Fréttamaður

Áróra L Davíðsdóttir

Áróra er fréttamaður á fréttastofu Sýnar.

Nýjustu greinar eftir höfund

Líkur á skriðu­föllum á Norðvestur- og Norð­austur­landi

Undanfarnir dagar hafa verið úrkomusamir og spár gera ráð fyrir áframhaldandi rigningu um helgina, sér í lagi á norðvestan- og norðaustanverðu landinu. Líkur eru á grjóthruni og minni skriðum á svæðinu og fólki er ráðlagt að sýna aðgát. 

Ný fjar­skipta­kerfi séu við­kvæmari hvað varðar út­breiðslu

Forstjóri Fjarskiptastofu segir lokun 2G og 3G kerfanna mikla og flókna kerfisbreytingu sem hafi breytt útbreiðslu fjarskiptaþjónustu. Fjarskiptastofa og fjarskiptafélögin, SÝN, Síminn og NOVA, hafi unnið hörðum höndum í sumar við að aðlögun nýju 4G og 5G kerfanna. 

„Við nýtum tæki­færið og ræðum lífið og til­veruna“

Félagarnir og athafnamennirnir Jón Axel Ólafsson og Óskar Finnsson hittast reglulega í sánu sem Jón Axel er með á pallinum hjá sér og þeir slaka þar á og njóta svo góðra veitinga hjá Óskari sem er einn af virtustu matreiðslumönnum landsins. Vala Matt fór fyrir Ísland í dag og heimsótti þá félaga á palli Jóns Axels.

Hommar komi verst út þegar kemur að mis­munun launa

Samkynhneigðir karlar koma langverst út á vinnumarkaði þegar kemur að mismunun launa segir sviðsstjóri Fræðslu- og upplýsingasviðs ASÍ. Samkvæmt skýrslu sem unnin var fyrir ASÍ, BHM og BSRB árið 2023 um málefni hinsegin fólks á vinnumarkaði eru tekjur hinsegin karla þrjátíu prósentum lægri en tekjur gagnkynhneigðra karla á ársgrundvelli. Munur á tekjum hinsegin og gagnkynhneigðra kvenna er hins vegar hverfandi.

Þurrasti júlí­mánuður á Akur­eyri í níu­tíu og sjö ár

Júlímánuður var óvenju úrkomusamur á suðvestur- og vesturhluta landsins, sérstaklega um miðjan mánuð, en óvenju þurr á Norðaustur- og Austurlandi. Í ár var blautasti júlímánuður í rúm 40 ár í Reykjavík en einn sá hlýjasti á Austfjörðum. 

Bjart­viðri sunnan heiða en stöku skúrir vestan til

Í dag má búast við hægri breytilegri átt og bjartviðri sunnan heiða og sums staðar norðanlands. Skýjað verður með köflum annars staðar og líkur eru á stöku skúrum vestan til og inn til landsins. Hiti verður á bilinu níu til tuttugu stig.

Enn eitt inn­brotið í mið­bænum

Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu barst tilkynning um innbrotsþjóf í heimahúsi í miðborg Reykjavíkur í nótt. Þjófurinn var staðinn að verki við að brjótast inn í mannlausa íbúð en nágrannar yfirbuguðu hann og héldu honum þar til lögregla kom á vettvang.

Sjá meira