Nafn föður ríkislögreglustjóra kom upp við skýrslutökur Sigríður Björk Guðjónsdóttir sagði sig frá rannsókn á hryðjuverkamálinu sem upp kom í síðustu viku vegna mögulegs vanhæfis. Samkvæmt heimildum fréttastofu var það vegna þess að nafn föður hennar kom upp við skýrslutökur sakborninga hjá lögreglu. 29.9.2022 17:51
Segir Árna Heimi hafa brotið á honum kynferðislega Bjarni Frímann Bjarnason, fiðluleikari og hljómsveitarstjóri, greindi frá því í dag að Árni Heimir Ingólfsson, fyrrverandi tónlistarstjóri Sinfóníu Íslands, hefði brotið á honum kynferðislega þegar hann var sautján ára gamall og Árni Heimir 35 ára. 29.9.2022 17:25
Svavar Pétur er látinn Svavar Pétur Eysteinsson, tónlistarmaður sem gekk undir listamannsnafninu Prins Póló, er látinn, 45 ára að aldri. 29.9.2022 16:06
Ríkið kaupir Norðurhúsið við Austurbakka af Landsbankanum Íslenska ríkið og Landsbankinn hafa undirritað samning um kaup ríkisins á Norðurhúsi við Austurbakka af Landsbankanum. Um er að ræða tæplega sex þúsund fermetra byggingu sem er hluti af framkvæmdum Landsbankans við Austurhöfn. Kaupverðið er um sex milljarðar króna. Þá mun ríkið einnig kaupa gamla Landsbankahúsið við Austurstræti. 29.9.2022 15:30
Konan er fundin Konan sem lýst var eftir og leitað hefur verið í dag er fundin heil á húfi. Hennar hafði verið saknað í heila viku. 29.9.2022 14:43
Ákærð fyrir að refsa leikskólabörnum líkamlega Kona sem starfaði á leikskóla hefur verið ákærð fyrir að hafa beitt börn á leikskólanum andlegum og líkamlegum refsingum og ógnunum. 29.9.2022 14:18
Drottningin lést úr elli Elísabet II. Bretlandsdrottning lést úr elli, 96 ára að aldri. Dánarvottorð hennar var gefið út í dag. 29.9.2022 13:35
Semja um 6,6 milljarða króna útveggi fyrir nýjan Landspítala Heilbrigðisráðherra undirritaði í dag samning Nýs Landspítala ohf. við litháenska útveggjaverktakann Staticus um hönnun, framleiðslu og uppsetningu á útveggjum á nýjan meðferðarkjarna. Samningurinn hljóðar upp á 47 milljónir evra eða rétt rúmlega 6,6 milljarða króna. 29.9.2022 12:44
Nemendur Laugarnesskóla hafa veikst vegna myglu Lekaskemmda hefur orðið vart í húsnæði Laugarnesskóla með tilheyrandi myglu. Ráðist var í heildarúttekt á skólanum eftir að nemendur og starfsfólk kenndu sér meins vegna myglunnar. 29.9.2022 12:07
Gjaldskrárhækkun Strætó skárri kostur af tveimur slæmum Í dag var tilkynnt að gjaldskrá Strætó muni hækka um 12,5 prósent. Þetta er mesta hækkun sem fyrirtækið hefur farið í í langan tíma en fjárhagsstaða þess hefur verið afar slæm upp á síðkastið. Stjórnarmaður í Strætó segir nauðsynlegt að skoða hvernig eigi að reka almenningssamgöngur hér á landi. 27.9.2022 23:37