Tveir heimilismenn á Grund greindust smitaðir Tveir heimilismenn Grundar að Hringbraut hafa greinst smitaðir af kórónuveirunni. Smitið má rekja til starfsmanns heimilisins sem var í vinnu í síðustu viku. 28.7.2021 09:29
Metfjöldi sjúkraflutninga í gær „Svei mér þá ef ekki enn eitt metið sé fallið,“ þetta segir í tilkynningu sem Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu birti á Facebook í dag. Slökkviliðið sinnti alls 186 sjúkraflutningum í gær. 28.7.2021 09:04
ÍBV íhugar að sækja um ríkisstyrk Formaður þjóðhátíðarnefndar segir nefndina íhuga að sækja um ríkisstyrk vegna tekjutaps ÍBV af því að fresta þurfi Þjóðhátíð annað árið í röð. Morgunblaðið greindi frá þessu í morgun. 28.7.2021 07:55
Velti bíl undir áhrifum og smitaður af Covid-19 Rétt fyrir klukkan átta í gærkvöldi var tilkynnt um bílveltu á Bústaðavegi. Ökumaður bílsins er grunaður um akstur undir áhrifum áfengis og fíkniefna. Þá er ökumaðurinn smitaður af Covid-19 og hefði átt að vera í einangrun. 28.7.2021 06:35
Hvalfjarðargöng verða lokuð til tíu í dag Hvalfjarðargöng opna ekki fyrr en klukkan 10:00 í dag en ekki klukkan 07:00 líkt og stóð til upphaflega. 28.7.2021 06:13
Forseti Túnis setur á útgöngubann Forseti Túnis, Kais Saied, hefur sett á útgöngubann sem gildir í einn mánuð. Túnisbúar mega ekki fara út úr húsi milli sjö á kvöldin og sex á morgnanna. Þá mega ekki fleiri en þrír safnast saman á almannafæri og bannað er að ferðast milli borga nema í brýnni þörf. 27.7.2021 11:35
Annar tveggja ljósleiðara sem tengja Ísland við umheiminn bilaði í gær Ljósleiðarinn Farice sem liggur frá Seyðisfirði til Skotlands bilaði í gær og allt samband lá niðri milli klukkan 13:00 og 05:00. Einungis einn annar ljósleiðari tengir Ísland við umheiminn. 27.7.2021 10:14
Fjölskylda Johns Snorra þakkar hlýhug Fjölskylda Johns Snorra segir að ákveðinni óvissu hafi nú verið eytt um afdrif þeirra Johns Snorra Sigurjónssonar, Muhammad Ali Sadpara og Juan Pablo Mohr á fjallinu K2 þann fimmta febrúar síðastliðinn. Leitin að þeim hefur nú borið árangur þar sem líkamsleifar þeirra fundust í gær. 27.7.2021 08:40
Úrkoman er komin austur Norðan og norðaustanátt fimm til þrettán metrar á sekúndu ríkir í allan dag og á morgun með rigningu eða þokusúld með köflum, en samfelldari úrkomu norðaustantil. Þurrt og bjart verður suðvestanlands. Hiti verður á bilinu sex til sextán stig, hlýjast á Suðurlandi. 27.7.2021 08:19
„Við megum ekki beita þeim aðferðum sem endanlega koma okkur öllum í gröfina“ Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar, segir munu koma í ljós á næstu viku hver næstu skref í baráttunni gegn Covid-19 þurfi að vera. 27.7.2021 07:24