Fimm unglingspiltar létust í bílslysi Fimm piltar á aldrinum fimmtán til sextán ára létust í bílslysi í bænum Washdyke á Nýja-Sjálandi í nótt. Slysið er það versta í landinu í tvö ár. 8.8.2021 10:04
Ástandið á Landspítala hafi versnað Læknaráð Landspítala skorar á stjórnvöld að slá skjaldborg um starfsemi spítalans. Steinunn Þórðardóttir, formaður Læknaráðs, sendi frá sér ályktun í dag fyrir hönd stjórnar Læknaráðs vegna alvarlegrar stöðu spítalans í fimmtu bylgju Covid-19 faraldursins 7.8.2021 16:48
„Ég hefði kannski átt að lesa bréfið yfir“ Stefán Hrafn Hagalín, deildarstjóri samskiptadeildar Landspítalans, baðst afsökunar á bréfi sem hann sendi öllum tæplega 300 stjórnendum Landspítalans í útvarpsþættinum Vikulok á Rás 1 í morgun. 7.8.2021 15:12
Heilbrigðisstofnun Suðurlands hleypur undir bagga með Landspítalanum Þrátt fyrir mikið álag á Heilbrigðisstofnun Suðurlands verða sjúklingar á Landspítalanum meðal annars fluttir á sjúkrahúsið á Selfossi til að létta á álagi á spítalanum. Tíu til fimmtán auka rúmum verður komið fyrir, meðal annars á fæðingardeildinni. 7.8.2021 13:55
Sólveig Anna býður sig fram til Alþingis fyrir sósíalista Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, skipar fjórða sæti á lista Sósíalistaflokksins í Reykjavík norður. Gunnar Smári Egilsson, formaður framkvæmdastjórnar flokksins er oddviti. 7.8.2021 11:40
Bryan Adams myndar Pirellidagatalið 2022 Tónlistarmaðurinn Bryan Adams mun sjá Pirellidagatalinu fyrir árið 2022 fyrir ljósmyndum. Adams hefur verið ljósmyndari í rúman áratug og er þetta stærsta verkefnið hans hingað til 7.8.2021 11:19
119 greindust smitaðir í gær Að minnsta kosti 119 greindust smitaðir af kórónuveirunni innanlands í gær. Ekki liggur fyrir hve margir þeirra voru bólusettir en þær tölur eru nú uppfærðar á covid.is fyrir klukkan 16 alla daga. 7.8.2021 10:52
Ernst & Young velur Guðmund Fertram einn af frumkvöðlum ársins Ernst & Young í Bandaríkjunum hefur útnefnt Guðmund Fertram Sigurjónsson, forstjóra Kerecis, sem einn af ellefu frumkvöðlum ársins 2021 í Mið-Atlantshafsflokknum. Verðlaunin eru á meðal þeirra stærstu sem í boði eru fyrir frumkvöðlastörf. 7.8.2021 10:06
Kanye hélt annað hlustunarpartý fyrir Donda Kanye West hélt hlustunarpartý fyrir nýja plötu sína Donda sem átti upphaflega að koma út 23. júlí síðastliðinn. Í gær var tilkynnt að platan kæmi út í dag en nú virðist sem það muni ekki gerast fyrr en á morgun. 6.8.2021 17:10
Björk hjálpaði Shoplifter að safna fyrir Höfuðstöðinni Björk Guðmundsdóttir hvatti fylgjendur sína á Twitter til að leggja söfnun myndlistarkonunnar Hrafnhildar Arnardóttur, betur þekktri sem Shoplifter, lið. Síðan Björk birti færsluna í gær hefur söfnunin náð hundrað þúsund dollara markmiði sínu. 6.8.2021 17:09