Sveitarfélögin setji leiðbeiningar um frekari takmarkanir innan skólastarfs Í dag voru tæplega 400 börn í sóttkví vegna smita sem komu upp á leikskólum og frístundaheimilum. Skóla- og frístundasvið Reykjavíkur vinnur nú að leiðbeiningum í samstarfi við önnur sveitarfélög og Almannavarnir til að fækka smitum innan skóla og frístundaheimila. 16.8.2021 18:59
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Öryggis- og varnarmálafræðingur segir skert mannréttindi bíða íbúa Afganistans eftir að Talibanar tóku stjórnina í landinu í gær. Ringulreið hefur ríkt á alþjóðaflugvellinum í Kabúl þar sem reynt er að flytja starfsfólk sendiráða á brott.Fjallað verður ítarlega um málið í kvöldfréttum Stöðvar 2. 16.8.2021 18:10
Minnst 1.297 eru látin á Haítí Tala látinna eftir öflugan jarðskjálfta á Haítí í gær er komin í 1.297. 15.8.2021 23:31
Marta María og Páll Winkel létu pússa sig saman í dag Marta María Jónasdóttir, oftast kennd við Smartland, og Páll Winkel, forstjóri Fangelsismálastofnunar, giftu sig við hátíðlega athöfn í Bessastaðakirkju í dag. 15.8.2021 22:30
Logi Pedro og Hallveig eignuðust dreng Tónlistarmaðurinn Logi Pedro og Hallveig Hafstað Haraldsdóttir eignuðust dreng í gærmorgun. 15.8.2021 22:02
Hafnsögumaður ber bæjarstjóra Vestmannaeyjabæjar þungum sökum Andrés Þorsteinn Sigurðsson, yfirhafnsögumaður Vestmannaeyjahafnar, sakar Írisi Róbertsdóttur um einelti og lygar. Andrés hefur sagt starfi sínu lausu vegna málsins. 15.8.2021 21:16
Minnst 28 eru látin eftir sprengingu í Líbanon Minnst 28 hafa látist og 79 eru slasaðir eftir mikla sprengingu í eldsneytistanki í héraðinu Akkar í norðurhluta Líbanons. 15.8.2021 20:07
Ghani segist hafa yfirgefið Afganistan til að afstýra blóðbaði Ashraf Ghani, forseti Afganistan, staðfestir að hann hafi yfirgefið landið eftir innrás Talíbana í Kabúl. Hann segist hafa staðið frammi fyrir erfiðri ákvörðun en kosið að flýja til að forðast áframhaldandi blóðsúthellingar. 15.8.2021 19:30
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Í fréttum okkar í kvöld verður rætt við íslenska stúlku sem hvetur alla til að fara í bólusetningu þó hún hafi misst alla tilfinningu fyrir neðan mitti eftir að hafa fengið örvunarskammt. Hún ætlar sér ekki að sækjast eftir bótum og segir lækna halda því fram að þetta ástand sé tímabundið. 15.8.2021 18:19
Vitað er af einum Íslendingi í Kabúl Sveinn H. Guðmarsson, upplýsingafulltrúi utanríkisráðuneytisins staðfestir í samtali við fréttastofu að vitað sé um einn íslending í Kabúl. 15.8.2021 18:10