Fréttastjóri

Kolbeinn Tumi Daðason

Kolbeinn Tumi er fréttastjóri fréttastofu Sýnar.

Nýjustu greinar eftir höfund

Al­var­legt um­ferðar­slys við Munaðar­nes

Þrír voru fluttir með þyrlu Landhelgisgæslunnar eftir tveggja bíla árekstur á hringveginum við Munaðarnes í Borgarfirði um ellefuleytið. Tveir þeirra sem fluttir voru eru slasaðir. Lokað var fyrir umferð um veginn.

Bein út­sending: Staða mæðra á vinnu­markaði

Í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna 8. mars stendur BHM fyrir morgunverðarfundi um stöðu mæðra á vinnumarkaði. Fundurinn verður haldinn í Norræna húsinu föstudaginn 6. mars kl. 8:30–10:30.

Tóti fékk bílinn lánaðan frá Líf Magneudóttur

Líf Magneudóttir borgarfulltrúi Vinstri grænna átti bláan Suzuki Alto '86 módel sem Tóti í Íslenska draumnum ók um götur Reykjavíkur. Líf segist hafa farið í smá fýlu þegar hún fékk ekki boð á frumsýningu myndarinnar en sé sem betur fer ekki langrækin.

Hraðlyginn leið­sögu­maður úr landi

Fertugur breskur karlmaður af kínverskum uppruna fær ekki að koma aftur til Íslands næstu tvö árin eftir að hafa starfað hér á landi sem leiðsögumaður án leyfis. Maðurinn var gripinn við eftirlit lögreglu og reyndust svör hans við spurningum lögreglu loðin í meira lagi.

Kynnir þrettán að­gerðir gegn brotastarfsemi

Félags- og húsnæðismálaráðherra hefur kynnt fyrstu stefnu stjórnvalda gegn brotastarfsemi á vinnumarkaði. Um er að ræða aðgerðir í þrettán liðum sem byggja á vinnu samstarfsnefndar stjórnvalda og samtaka aðila vinnumarkaðarins sem félags- og húsnæðismálaráðherra skipaði í fyrra.

Sam­fylkingin mætt til leiks á Ísa­firði

Framboðslisti Samfylkingarinnar í Ísafjarðarbæ var samþykktur samhljóða á fjölmennum félagsfundi flokksins í kvöld 2. mars. Jafnaðarmenn í Ísafjarðarbæ eru mættir til leiks að því er segir í tilkynningu.

Gular við­varanir á suð­vestur­horninu

Spáð er austan og suðaustan 13-20 m/s sunnan- og vestantil í dag og fer að snjóa þar upp úr hádegi en von á rigningu eða slyddu síðdegis. Vindur verður hægari og úrkomulítið um landið norðaustanvert. Veður fer hlýnandi og hiti víða núll til átta stig síðdegis, hlýjast sunnan heiða.

Minnast Davíðs: Hug­rakkur, hnyttinn og stór í sniðum

Landsmenn vöknuðu flestir við þau tíðindi að einn áhrifamesti stjórnmálamaður sögunnar er fallinn frá. Sífellt fjölgar í hópi þeirra sem minnast Davíðs á samfélagsmiðlum og koma kveðjur úr öllum áttum; bæði þeirri hægri og vinstri en líka frá samfélagi samkynhneigðra.

Davíð Odds­son er látinn

Davíð Oddsson, ritstjóri Morgunblaðsins og einn áhrifamesti stjórnmálamaður lýðveldistímans, er látinn. Hann lést á heimili sínu í Skerjafirði í gær. Davíð var 78 ára að aldri.

Gjald­þrot Play nemur 21 milljarði króna

Heildarkröfur í þrotabú flugfélagsins Play sem varð gjaldþrota í september nema um 21 milljarði króna. Ólíklegt er að nokkuð fáist upp í almennar kröfur í búið en meðal þeirra er sekt frá Umhverfisstofnun upp á 2,2 milljarða króna. Skiptastjóri segir að skipti Play muni taka nokkur ár enda ljóst að einhverjir angar skiptanna munu rata til dómstóla.

Sjá meira