Prinsinn hefur nám við Eton-skóla Georg prins, elsti sonur Vilhjálms Bretaprins og Katrínar prinsessu, hóf í dag skólagöngu sína í Eton-skólanum, einum dýrasta heimavistarskóla Bretlands. Hann fetar því í fótspor föður síns og frænda, Harrys hertoga af Sussex, auk margra fyrrverandi forsætisráðherra og rithöfunda. 8.9.2026 21:51
Hafnaði tæpum fimm milljarða þagnarsamningi Musks Rithöfundurinn og áhrifavaldurinn Ashley St. Clair segist hafa neitað að skrifa undir fjörutíu milljóna dala þagnarsamning við auðjöfurinn Elon Musk, barnsföður sinn. Í dag var frumsýnd heimildarmynd um ævi og feril Musks, auðugasta manns heims. 8.9.2026 20:42
Ekki þurfi mikið til að EES-samningurinn rakni upp Ríkisstjórnin er í þrengri stöðu eftir sumarið en hún var fyrir að mati stjórnmálafræðings. Margt bendi til þess að stefni í átakamikinn þingvetur, meðal annars umræðan um Bókun 35 og vendingar í heimsmálum. Niðurstaða þjóðaratkvæðagreiðslu breyti stöðu Íslands gagnvart EES-samningnum og ekki þurfi mikið til að samningurinn rakni upp og verði að engu. 8.9.2026 18:53
Íkveikja í miðborginni Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu barst tilkynning um íkveikju í íbúðarhúsi í miðbæ Reykjavíkur í dag. Gerandi er enn ókunnur en málið er í rannsókn. Minniháttar skemmdir urðu á húsinu. 8.9.2026 17:44
Ávarp Höllu: „Slíkur missir snertir okkur öll“ Nýafstaðin þjóðaratkvæðagreiðsla og missir sem minni á hvað skipti mestu máli var meðal þess sem var forseta Íslands hugleikið í ávarpi sínu við þingsetningu í dag. Halla Tómasdóttir setti 158. löggjafarþing í dag. 8.9.2026 16:18
Miklar truflanir vegna mótmæla gegn innflytjendum Miklar truflanir urðu á hafnarstarfsemi í bænum Dover í Kent-sýslu í Englandi í dag er svartklæddur hópur fólks hélt mótmæli að því er virðist gegn straumi flóttamanna til landsins. 5.9.2026 23:43
Funduðu í Moskvu um endalok stríðsins Vladimír Pútín Rússlandsforseti fundaði með sendinefnd Bandaríkjaforseta í Moskvu í dag. Sendinefndina skipa erindrekar Donalds Trump og Hvíta hússins, Steve Witkoff og Jared Kushner, tengdasonur Trumps, en tilgangur hennar er að binda enda á innrásarstríðið. 5.9.2026 23:09
Posarnir komnir í lag á ný Posar Teya sem tengdir eru við kassakerfi eru komnir í lag á ný og kerfið sem olli biluninni er orðið stöðugt að sögn fjártæknifyrirtækisins. Langar raðir mynduðust víða vegna bilunarinnar sem kom upp um tuttugu mínútur í þrjú í dag. 5.9.2026 20:55
Þyrlan kölluð út vegna slyss við Sólheimajökul Þriggja bíla árekstur varð rétt austan við Sólheimajökul á sjöunda tímanum í kvöld. Fjórir voru fluttir á Landspítalann með þyrlu Landhelgisgæslunnar til aðhlynningar vegna slyssins. Þar af voru tveir alvarlega slasaðir. Langar bílaraðir hafa myndast þar sem veginum hefur verið lokað meðan á vinnu á vettvangi stendur. 5.9.2026 20:15
Vara við manni sem hafi óskað eftir persónuupplýsingum nemenda Stúdentafélag Háskólans á Akureyri (SHA) hefur varað stúdentaráð annarra háskóla við háttsemi manns sem hafi haft samband við nemendur skólans og beðið þá um að senda sér gögn úr innra kerfi háskólans. Að sögn forseta Stúdentafélagsins hafi maðurinn ætlað að nýta sér upplýsingarnar í hagnaðarskyni en hann reki fyrirtæki sem bjóði upp á undirbúningsnámskeið fyrir háskólanema. 5.9.2026 20:01