðallagi í Reykjavík í 29 mánuði samfellt. Innlent 2. september 2004 15:00
Hitamet fellur í Reykjavík Veðurstofan hefur aldrei mælt hærri hita í Reykjavík en í dag. Talið er að hitabylgjan í landinu hafi náð hámarki. Verslunum var lokað og fundum frestað vegna veðurs. Það var mollulegt um að litast í höfuðborginni í dag, svo heitt að fólk þusti út í sólina að njóta blíðunnar. Innlent 11. ágúst 2004 19:00