„Mér finnst ég vera byggður öðruvísi“ Lewis Hamilton, ökumaður Ferrari, þykir það ekki ólíklegt að hann verði enn í Formúlu 1 þegar afríski kappaksturinn fer fram. Búist er við að kappaksturinn verði ekki fyrr en 2030 eða jafnvel seinna ef kappakstursbrautin í Rúanda verður ekki klár í tæka tíð. 30.10.2026 15:46
Grealish í agabanni hjá Everton Jack Grealish var ekki með Everton þegar liðið vann Newcastle 3-1 í enska deildarbikarnum vegna brota á reglum félagsins. David Moyes þjálfari Everton tók fram að þetta væri ákvörðun félagsins en ekki ákvörðun hans. 30.10.2026 10:32
Áfrýjun Arsenal á rauða spjaldi Dowman hafnað Enska knattspyrnusambandið hefur staðfest að Arsenal hafi áfrýjað rauða spjaldinu sem Max Dowman fékk í enska deildarbikarnum þegar Englandsmeistararnir duttu úr leik gegn D-deildarliðinu Fleetwood Town. Því hefur nú verið hafnað og verður Dowman í banni í næstu þremur leikjum. 30.10.2026 09:32
Nýr heimavöllur í Milan mun koma í stað San Siro Búið er að tilkynna nýjan heimavöll fyrir fótboltaliðin AC Milan og Inter Milan á Ítalíu. Liðin hafa deilt sögufræga heimavellinum San Siro og munu halda áfram að deila heimavelli en sá nýi mun heita Generali Stadium. 30.10.2026 07:32
Viktor Bjarki var í byrjunarliði FCK í öruggum sigri FC København spilaði bikarleik í dag gegn Aarhus Fremad í dönsku bikarkeppninni í fótbolta. Viktor Bjarki Daðason var í byrjunarliði FCK sem vann leikinn 3-0. 29.10.2026 14:32
Var klár í samkeppnina við Ingvar Aron Snær Friðriksson, markmaður Víkinga, fékk gullhanskann eftir tímabilið í Bestu deild karla. Það ætti að koma fáum á óvart þar sem Víkingur var með besta varnarlið deildarinnar en á tímabilinu gekk mikið á. 29.10.2026 12:47
Verða án Sesko fram í janúar Það virðast ekki margar góðar fréttir berast úr herbúðum Manchester United þessa stundina en nóg virðist vera af slæmum fréttum. Nú bárust fregnir að Benjamin Sesko, framherji liðsins, væri frá vegna meiðsla þangað til í janúar. 29.10.2026 09:30
Snýr aftur til keppni eftir saurslysið Joanna Wietrzyk snýr aftur til keppni í Hyrox eftir að hafa kúkað á sig í keppni fyrir nokkrum vikum. Hún var mikið gagnrýnd fyrir að halda áfram keppni eftir slysið en hún endaði á því að vinna keppnina. 29.10.2026 08:30
Átti erfitt fyrsta tímabil en getur nú skrifað söguna Kimi Antonelli er svo gott sem búinn að tryggja sér heimsmeistaratitilinn í Formúlu 1 þar sem hann þarf aðeins tvö stig í næstu keppni til þess að tryggja sér titilinn formlega. Geri hann það verður hann yngsti heimsmeistari í Formúlu 1 í sögunni og sýnir gríðarlegan viðsnúning frá síðasta tímabili. 29.10.2026 07:30
„Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Hrafnhildur Ása Halldórsdóttir var markahæsti leikmaður Bestu deildar kvenna í sumar. Hún gulltryggði þann titil í lokaumferðinni gegn FH þar sem hún skoraði fimm mörk. 28.10.2026 16:32